það hvíslaði lítil mús í eyrað hans aftur og aftur
28.6.2008 | 14:01
Mér líður eins og allt hafi verið í draumi, og í drauminum hafi vitneskju og upplifun verið hvíslað að mér. Ég er svo á tveim fótum hérna heima að reyna að finna út úr hvað er raunveruleiki og hvað er ekki raunveruleiki.
Hvað gerðist í raun á ráðstefnunni, og hvað gerðist í ekki raunheimi.
Ég hugsa og hugsa og vil helst ekki láta trufla mig.
Ég læðist út í garð, og vil ekki sjást af nágrönnum mínum, vil vera ein í hugsununum og lifa upp aftur og aftur. Ég er hrædd við að hrapa inn í raunveruleikann og ekki komast inn í hina vitundina aftur. Það er notalegt að bara vera og engin að tala við, vera ég í hinu innra og í hinu ytra.
Lappi minnir á sig, ég hugsa til hans skilaboð, strýk honum og brosi, og við erum í því yndislega sambandi án orða allan daginn.
Ég svaf til kl eitt í dag, fór að sofa klukka þrjú í nótt. Var að kíkja á ykkur, ég er svo hrifinn af þeim samskiptum sem hægt er að hafa á netinu, það minnir mig á hin innri heim, telepatí en með sjónrænum (hinu líkamlega auga) stöfum, orðum og myndum.
Ég er ekki alveg ákveðin hvenær ég vil stýga alveg niður úr huganum, ekki í dag og ekki á morgun.
Ég á að fara á fund á morgun, en ætla að aflýsa komu minni, vil ekki niður alveg á morgun.
Ég ætla að læðast eins óséð og ég get í göngutúr með Lappa, og njóta þess að ganga leiðina okkar sem er löng meðfram ánni, næstum því inn í næsta bæ.
Við hugleiddum í Washington þrisvar á dag, langar dásamlegar hugleiðslur, við deildum hvert með öðru því sem við upplifðum.
Við vorum næstum því hundrað, og við hlustuðum með athygli og virðingu hvert á annað, það var öruggt að vera þar og deila upplifunum með hinum, það fann maður .
Við unnum grúppuvinnu saman í smá hópum. Við ræddum alvarlegt, við hlógum svo tárin runnu, við sýndum hvert öðru áhuga og fundum það samband sem allt mannkyn er tengt í.
Ég hitti Bruce og Linda. Þau eiga heima í USA. Þau búa í einhverskonar samfélagi þar sem allir eru í tengslum við náttúrunna. Bruce sagði mér sögu sem er sönn, hann sagði mér reyndar margar sögur, en ég ætla að deila einni af þeim með ykkur.
Þar sem þau búa er á sumrin alltaf sofið í tjöldum. Einu sinni þegar þau fjölskyldan voru að fara að sofa var mús í tjaldinu. Þau gátu ekki náð henni og reyndu að fara að sofa með músina í tjaldinu.
Það gekk ekki vel, músin var allsstaðar og truflaði nætursvefninn. Bruce þeyttist um tjaldið og reyndi að ná músinni, en hún vildi ekki nást.
Að lokum ákvað Bruce að hugleiða og reyna að ná sambandi við músina. Hann hugleiddi og náði sambandi við músina. Hann spurði hvað væri að og hvort hún vildi ekki yfirgefa tjaldið.
Svo nær hann ú hugleiðslunni að fanga þessa setningu :
Mig vantar !
Meira heyrði hann ekki.
Hann segir svo við músina: Ef ég set peysu eða teppi út til þín, viltu þá yfirgefa tjaldið.
Músin samþykkir það.
Bruce og fjölskyldan fara að sofa, og þegar þau vakna er músin horfin. Leið svo einhver tími .
Svo kemur músin aftur ekki bara inn í tjaldið, en nagar í hárið á honum alveg við eyrað. og sama ævintýri hefst um nóttina, Bruce reynir að ná músinni til að láta hana út en ekkert gengur .
Hann vaknar aftur og aftur við að músin pillar við hárið í kringum eyrað á honum.
Ákveður hann þá að hugleiða: hann spyr músina hvað sé að ?
Þú settir enga peysu eða teppi út fyrir mig. Hann verður furðu lostinn því það var jú rétt, hann hafði ekki gert það.
Þau finna gamla peysu sem þau setja út og daginn eftir var músin farin út úr tjaldinu.
Mér finnst þessi saga svo dásamleg, og svo margt annað sem hann sagði sem var svo dásamlegt.
Núna er laugardagur börnin í næsta húsi eru í fótbolta við pabba sinn, gleðin yfir sumarfríi skríkir um hverfið. Lappi minn liggur hérna við fæturna mínar, ég ætla að klæða mig í sokka og skó og fara í göngutúr sem ég finn að hann er að bíða eftir.
Ég lofaði honum því í morgun í gegnum hugann. Þessi leið er góð, þegar við tölum sitthvort tungumálið.
Kærleikur til ykkar allra
Bloggar | Breytt s.d. kl. 14:04 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (16)
svona smá halló eftir heimkomuna
27.6.2008 | 18:53
Ég las svolítið svo fallegt og satt sem ég vil byrja á að deila með ykkur:
The greatness of a nation and its moral progress can be judged by the way its animals are treated.
Ég og Lappi erum ein heima !
Við vorum að keyra Sól og Gunna á flugvöllinn. Við Gunni komum heim frá Washington í gærmorgun, lentum klukkan rúmlega átta um morguninn og leiðin lá strax í vinnuna.
Ég hafði næstum ekkert sofið í flugvélinni þessa átta tíma sem það tók að fljúga.
Það var nauðsynlegt að fara í vinnuna, síðasti dagurinn og opið hús með vorsýningu. Það kom fjöldi manns.
Ég var í lagi fram eftir degi og gat verið fókuseruð á það sem ég var að gera, en um ca 12 leitið var ég farinn að sjá tvöfalt. Lagaði mér sterkt sterkt kaffi og drakk og drakk kaffi til að halda mér í gangi.
Þegar heim kom var ég örmagna en hélt mér vakandi eitthvað frameftir. Þurfti að fara yfir ýmislegt vegna vinnunar sem var áríðandi að gera en gat hreinlega ekki fókuserað á neitt.
Vaknaði svo klukkan ca eitt í nótt fór yfir þessi bréf og bókhald sendi það sem senda þurfti og fór svo aftur að sofa.
Ég er núna í sumarfríi þar til um miðjan ágúst fyrir utan einn dag þar sem ég þarf að fara í skólann og leiðbeina flutningsfólkinu hvað á að senda í nýja skólahúsnæðið sem við förum í.
Ferðin til USA var einu orði sagt frábær frá upphafi til enda. Margar upplifanir stórar og reynsluríkar. Þetta er annað sinn sem ég fer á þessar ráðstefnur og það er eins og vitundin og skilningurinn opni sig og víkki eftir þessi mót.
Ég ætla ekki að skrifa um neitt núna langar á flakk til ykkar og sjá hvar þið eruð í lífinu !
Á morgun eða á sunnudaginn skrifa ég um eitthvað af því sem ég upplifði.
Gunni skrifar um yndislega reynslu sem við fengum og ef þið viljið lesa það þá er það hérna
Skoðið endilega þetta fallega myndband af móður okkar miklu sem hefur allt líf á í sinni meðvitund líka þig !
Núna kíki ég á ykkur elskulegustu bloggvinir
Bloggar | Breytt 28.6.2008 kl. 09:37 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
Washington DC
17.6.2008 | 10:49
Alveg er þetta ótrúlegt, ég ligg hérna á hótelhelbergi í Washington DC kl sex um morgun og get ekki sofið.
Ég hef verið vakandi frá því klukkan fjögur.
Ég hef verið óvenju lengi að jafna mig á tímamismun og sennilega er eteriski kroppurinn minn eitthvað ekki alveg á sínum stað.
Það hefur verið mikið að gera hjá okkur. Við komum tveim dögum fyrir fyrstu mætingu á ráðstefnuna.
Þá fórum við og skoðuðum hitt og þetta, þó aðallega sýningar.
Gunni og ág vorum í New York í október og þess vegna höfum við verið að líkja þessum borgum saman, og það er langt á milli. Þetta eru alveg rosalega ólíkar borgir.
Á föstudaginn er síðasti dagurinn á ráðstefnunni og eftir það höfum við nokkra daga til að spóka okkur.
Ég hef ekki mikið að segja um sjálfa ráðstefnuna ennþá, nema að það hafa verið alveg magnaðar hugleiðslur.
Dagurinn í gær var fyrsti dagurinn og það var spennandi. Það voru tvær magnaðar hugleiðslur og svo unnið í grúppum. Aðalefnið er í raun grúppuvinna. Hvernig við mannkyn verðum betri grúppa, hvernig getur þín opnað fyrir heiminum, eða þetta er svoleiðis sem ég túlka það, það eru sennilega aðrir sem myndu koma með langa þeoríu um þetta efni.
Ég finn mikið fyrir ólíkum kúltur. Ég er að sjálfsögðu mikið með dönum, og þar er ég eins og fiskur í vatni, en meiri hlutinn af þeim sem eru hérna eru ameríkanar.
Þar er mikil munur á okkur ísbúum og þeim. Ég finn mikið fyrir því í grúppuvinnu.
Ég kynnti okkar grúppu fyrsta kvöldið og læt fylgja með hvernig ég gerði það :
Vi are from The One Earth Group : Gunnar, Lisbeth Annette and I
The name represents our thought that we work for:
One World
One Life
One Earth
Vi work for a better world: Right Human Relations between humans between animals and humans between the earth and humans. If one can focus on this, then everybody can join our work.
The One Earth Group work in all kingdoms and want to be involved in
the beautiful things that happen on earth and also what needs more attention. We try to make an impact where it is possible and try our best to serve the Devine plan, from what we do, to what is needed
The One Earth Group work in all kingdoms and want to be involved in
the beautiful things that happen on earth and also what needs more attention. We try to make an impact where it is possible and try our best to serve the Devine plan, from what we do, to what is needed.
We meditate upon the relations between the deave kingdom, humanity, the animal kingdom, the plant kingdom and the mineral kingdom. We read books and articles which have been written about the different kingdoms and we try to relate our esoteric knowledge to the writings.
Í gærkvöldi var svo farið út að borða, en ég var of uppgefin og var heima að horfa á Animal Planet, hvað annað.
Það er alveg rosaleg heitt hérna 38 til 40 stiga hiti og mjög rakt.
Núna ætla ég að drekka teð mitt og borða mangó. Gunni biður örugglega að heilsa, hann er að strauja.
Ljós og Kærleikur til ykkar allra. Ég kíki við á ykkur í kvöld,
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (21)
ég er þakklát fyrir að geta lifað í sorg og gleði samtímis í dag...
9.6.2008 | 16:27
Núna er mánudagur, á föstudaginn förum við Gunni til Washington og verðum þar í tvær vikur.
Við verðum viku með fullt af öðru fólki sem vinnur að því sama og við, sem trúir því að með hugleiðslu sé hægt að gera heiminn að betri stað að vera í. Við verðum ca 100 saman frá öllum heiminum og hugleiðum meira og minna allan tíman, og svo verður ýmislegt annað mjög þroskandi og gott. Svo verðum við hjónakornin viku ein að dúllast.
Ég verð nú að segja að ég hlakka til, en þó er eins og það svo oft er að það koma hlutir sem skyggja á það að hlakka eins mikið til og þegar manni hlakkaði til þegar maður er barn.
Stundum minnir lífið á sig á erfiðan hátt, og þá verður maður að takast á við það á eins góðan hátt og manni er mögulegt í þeim þroska sem maður nú hefur á þessari stundu .
Ég hef þó reynt að vera í núinu í dag, og láta sársaukann vera í bakgrunninum á meðan það er mögulegt.
Hjartans vinur minn, sem er systir mín á innri plönum, missti systur sína í þessu lífi á hörmulegan hátt í fyrradag.
Svo hörmulegan, sem skilur aðstandendur eftir í þvílíkum sársauka og örvæntingu að það tekur tíma að komast upp úr þeim hugsunum og ásökunum sem varla eru óumflýjanlegar. Þessi vinur minn er sterk og dásamleg og hefur ekki látið bugast þó svo að öll fjölskyldan hennar hafi farið á þennan hátt, eitt af öðru.
Systkini og foreldrar.
Vonandi getum við sem erum með henni og hjá, verið henni sá styrkur sem hjálpar henni úr sársaukanum. Hún fer með okkur til Washington, ef að Guð leyfir.
Það er skrítið að hugsa til þess að þegar maður er áhorfandi að svona áföllum, þá verður maður meðvitaður um dýrmæti lífsins. Dýrmæti þess að vera þar hvert fyrir annað, alveg þar til yfir líkur.
Vera saman eins og það sé síðasti dagurinn alla daga.
Það er erfitt að muna það í daglega lífinu, en af og til er maður sem betur fer minntur á það
Ég á það til eins og flestir held ég að vera fókuseruð á morgun, en ef dagurinn í dag er síðasti dagurinn fyrir mig, eða einhvern sem er mér kær, þá hef ég spillt síðasta augnablikinu.
Við höfum haft það inni í okkar lífi hérna, að dauðinn beið við dyrnar og vildi fá einn fjölskyldumeðlim með, sem betur fer fór betur en á horfði. Þetta vakti okkur virkilega til vitundar um það að allt getur gerst, nú á eftir , eftir smástund, seinna ,á morgun eða einhvern annan dag. Þetta vorum við meðvituð um í nokkur ár eftir þessa lífsreynslu.
En svo fer allt að verða ósköp öruggt, og þetta fjarar út, og maður fer að kaupa sér öryggi með hinu og þessu sem er á einhvern hátt eins og kaup að eilífu lífi.
Maður getur ekki dáið frá nýju húsi, nýjum bíl, nýjum buxum.
En við gleymum að nota tíman betur saman, nota peninga í að vera, upplifa eitthvað saman, sem ekki endilega er efnislegt, en huglægt, jafn huglægt og lífið og dauðinn er, eða Kærleikur og draumar. Það sem gefur okkur minningu sem engin getur tekið frá manni, eða er með til að hjálpa okkur að sjá hvert annað, ekki sjá hvert annað í gegnum vörulista !
Ég er að sjálfsögðu hluti af þessu öllu saman, finnst gaman að kaupa hitt og þetta, kaupa saman inn fyrir hitt og þetta sem veitir augnabliks gleði, og svo ekki meira. Það er gaman að skoða og velja, það er gaman alveg að kassanum, og svo fara vörurnar í poka, og Bummmm, það er strax farið að hugsa um það sem getur veitt næstu fullnægingu.
Það sem ég finn að gerir mig glaðasta er þegar við í raun erum ekki að gera neitt, bara sitjum drekkum te, tölum um daginn og veginn, hlæjum saman, eitthvað sem kostar ekkert en fyllir mig ánægju. Þetta væri gott að muna á meðan á kaupunum stendur.
Í janúar keyptum við risastórt sjónvarp, tipp topp kvalitet, ekki yfir neinu að kvarta og hönnunin er alveg frábær. Svo kemur það fyndna, við horfum næstum aldrei á sjónvarp, ég fer einhvernvegin í vont skap ef ég sit og horfi á sjónvarpið. En við afsökum okkur með því að það er alltaf gaman að sjá náttúrulífsmyndir í góðum gæðum, tónleika og ef það eru góðar bíómyndir. Ég get ekki annað en hlegið að sjálfri mér yfir svona tilbúinni þörf.
Ég hef sagt ykkur frá verkjunum í liðunum mínum sem ég hef átt við að stríða. Stundum átti ég hreinlega erfitt með gang, og að halda á hlutum, vegna verkja í hnjánum og fingrunum. Nú skuluð þið bara heyra eitt sem er svo gott og frábært. Ég var í þerapí hjá honum elsku þerapístanum mínum á mánudaginn var, og akabadabra, verkirnir horfnir !!!! Eftir marga mánuði, finn ég ekkert til. Ég er aum í liðunum, en ég hef enga verki. Svona er nú gott að vera með góðan þerapísta.
Þetta verður sennilega síðasta færsla fyrir ferðina yfir hafið, skrifa kannski þar ef ég hef tíma.
Set mynd af mér með nýju sólgleraugun sem ég keypti í dag, mikil þörf fyrir þessi gleraugu.
Svo kemur það sem er spaugilegt, ég sé svo illa, að það er næstum ómögulegt fyrir mig að vera með sólgleraugu.
Blessi ykkur öll
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (24)
Mikið varð ég leið yfir þessari frétt !
5.6.2008 | 17:25
Ísbirnir eiga ekki auðvelda daga núna, þeir berjast fyrir lífi sínu. Það gæti verið liðin tíð eftir ekki svo mörg ár að sjá ísbjarnarmömmu með ungana sína á selaveiðum. Hver hefur ekki notið náttúrulífsþátta þar sem hún er á veiðum með ungana sína á ísbreiðunni, þar sem lyktnæmið er svo ótrúlegt að hún getur fundið lykt af sel á löngu færi og í gegnum ísinn.
Þessi mögnuðu dýr sem á svo fallegan hátt falla svo vel inn í umhverfið sitt.Ísbjarnar kallinn blessaður sem vandrar um á íssléttunni sem tákn um styrk og fegurð.
Það bendir allt til þess að þetta verði í framtíðinni bara það sem hægt er að upplifa á myndum.
Amerískar rannsóknir vísa að eftir 100 ár, með þeirri meðferð sem Móðir Jörð fær, þá verða engir ísbirnir á Jörðinni, þeir verða hreinlega útdauðir.
Við vitum að lífsviðurværi þeirra er fæði í hafinu, og til að ná í það vandra þeir út á ísinn. En þegar engin ís er þá er erfitt fyrir þá að finna sér fæðu.
Núna í vorinu kemur ísbjarnarmamma út úr snjóholunni með ungana sína til að kenna þeim að lifa með þeirri náttúru sem þeim er sköpuð. Oftast er lífið ekki auðvelt fyrir þessa litlu unga, og oftast lifir bara annar hver ungi. Hvernig verður það núna, það lifa ekki margir ungar í þeirri fæðuvöntun sem er fyrir þessi blessuðu dýr
En núna er lífið erfiðar en áður, eins og lífið næsta ár verður erfiðara en í ár.
Ísbjarnarmamma hefur ekki möguleika á að synda á haf út til að finna fæðu fyrir sig og ungana, en það getur ísbjarnarkallinn.
Hann getur synt langt, mjög langt, stundum í marga daga og stundum alla leið til ísland, það sem loksins er fast land undir fótum eftir marga daga á sundi og þarna vonast hann eftir fæðu, en það er ekki tekið vel á móti ísbjörnum á Íslandi, þeir er bara sí svona, skotnir.
Oft drukkna ísbirnir þegar valið er á milli þess að synda á haf út, eða leita fæðu í landi. Það er samt ekki erfitt að reikna út að þegar valið er að synda út í óvissuna og vonast eftir fæði,og synda í í marga daga, þá er ekki fæði í landi !
Ég hef velt mikið fyrir mér hvaða örlög bíða þessara frábæru dýra.
Það eru að gerast spennandi hlutir þrátt fyrir allt, og líka sögulegir, sem sumum finnst kannski ekkert spennandi, en það finnst mér. Því að þessi þróun er óumflýjanleg.
Í dýragarðinum í Berlín í þýskalandi og fleiri löndum eru litlir ísbjarnarungar fóstraðir upp af einstaklingum, sem taka litlu birnina í fóstur.
Þetta er ekki alltaf vel liðið, og við segjum oft að dýr séu dýr, ennnn þessi dýr eru að verða útdauð og ég geri mér fulla grein fyrir að þetta er allt um peninga sem dýragarðarnir eru að hugsa um.
Það sem ég hef á tilfinningunni að sé að gerast er að á milli manna og þessara viltu dýra myndist tengsl, og það sem ég trúi er að hver dýrategund er tengd á innri plönum, eins og allt mannkyn er tengt á innri plönum og við svo í stærra samhengi erum tengd öllu lifandi hér á Jörðinni.
Ekki ætla ég alveg að fara út í þetta, en verð að láta smá útskýringu fylgja sem skýrir það sem ég er að segja. Vonandi.
Þessi tengsl sem myndast held ég að hafi mikla þýðingu fyrir þróun hjá ísbirninum, og hjá okkur mannkyni.
Þegar dýr umgangast manneskjur hækkar vitundarstig dýrsins.
Þegar við elskum dýrin og sínum og gefum þeim allan þann Kærleika sem við höfum í okkur, hefur það ekki bara áhrif á það dýr sem við höldum að mótaki Kærleika, en alla þá dýrategund sem þetta dýr er sprottið frá.
Tökum sem dæmi litla Kurt í dýragarðinum í Þýskalandi .
Hann fær mikla ást og umhyggju frá þeim sem passar hann, þessi ást og kærleikur streymir í gegnum litla Kurt og frá honum í einskonar brunn af orku, eða sameiginlega sál allra ísbjarna og þó svo að við séum ekki sammála um allt, getum við verið sammála um það, að ekki veitir af !
Við sjáum fleiri dæmi um það að ísbirnir eru að nálgast aðrar tegundir á jákvæðan hátt !
Til dæmis hunda, það hefur sést á mörgum stöðum að ísbirnir leika við og kela við sleðahunda. Þetta er eitthvað sem ekki hefur verið upplifað áður.
Það er sorglegt þegar valið er að aflífa dýr, án þess að reyna að finna annan möguleika.
Þetta var einn ísbjörn !
Hvað var gert við Keikó ?
Blessun til allra dýra á Jörðinni !!
![]() |
Ekki fleiri bjarndýr í Skagafirði |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 17:50 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (12)
elska skaltu allt eins og sjálfan þig....
2.6.2008 | 14:42
Veðrið er alveg frábært, blómin eru falleg ,sól sól sól !!!
Við fórum í gær að vatni hérna rétt hjá með kvöldmatinn og vorum þar með Sigyn, Albert og börnunum þeirra. Sigyn er elsta dóttirin á bænum.
Þarna vorum við til kl átta um kvöldið að synda leika okkur og borða góðan mat. Það er alveg frábært að hafa svona paradís í bakgarðinum.
Við ákváðum að hittast þarna allavega einu sinni í viku og borða kvöldmat saman og leika okkur í vatninu.
Núna er ég að taka til og spjalla við nágranna minn sem af og til kemur hlaupandi inn og sem hefur mikla þörf á að koma og spjalla um allt það sem gerist í lífi hennar.
Ég hef skrifað um hana áður, þá á þeim stað að ég gat ekki haldið hana út.
En ég get séð núna að það dugir ekki að vilja vera eitt með öllum heiminum og halda svo þeim sem mest þurfa á samskiptum að halda vegna einmannaleika og þar að auki eru nágrannar manns, frá sér.
Það er nefnilega svo auðvelt að vilja vera góður við börnin i Afríku en klofa svo yfir þá sem liggja á tröppunum manns og láta sem maður sjá ekki þörfina.
Hún nágranni er einmanna, og á við mikil andleg vandamál að stríða og þess vegna getur fólk ekki haldið hana út. En sem manneskja sem boðar frið á Jörðu og að við séum öll bræður og systur tók ég mig í hnakkadrambið og opnaði dyrnar mínar fyrir henni og nú er hún hérna af og til allan daginn.
Hún borðar með mér hádegismat ef ég er heima og svo spjöllum við um alla heima og geima. Hún hefur átt viðburðarríkt líf og ég er þeirrar ánægju aðnjótandi að fá að heyra um það.
Hún hjálpar alveg heilmikið og er góð við Sólina okkar og dýrin.
Núna stelur hún ekki fleiri kisum svo þær eru í öruggum höndum. Hún er ALGJÖR einstæðingur og þannig má það ekki vera. Ég þarf að æfa mig í að segja til og frá og það er hollt fyrr mig.
Hérna eru nokkrar myndir frá yndislega deginum í gær.
Knús í krús
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (17)
Lífið í Leirulæk og nágrenni...
31.5.2008 | 14:46
Alveg yndislega fallegur dagur !
Allt er samt á hvolfi hérna heima eftir hann Gunna tunna sem var að gera mat fyrir veislu í alla nótt. Þegar hann fór út með matinn var eldhúsið sem er nokkuð stórt á hvolfi. Pottar, pönnur, föt, skálar ausur og ég veit ekki hvað skítugt út um allt.
Hvað gerir ekki góð kona, tekur til hendinni og þrífur, skrúbbar og bónar. Ég er alls ekki búinn, en ætla að taka smá pínu pásu.
Fór með Lappa tappa í göngutúr í morgun sem er ekki frásögu færandi, en segi það samt, því ekki er það minna mikilvægt en svo margt annað.
Í gær var ennþá einn stór dagur í skólanum. Enn einn nemandinn útskrifaðist úr skólanum okkar. Hann hefur sem sagt verið fjögur ár hjá okkur. Ég hef skrifað um hann áður hérna á blogginu.
Þegar hann byrjaði í skólanum var okkur sagt margt miður gott um hann sem var allt satt og rétt og hann kunni varla að teikna en var mjög áhugasamur.
Þið getið séð hérna a myndunum hvaða árangri maður getur náð ef líf manns er gott og manni er sagt nógu oft hversu duglegur maður er og að maður getir í raun næstum allt sem maður vil.
Hann er í dag ekki til vandræða vegna þess hversu erfiður hann er, hann er bara alveg frábær !
Ég var komin aðeins á undan á opnunina svo ég var svo heppinn að sjá hvernig fjölskyldan hans brást við þegar þau sáu verkin hann, þau trúðu varla því sem þau sáu og sögðu aftur og aftur, gerði M. þetta virkilega. Ohh ég var svo ánægð fyrir hans hönd. Það hlýtur að vera alveg frábært eftir svo mög áföll og neikvæðar upplifanir í gegnum skólasýstemið að standa uppi með þennan líka frábæra árangur.
Hann var líka svo stoltur og ánægður og knúsaði svo oft.
Ég tek það fram að hann er ekki þessi stóri knúsari dags daglega, en þarna réð hann ekki við sig.
M. er með greiningu asberger/einhverfur. Hann hefur ekki átt auðvelt líf og hann á eftir að upplifa margt erfitt í framtíðinni vegna þeirrar fötlunar sem hann hefur.
En eftir svona upplifun eins og í gær styrkist sjálfsmyndin sem gerir mann sterkari til að takast á við þau áföll sem bíða mann í framtíðinni, það er alveg á hreinu.
Set inn nokkrar myndir af sýningunni og af verkunum hans.
Hann var með 14 myndir mjög stórar. Plagat stærð.
Myndirnar eru allar teiknaðar í hönd, skannaðar inn í tölvu og litirnir settir inn í photoshop. Hann hefur sjálfur fundið upp allar persónurnar sem hann teiknar, fötin og sögurnar í kringum hverja mynd og unnið alla tölvivinnu . Hann hefur sem sagt unnið þetta frá a til ö. Hann fékk kennsu í byrjun en náði svo tökum á þessu sjálfur.
Það er svo sárt að vera vitni að hversu fáir möguleikar eru fyrir þá sem eiga við einhverja fötlun að stríða. Hérna reyna sveitarfélögin að spara eins mikið og mögulegt er hjá þessum hóp. Ég upplifi svo sterkt í minni vinnu að við vinnum eins og á móti hver öðrum. Við og sveitafélögin.
Þeir gera allt sem þeir geta að spara og spara alveg sama á hvers kostnað. Það eru teknar ákvarðanir um líf þessa einstaklinga án þess að þau fáu nokkru um ráðið.
Skólinn er öðruvísi tilboð en sveitafélögin eru með og þar af leiðandi hefur það tekið langan tíma að opna augu og skilnings þeirra sem vinna að málum þessara einstaklinga að þarna er eitthvað nýtt sem gefur aðra möguleika en að setja skrúfur í poka eða einhverja einhæfa vinnu sem er góð fyrir suma en ekki alla.
Ég er ekki að segja að eitt sé betra en annað, en sumir hafa aðrar þarfir en aðrir og það á við um okkur öll sömul. Af hverju er ekki hægt að taka tillit til þess þó svo viðkomandi eigi við einhverja fötlun að stríða.
Fötlun gerir þig ekki að minni manneskju með aðrar tilfinningar eða óskir og drauma, en manneskju sem á einhvern hátt vantar getur til einhvers ákveðins hlutar.
Ég er að vona að í framtíðinni verði meiri fókus á þennan hóp sem geri það að verkum að þau fái sömu mannréttindi og allir aðrir.
Annars er allt bara gott héðan. Mikið að gera eins og ég tönglast á í öllu því sem ég skrifa og við alla sem ég tala. Ætti sennilega að athuga þessa setningu mína og hugsa þetta meira jákvætt en ég geri. Ég er alltaf að bíða eftir sumarfríinu mínu, er ekki nógu mikið í því að njóta þess að vera í núinu, njóta þess að hafa mikið að gera.
Einu sinni þótti mér það gaman, ég elskaði þegar ég var að kafna í verkefnum, en núna get ég það ekki.
Ég vil hest bara dúlla hérna heima, lesa, vera í garðinum, spjalla við dýrin mín og jú fjölskylduna mína og hugleiða. Virkar sennilega leiðinlegt en svona er það nú samt.
Læt mér dreyma um að fá mér hest ! K ærleikur í Ljósheima....
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (17)
hver sagði líka að lífið væri alltaf dans á rósum...
28.5.2008 | 13:03
Ég er einhvernvegin að kafna í vinnu og verkefnum. Það er lokasprettur í skólanum. Eftir rúmar tvær vikur fer ég til Bandaríkjanna og ég þarf að ná mjög miklu áður, veit ekki alveg hvernig. Skólanum líkur fyrst í lok júní.
Einhver sagði við mig að skrifa lista, ég svaraði á móti að ég væri með fullt af listum en væri alltaf að bæta við á þessa lista nýju og nýju og listarnir væru orðið út um allt.
Ofan á allt þetta fékk ég að vita að eitt af nágrannahúsunum og garði ætti að ryðja alveg í burtu! Það hefur staðið autt í nokkur ár, þar af leiðandi er mikið líf í garðinum. Það eru dúfu par sem hefur búið í einu grenitrjánna í nokkur ár, þær eru svo spakar og yndislegar. Einnig eru tveir íkornar sem eru mikið á ferli þarna í garðinum og okkar garði líka. En þau dýr er nú erfitt að flytja. En það er líka fullt af broddgöltum sem búa þar og hafa búið lengi. Þetta á að gerast í fyrramálið.
Þannig að ég og nágranni minn förum á eftir og reynum að finna blessuð dýrin og tökum þau í fóstur og reynum að venja þau við garðana okkar.
Broddgeltir eru með unga í maganum á þessum tíma og þar af leiðandi er þetta ekki alveg góður tími fyrir svona inngrip.
Við fórum að kíkja í fyrradag og það var fullt af smá stígum um allt, sem er merki um þarna hafa þeir skapað sér líf og sælu.
Ég hef ekki mikinn tíma til að kíkja á ykkur kæru bloggvinir, vonandi getið þið lifað við það, haha.
Sendi ykkur hérna Sól Sól Sól og fullt af Kærleika.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (13)
Dagur úr lífi Steinunnar..... myndir af myndum af lífi
25.5.2008 | 13:03
Eins og ég hef skrifað þá er myndin komin, ég skoða hana aftur og aftur og reyni að sansa þessa litlu stelpu, og kannski tekst mér að sameina essensin frá fortíðinni við essensin í nútíðinni.
Það er bæði gaman, skrítið og erfitt að skoða kvikmyndina.
Allar tilfinningar koma upp .
Núna ætla ég að rífa mig frá myndinni í dag, er á leið í skógarpiknik með fullt af vinum.
Ég er að byrja á spennandi process sem ég af og til deili með ykkur.....
Tók myndir af myndinni, set nokkrar inn. Er held ég, byrjuð á verki .....
Kærleikur og Ljós á netheim.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 13:11 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (16)
Ég leita eftir stað til að gráta
22.5.2008 | 16:14
Tími varla að skrifa aðra færslu og fara frá þeirri fyrri sem er afmælisdagurinn minn með öllum fallegu kveðjunum ykkar til mín.
En lífið heldur áfram eins og ekkert hafi í skorist. Ég holaði mér í skúffuna af feimni fyrir allri athyglinni á daginn minn, var þar í bláu sokkunum mínum, sem ég horfði á verða gula og hvíta til skiptis, til loka dags, fór þá úr skúffunni og las áfram skilaboðin fallegu.
Lífið heldur áfram, dagarnir koma einn af öðrum og áframhaldandi vinna við að rækta sig til betri manneskju í dag en ég var í gær.
Ég get nú ekki klappað mér á öxlina fyrir árangur morgunsins sem var í lakara laginu. Ég vaknaði að venju kl sex, fór í bað og hugleiddi. Það var gott eins og alla daga. Vakti svo stelpurnar, Sólina og barnabarnið okkar litla hana Lilju yndislegu sem við erum svo heppin að hafa um tíma.
Siggi sonur er hérna líka þessa dagana hann er á milli húsnæða blessaður.
Stelpurnar voru lengi að öllu og þurftu mikið að tala saman.
Ég var hin rólegasta, gaf dýrunum, sumum, og þær sumum. Ég þurfti að segja þeim að gera hvern minnsta hlut af því sem gera þurfti, ekkert kom einhvernvegin að sjálfum sér.
Þegar klukkan var nokkrar mínútur í átta, voru þær ekki tilbúnar, þá kom reykur upp úr höfðinu á gömlu konunni, og hún þrumaði allt mögulegt í litlu barnaandlitinn, og fannst ekkert athugavert við það !
Hún þrumaði yfir barnshöfðunum alla leið í bílinn, leifði kyrrðinni ekki komast að því þá þyrfti hún að horfast í augu við atburðinn á meðan á honum stóð, og það er verst. Hún kvaddi með áminningar og kossa.
Dagurinn leið og upp kom : aðgát skal höfð í nærveru sálar, púuuha það var ekki notaleg tilfinning.
Ennþá einu sinni brást hún of harkalega við, sagði égið við konuna.
Þetta kom upp í hugann af og til, og augljóst var að biðjast varð fyrirgefningar á þessum hamagangi.
Égið kallaði dömurnar á fund við heimkomuna, beðist var innilegrar afsökunar, og í sameiningu fundin lausn til að koma í veg fyrir svona hamagang aftur á annasömum morgnum.
Sem betur fer fyrir konuna voru dömurnar fljótar að fyrirgefa þessari bráðu kellu sem svo oft hefur dottið um hamaganginn í sér, og notar það mesta af tíma sínum í þessu lífi til að temja þetta indæla skap sem kemur oft að gagni, en er líka oft til trafala.
Núna erum við heima og það er ósköp notalegt. Gunni er að fara á eitthvað Gala eitthvað í Kaupmannahöfn í kvöld, Siggi ætlar lika til Kaupmannahafnar svo ég og skotturnar verðum heima.
Ég ætla að hafa það notalegt með þeim og ekki má gleyma Lappa sem elskar án skilyrða.
Ég fékk bók í afmælisgjöf frá skólanum, sem ég keypti sjálf. Bókin er skrifuð af alveg frábærum dönskum rithöfundi sem heitir Helle Helle. Bólin heitir : Niður til hundanna. Ég byrjaði að lesa í gærkveldi, og ég fann að þetta verður ein af þeim perlum sem ég les aftur og aftur og nýt hverrar setningar sem er hrein og tær fegurð fyrir hugann
Bókin byrjar svona : Ég leita eftir stað til að gráta !!!
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (17)
Litfríð og ljóshærð og heitir Sigrún Sól
19.5.2008 | 19:10
Hún er ástin mín fallega....
Hún er sumarblómið mitt sem kom um sumarið í fallega brakandi sól
Við gáfum henni nafnið Sól, því hún með sitt fallega vesen kallaði á nafnið sitt.
Hún er yndið mitt á morgnana, þegar við vöknum saman , fáum okkur morgunmat og ræðum lífið og tilveruna á meðan morgunverkin eru kláruð
Hún er yndið mitt á kvöldin þegar ég fæ að halda í litlu höndina hennar og finna hitann og orkuna streyma frá henni yfir til mín
Hún er yndið mitt alla daga, með því að vera eins og lítill álfur á blómi með brosið sitt fallega
og vitund sína sem vil að
allir séu góðir við alla,
allir elski alla
allir komi öllum við.
Hún safnar öllu, og fyrir henni er allt lifandi,
engu má henda.
Hún safnar stráum.
Hún safnar steinum.
Hún safnar kuðungum.
Hún safnar pappír.
Hún safnar blómum
Hún safnar öllu sem hugsast getur.
Þegar hún varð 10 ára óskaði hún sér blóma í afmælisgjöf.
Hún á núna fullt af blómumHún ættleiddi órangutanga unga í haust, þar notar hún hluta af vasapeningunum sínum mánaðarlega. Hún fylgist með litla unganum sínum Kesi á heimsíðunni hjá Nysru Menteng í regnskóginum stóra.
hún var svo agnar smá þegar hún kom í heiminn.
Þó maður sé smár, getur maður fyllt heiminn með Kærleika, Yndi, Fegurð...........
Það gerir hún
Hún saumar föt og töskur handa litlu stúlkunum okkar í Afríku og Tælandi.
Ég er svo innilega þakklát fyrir þessa litlu stúlku sem er smátt og smátt að verða unglingur.
Ég er þakklát fyrir allt það sem hún hefur kennt mér á bara þessum fáu árum sem hún hefur verið hjá okkur.
Ég held að maður getir aldrei sagt nógu oft við börnin sín og um börnin sín hversu mikilvæg þau eru manni og hversu heitt þau eru elskuð.....
Hún Sigrún Sól Gunnarsdóttir Gunnarsson
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (54)
þegar fortíðin kemur í lit....
16.5.2008 | 16:28
Það gerðist svolítið svo gott í dag, ég fann fortíðina, og er svo lánsöm að ég get horft á hana og skoðað í krók og kima, rannsakað og séð hvað hafi gerst sem gerði það sem gerðist.
Kannski gerðist ekkert en sennilega hefur eitthvað gerst inni í mér sem hefur áhrif á vitund mína í dag,
kannski !
Ég hef fundið í nokkurn tíma að leitin að fortíðinni er nauðsynleg
Líkaminn minn gefur mér merki eftir merki þar sem undirmeðvitundin mín er að segja mér að þarna og þarna liggi sársauki. Kannski út frá vanrækslu, sennilega hefur hitt og þetta haft meiri áhuga minn en þessi kroppur sem er ekki ég, en þegar vel er skoðað er gott að muna að hann lánar sig til mín á meðan ég er hér.
Það sem maður lánar passar maður upp á.
Þegar ég var lítil telpa, bara tólf ára snót í sveitinni, kom kvikmyndafólk frá Danmörku og gerði hálf tíma kvikmynd um þessa litlu sveitasnót.
Snótin hoppaði og skoppaði yfir móa og mýri og lét kvikmynda sig í bak og fyrir.
Hún skildi ekkert í þessu framandi tungumáli sem var talað í kringum hana í nokkrar vikur en brosti bara sínu blíðasta til þessa dásamlega fólks sem var alltaf að kvikmynda hana.
Í dag er tungumálið hennar og það væri gaman að hlusta til baka og skilja það sem sagt var með þeim skilningi sem er hennar í dag.
Í dag skrifaði ég sem fullorðin kona sem í næstu viku verður ennþá meira fullorðin til Danmarks Radio og spurði góða konu um myndina , kl var 10.00.
Klukkan 10.09 fékk ég netpóst, þar sem hún tjáði mér að hún hefði fundið fortíðina mína í lit og ég gæti fengið hana í pósti á næstu dögum !
Það verður skrítnara en skrítið að sitja og skoða sig að framan og aftan í hinu og þessu lífi sem ég lifði og gerði þegar ég var aðeins 12 ára.
Það sendur þetta um myndina:
Beskrivelsen lyder: Børneudsendelse. Om den 12-årige pige Steinunn, der bor i den lille by Vik på Islands sydkyst. Der gives et indblik i hendes dagligdag, idet man ser hende passe et barn, drikke kaffe i hjemmet, på ridetur med sine kammerater i den storslåede natur, på fisketur med sin far, svømme i et svømmebassin, spille plader på sit værelse og på cykeludflugt med sine kammerater. Fåreskilning, hvor børn og voksne går rundt i en centralt beliggende fold og fanger deres øremærkede får, de kommes over i beliggende folde, og drives hjem af ryttere og heste .
Það er ekkert annað en gjöf að hafa möguleika á að fara svona aftur í tímann og skoða sig þegar maður var næstum því nýfallin snjór.
Fara til baka og sameina sig þessari stelpu sem var ekkert annað en yndisleg.
Taka það besta frá fortíðinni og sameina því nútíðinni, það ætla ég að gera við þessa gjöf.
Núna er föstudagur og sólin skín á mig og okkur hérna í sveitinni.
Ég ætla að vinna í garðinum mínum alla helgina og mánudag og þriðjudag líka.
Megi sólin skína á ykkur líka
Bloggar | Breytt s.d. kl. 21:11 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (22)
Hið stóra samhengi
9.5.2008 | 09:52
skil allt
heyri allt
og skynja allt,
því í dag er ég í þakklát ,
sæl og full af lífsgleði.
Það eru ekki alltaf svona dagar, en að vakna við fuglasöng, heyra ungana tísta í hreiðrinu í þakskegginu og kalla á mömmu og pabba og vilja mat mat og mat.
Vera í fríi til bara að vera
Hugleiddi, og það var gott, þó svo að lífið í garðinum mínum hafi kallað á athyglina mína oft.
Fékk mér kaffi, við eigum svo góða kaffivél, þá bestu í heimi, sem gerir allt sem í hennar valdi stendur til að við fáum góða byrjun á deginum.
Lappi, Múmin og ég fórum í morgungöngu, sólin skein á okkur, við týndum gleymdu mér ekki ástin mín til að setja á eldhúsborðið og gera fallegt fallegra.
Ég bað blómálfana um leyfi til að fá blómin með heim, þeir kinkuðu kolli.
Hvernig væri heimurinn ef við öll vöknuðum svona og værum meðvituð um þá dýrð sem umlykur okkur, látum Ljósið streyma á líf okkar í staðin fyrir hin myrku öfl sem vilja svo mikið ráða yfir okkur og hugsunum okkar.
Það er samt svo skrítið að hugsa til þess að við höfum alltaf val, val um hvernig við viljum
Vakna
Sofna
Tala
Hugsa
Heyra
Skynja
Lifa
Allt hangir saman, það varð ég svo vör við í gær.
Mér er illt í hnjánum, svo illt að stundum er erfitt að ganga, sitja og standa. En í gær sá ég með hjálp, hvaðan það kemur og hvers vegna og hvað ég get gert.
Er það ekki ótrúlegt hvað hlutirnir geta verið augljósir þegar við verðum meðvituð og fókuserum á það sem er sárt eða erfitt, gefum því þá athygli loving space sem þörf er á og þá kemur hjálpin frá sjálfinu..
Ég veit og finn að helgin verður okkur góð hérna á Kirkebakken við kirkjuna í Lejre.
Við verðum með fullt af börnum, gestabörn sem ætla að vera með okkur og njóta veðursins.
Við fengum fleiri dýr í vikunni, þetta er alveg næstum því að verða dýragarður.
Ég veit að hestar eru komnir langt í þróuninni og fílar líka, en ég hef ekki aðstöðu fyrir svona stór dýr. En ég er með svo mörg önnur dýr sem veita okkur gleði og ánægju.
Þegar við förum í göngutúr heilsum við upp á íslensku hestana sem eru í girðingum hérna um allt, ég set nebbann minn inn í feldinn og er í augnablik á Íslandi í barninu í Vík í Mýrdal og heyri kríuna garga og vara við hættunni í sér, heyri öldurnar kallast á við sandinn og steinana, en þetta er bara í augnablik, en nóg til að ég sjái samhengið með öllu,
allt er eitt
Nútíð,
Þátíð
Framtíð,
Það eru bara við sem skynjum ekki það sem er, ennþá..
Það er svo margt að vera hamingjusamur yfir, það þarf ekki ferðalög, peninga, frægð, veislur, það eru til dæmis augnablik eins og á þessari mynd sem gera mig hamingjusama
Bloggar | Breytt s.d. kl. 11:20 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (28)
Hafið þið haft svipaðar hugsanir sem þið viljið deila með mér ?
7.5.2008 | 11:02


Eða þú hefur nú alltaf verið svo ábyrgðarlaus Eða þú vildir alltaf ráða í öllum leikjum og þannig gæti ég haldið áfram og áfram. Það er eins og maður þróist aldrei frá einum stað til annars. Ég hef búið hérna úti í 16 ár og margt hefur gerst á þessum árum. En þegar ég kem heim og hitti sumt fólk þá er eins og maður þurfi að hoppa til baka í spor sem maður var í fyrir mörgum árum svo að hlutirnir getir verið í lagi. Kannski er þetta misskilningur á báða bóga hugsa ég núna, að ég haldi að ég þurfi að vera eins og einu sinni og hinn aðilinn haldi það líka og til að við höldum að við getum mæst á góðum grundvelli, þá hoppum við bæði til baka í fortíðina og mætumst þar sem hvorugur aðilinn er í dag. Þetta er ansi sorglegt því þá eru samskiptin ekki heil hjá hvorugum aðilanum. Ég á oft erfitt með þetta sérstaklega ef ég hitti viðkomandi sjaldan, og þá vill maður að samveran verði sem best fyrir alla aðila, og fer í hlutverk sem maður heldur að passi fyrir alla. Ég gæti svosem sagt , heyrðu góða/góði, ég á erfitt með þegar þú talar svona við mig, ég er bara ekki á þessum stað meira og þú verður að virða það ef við eigum að geta haldið samskiptunum áfram !!! Kannski færi allt í klessu, og kannski er það bara alveg í lagi, því vináttan er á einhvern hátt ekki sú sama og var, eða hvað? Hvað er vinátta, er það ekki að geta sagt það sem manni býr í brjóti, og að það gerir ekkert til að vera margir, eða ein með þessum og hin með öðrum, að mæta öllum þar sem þeir eru, og að vinátta sé ekki svo eingingjörn að allir þurfi einhvernvegin að virða það að maður breytist, er það ekki algjört aukaatriði þegar heildin er skoðuð. Að það sé gott að einhver muni mann eins og maður var og minni mann á þann hluta af manni sem er líka mikilvægt að muna, þekkja og elska. Kannski er hitt einhver hégómi sem maður getur brosað að, því þarna er einhver stoltatilfinning sem vil komast að, en hún stolta hefur bara ekkert að segja, en það er gott að hún kemur upp og sýnir sig og lætur mig skrifa þetta blogg vonandi til gagns fyrir einhverja aðra en mig.Svona geta hugsanir verið eins og rennibraut, frá einum stað til annars og þó svo ekkert eitt svar sé réttara en annað þá er þetta einhvernvegin svo magnað hvernig maður getur farið frá einni skoðun til annarrar, flutt sig smá til betri skilnings. Þá dettur mér í hug þegar sagt er hann/hún stendur alltaf fast á skoðunum sínum, henni getur maður treyst !!!! Er ekki algjört bull að segja svona? Hvar er þá þroskinn sem við þurfum að ganga í gegnum, þroskinn sem kemur einmitt á því að skipta um skoðun, að sjá hlutina í nýju ljósi sem gerir að við sjáum að það sem okkur fannst í gær stenst ekki, því við höfum flutt okkur frá þeim stað og hingað, þannig hefur lífið á jörðinni þróast, svona gæti ég haldið áfram í allan dag en ég ætla út núna og setja olíu á síðustu stólana. Megir vera friður í hjartanu ykkar.

Bloggar | Breytt s.d. kl. 11:38 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (13)
Ljósmyndir frá Fjóni
5.5.2008 | 12:14
Þvílíkt veður hefur verið alla helgina og líka í dag. Ég er í smá pásu frá að þvo og pússa pússa nússa tússa garðhúsgögnin mín sem eru orðin grá og litlaus til að verða fagur olíuborinn tré húsgögn. Í garðinum mínum er 35 stiga hiti !
Við fórum til Fjónar og það var gaman. Ég er ansi mikið í frí þessa viku og það verður heitara seinni parts viku, þannig að það er garðvinna á prógramminu.
Set inn útvaldar myndir frá helginni og ef þið viljið sjá meira á er hægt að sjá hérna
barnaland.
AlheimsLjós til ykkar allra kæru
Bloggar | Breytt s.d. kl. 13:15 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (18)
Ég horfði á himininn
3.5.2008 | 11:54
Bloggar | Breytt s.d. kl. 13:05 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (12)
stundum kemur eldurinn og allt er öðruvísi á eftir
1.5.2008 | 15:52
Núna er frídagur og Sól, Lilja og ég erum heima. Við fórum í bíó til Hróarskeldu í morgun og var það gaman. Núna sit ég í sófanum, drekk kaffi og ætla að blogga smá. Síðasti sólarhringur hefur verið viðburðarríkur og það þýðir lærdómsríkur.
Gunni var að vinna að veislu í gær og dag.
Í gær var ég í vinnunni og það var ferlega mikið að gera. Þegar hann náði í mig sem hann gerði í gær því hann þurfti að nota bílinn til að kaupa inn fyrir veislurnar. (ein veisla í dag og önnur á morgun) Ég sá fyrir mér afslöppun þegar ég kæmi heim, enda dauðþreytt eftir þennan annasama dag. Lilja litla barnabarnið kom heim til okkar eftir skóladagheimilið og Sólin eftir klúbbinn. Ég tók til og svo horfðum við á mynd með vöfflum og cider. Huggulegt og lofaði vel.
Gunni kom svo heim og fór í gang með veisluna. Við vorum samt bæði dauð þreytt og ákváðum að fara snemma að sofa.
Við vorum ekki búinn að liggja lengi þegar síminn hringdi og var það Sigyn dóttir alveg miður sín, við héldum að þetta væri eitt að mörgum lygasögum sem hún er svo dugleg að nota á okkur og alla. Hún hefur ótrúlegt ímyndunarafl og hefur svo oft logið okkur langt yfir hausinn bæði sinn og minn og okkar.
Það sem hún segir er
Gunni það kviknaði í veitingastaðnum
Gunni segir aftur og aftur, enda vorum við bæði á milli svefns og vöku
: ertu ekki að ljúga Sigyn ?
Það sem fær okkur til að trúa henni og stífna upp er að hún segir
: ég verð að rjúka, það er einhver sem þarf að tala við mig !
Við liggjum svo þarna og vitum ekkert hvað við eigum að gera eða segja.
Sigyn og Albert maðurinn hennar keyptu þennan veitingastað fyrir stuttu og eru bara búinn að hafa opið í nokkrar vikur. Fyrir þessar þrjár vikur eru þau búinn að nota mánuð í að þrífa og setja staðinn í stand. Þetta er yndislegur staður á norður Sálandi alveg við ströndina.
Eftir smá stund hringjum við í Sigyn og segir hún okkur að það sé allt fullt af slökkviliðsmönnum og löggum og ég veit ekki hvað. Hún er að sjálfsögðu alveg miður sín , en það hefði getað farið verr vorum við sammála um. Eldhúsið er algjörlega ónýtt og allt er fullt af sóti, það verður verk að vinna fyrir þau blessunin bæði tvö. Það munaði ekki miklu að illa færi, án þess að ég vilji fara inn í smáatriði. Við vorum í sambandi þar til seint um kvöldið, og snemma í morgun.
Núna eru þau bæði í sjokki og þannig ,sem er alveg hægt að skilja.
Ég finn svo mikið til með þeim, þau hafa verið svo dugleg að berjast áfram með veitingastaðinn (söstjarnan) og ég vildi að ég gæti gert eitthvað til að láta hlutina verða öðruvísi, en sum lífsreinsla er manns eigin og mikilvæg í þeirri þróun sem maður er í, og því verður ekki breitt.
Gunni fór svo með veisluna áðan, fullan bíl af mat og hvað gerist annað en að bíllinn bilar á leiðinni langt uppi í sveit. Þetta er að sjálfsögðu ekki nein krísa en truflar gang mála ansi mikið. Hann er með aðra veislu á morgun og hvað gerum við þá bíllaus.
Á morgun ætlum við til Fjónar til vina okkar og Sól ætlar að vera þar yfir helgina á sveitabænum þeirra með börnunum þeirra og dýrum Liljan barnabarnið okkar ætlaði að koma með. Á leiðinni heim ætluðum við, Gunni, Lilja og ég að koma við á veitingastaðnum hjá Sigyn og Albert og skila Lilju til þeirra. Það verður sennilega ekkert farið nema hér í kringum kotið okkar. Svona fer einhvernvegin allt úr skorðum á augnabliki hjá okkur og þeim.
Það er best að skoða þetta án tilfinninga þó svo það sé ekkert auðvelt, en spurningin er hvað er hægt að fá út úr svona lífsreynslu sem er að lenda í brennudívunum. Hvernig fær maður það besta út úr því ? Það er mikilvægt að skoða það, því annars gerast hlutir aftur og aftur þar til maður hefur lært.
Þekkið þið ekki dæmi þess að það er eins og maður lendi í hinu og þessu endalaust og fyrst þegar maður fer að vera meðvitaður um þann lærdóm sem fengist getur af þessari lífsreynslu þá er eins og hlutirnir falli í ró.
Sem dæmi vil ég nefna peningamál frá okkar daglega lífi hérna í Lejre.
Gunni og ég erum/vorum ekki þau mest skipulögðu í peningamálum. Við höfum verið ansi laus í þeim efnum, heldur viljað gera það sem hugurinn vil, til dæmis vinna að myndlist sem gefur lítið í aðra hönd, það er það sem ég hef gert og svo taka hinum ýmsu spennandi atvinnumöguleikum sem hafa verið ansi ostabíl sem Gunni hefur gert. Þetta kostaði okkur ansi mikið óöryggi í peningamálum. Við lentum í hinu og þessu sem ég nenni ekkert að vera að telja upp, en sem gerði að við vorum hreinlega með allt á hakanum, enda fannst okkur peningamál ekki eins mikilvæg og annað sem við vorum að fást við.
Auðvitað er það ekki eins mikilvægt, en við vorum farin að nota ansi mikla orku í það sem við vildum ekki nota orku í, peningaáhyggjur Það þarf að vera jafnvægi í öllu annars verður ójafnvægi, svona einfalt er það.
Þannig að við fórum að ræða þessi mál, og sáum að þarna höfðum við eitthvað sem við yrðum að setja fókus á og takast á við ef við ætluðum ekki að vera í þessu basli alla tíð.
Við gerðum það, og tókum þetta verkefni mjög alvarlega, lærðum af reynslunni. Núna er harmoni á þessum fleti og ég vona svo sannarlega að svo verði áfram. Ég veit að svo er á meðan við notum þann fókus sem skal.
Þetta er eitt af þeim verkefnum sem við áttum að læra á.
Þessi eilífu peningaáföll. Núna þurfa Sigyn og Albert að skoða hvað það er sem þau geta lært af þessari lífsreynslu sem þau upplifðu í nótt. Sjá allt sem möguleika, en ekki erfiðleika. Hægara sagt en gert, en besta leiðin til að takast á við áföll og lifa þau af.
Núna ætla ég að taka til eftir Gunna minn, eldhúsið er í rúst eftir matseldina hjá honum. Sigrún sól alveg miður sín yfir að komast ekki til Fjónar og og og og....
Lífið er bæði kallt og heitt og allt þar á milli, en í því er fegurðinn frá ólíkum sjónarhornum og ólíkum hugsunum sem er samhljómi lífsins, verður eins og hafið sem mótast af dropum.
Blessi ykkur öll héðan frá Lejre
Bloggar | Breytt s.d. kl. 16:02 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (16)
þegar allt fer í hring og maður mætir sér aftur í hringnum....
26.4.2008 | 11:22
Stundum er gott og skrítið þegar hlutirnir fara í eigin hring með eigin ákvörðunum og stefnu án þess að maður geti nokkuð gert til að hafa það öðruvísi. Þannig er dagurinn í dag og dagurinn í gær og þegar ég gerði mér grein fyrir því varð ég skúffuð, svekkt, leið og skúffuð, svekkt og leið og allt. Setti allt á annan endann eða þannig. Upp kom gamalt munstur sem minnir á sig af og til , bara til að minna á sig og benda mér á hvar þarf að taka til höndunum. Ég var skúffuð lengi, rökræddi við Gunna og aðra, en það var engin alvöru rökfræðsla, heldur máttlaus tilfinning um máttleysi mitt og skúffelsi sem ég setti í hin ýmsu orð til að gera það litríkara en það í raun var. Ég fékk þó samræðurnar upp á yfirborðið og út frá því komu hinar ýmsu skoðanir sem ég þurfti á að halda til að finna tilgang með öllu þessu sem mér finnst svo mikilvægt. Stundum er eins og það þurfi að setja allar tilfinningarnar á spilaborðið til að fá fram því sem er kjarninn í þeim hugsunum sem maður hefur.
Ég á ekki alltaf jafn auðvelt með að vinna með öðrum því ég er alltaf mörgum árum á öðrum stað og á erfitt með þann hraða sem aðrir eru á. Þetta hefur alltaf verið svona, en þegar maður vinnur einn með sjálfum sér kemur það ekkert sérstaklega mikið fram. Sem myndlistarmaður hefur það reynst mér ofsalega vel. Ég hef unnið sóló eða verið með í verkefnum þar sem ég hef kannski ekki alltaf orðið var við að allir eru á sitthvoru rólinu. Núna vinn ég í andlegum grúppum og þar finn ég rosalega fyrir þessum ólíka hraða og þörf fyrir að allt eigi að gerast fyrir mörgum árum. Þetta er holt fyrir mig, svo holt því þar veit ég hvar ég þarf að vinna með mig og í því umhverfi sem það kemur best fram er gott fyrir mig að vera. Ég vil helst vinna ein því þar er bara ég og engir áresktrar og ekkert sem truflar þær ákvarðanir sem mér finnst bestar og þann hraða sem mér finnst passa hverju sinni.
Á heimilinu eru að sjálfsögðu árekstrar sem fylgja því að vera svo nálægt sínum nánustu, en þar eru hlutirnir á öðru plani en þegar um annað samstarfsfólk er að ræða. Þar sem allt sem gert er, er í sjálfboðavinnu, engin laun sem hægt er að benda á með vísifingri. Nei bara áhugi og þörf fyrir að heimurinn verði betri en hann er. Þar þarf að prufa sig áfram og reyna að finna þær leiðri sem eru réttar fyrir manni en engin vissa. Þetta er ekki átakalaust, en í því er lærdómurinn fólgin. Ég er sannfærð um að grúppuvinna er stærsti andlegi lærdómurinn hjá hverri manneskju.
Ég byrjaði að vinna í andlegum grúppum fyrir 5 árum og það hefur verið allt annað en átakalaust. Fyrir það fyrsta eru flestir á ólíkum stað en ég í sínu persónulega lífi, það er oftast bara þessi andlegi áhugi sem er sameiginlegur. Þetta hefur reynst mér erfitt. sérstaklega vegna þess að ég hef haft sterkan vinahóp innan myndlistageirans. En engin af þeim hefur áhuga á því andlega á sama hátt og ég hef. Þess vegna hefur þörf mín fyrir að fara þessa braut oft verið á sterkum vogarskálum, á milli þess að vilja vera með til að þróa og hjálpa heiminum með hugleiðslu og andlegri vinnu og að vinna fyrir egóið mitt og sýna þau verk sem ég hef skapað, bæði ein og með öðrum. Sá heimur er heimur sem ég þekkti best.
Það er svo mikið að góðum myndlistarmönnum í heiminum að ég sá fljótt að það kæmi ekkert skarð í hópinn þó ég einbeitti mér meira að því að boða út Kærleika til dýra og mannkyns. Boðskap um Eitt líf, Eitt Mannkyn, Eina jörð.Skapa Kærleika og heilun á milli manna og dýra.
Þó við höldum oft að það séu svo margir að gera þetta og það sé nóg, þá er það ekki rétt. Það eru margir en í hlutfalli við hversu mörg við erum á jörðinni þá er hlutfallið lítið sem markvisst vinnur að hinu Guðdómlega. Ef við skoðum ástandið í heiminum í dag, getur hver maður sé þá geysilegu þörf sem er á allri þeirri hjálp sem er möguleg til að við komumst sem mannkyn á hærra vitundarstig, og bara þegar við komumst þangað verður ástandið betra fyrir okkur sem mannkyn, dýraríkið og Jörðina í heild sinni með öllu því lífi sem þar er.
Þannig að ég hef helgað mig þeirri vinnu 100000 prósent, og finnst ekkert í heiminum mikilvægara. Það sem gerir muninn á þeirri vinnu og því að vinna sem myndlistamaður að í þessari vinnu (ég lít á þetta sem vinnu) þá er ekki neinn beinn respons til baka fyrir því sem maður leggur í þetta eins og með myndlistina þar sem maður baðar sig í aðdáunarljósinu og egóinu á opnunum og því sem fylgir að vera myndlistarmaður sem er að sjálfsögðu líka erfitt á köflum.
Þetta eru tvær þarfir sem ég í raun slæst við, hin innri þörf og hin ytri þörf. Þannig verður það örugglega oft í framtíðinni, en það er svo skrítið að það er einhvernvegin engin leið til baka. Þó svo að egóið hoppi upp af og til og vilji vera með og leika sér, og auðvitað gefi ég því líka sitt pláss þá er það sú hin innri þörf svo mikilvæg og sterk að það er engin leið að stoppa það.
Fundurinn sem átti að vera í dag, var aflýst vegna veikinda, og það er bara gott. Þess vegna hef ég haft tíma til að drekka tvo bolla af góðu kaffi með skummandi mjólk, gengið um í garðinum mínum og séð allt sem er að springa út og heyrt fuglana syngja Skrifað þetta blogg, heimsótt nokkur af ykkur bloggvinum Núna hef ég langan dag fyrir höndum þar sem ég get hugleitt í sól og hita í garðinum mínum. Kannski farið í göngutúr með Lappa á ströndina. Farið með Gunna að ná í býflugurnar sem hann er að fara að kaupa eða bara lesið í bókinni sem ég var að fá The Animal Kingdom, A spiritual perspective....
Kærleikur og friður veri með ykkur öllum um helgina kæru bloggvinir og Gleðilegt sumar til ykkar héðan frá 20 stiga hita

Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (24)
sit í eldflaug alla daga
24.4.2008 | 13:33
Kæru öll elskuleg.Þetta verður stutt og laggott. Það er svo mikið að gera þessa dagana. Við erum að leggja síðustu hönd á myndina um skólann, það er mjög spennandi en setur allt úr skorðum í kennslu og öðru. Var á Hugleiðslu ráðstefnu um síðustu helgi. Þar komu margar grúppur frá Skandinavíu og hugleidduu saman á Wesak hátíðinni. Þetta er í fyrsta sinn sem þetta er haldið hérna Í Skandinavíu. Stefnt er að því að halda aftur svona mót á næsta ári en þá á að fá ennþá fleiri með. Auðvitað bauð ég mig fram í að standa fyrir þessu á næsta ári ástamt nokkrum öðrum. Það er hvort sem er svo lítið að gera að mér munar ekkert um þetta.hahha
Um helgina hittist The One Earth Group (við sem erum í kjarnanum) hérna heima hjá mér og Gunna og verðum með heilan dag þar sem við vinnum að ýmsu sem þarf að klára fyrir ferðina til Washington í júní. Á morgun koma gestir í mat eftir vinnu........Þið verðið að fyrirgefa að ég er ekkert að gera mig sýnilega á síðunum ykkar, kíki af og til en er ekkert að kvitta því það er í pásum frá lífinu í hinum raunverulega heimi. ENNN ég fylgist með ykkur.Fallegt video fylgir með hérna.Ætla að þrífa húsið fyrir annasama helgi.Blessi ykkur öll á fallegum Fimmtudegi.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (15)