Færsluflokkur: Bloggar
Kína er ekki bara í hræðilegum málum um mannréttindi, dýrin fá líka sitt af mannvonskunni.
11.2.2008 | 11:23
Oftast skrifa ég um það sem ég veit að vekur upp fallega orku í mér og þeim sem lesa bloggið mitt, því ég veit að það er ekki of oft sem við fáum þetta energy í okkur. En það er líka mikilvægt að vera meðvitaður um það sem gerist í kringum okkur. Þar er sumt mikilvægara en annað fyrir hvert okkar. En þannig er það, Dýrin eru það sem fyllir hjartað mitt, og þar finnst mér mikilvægt að hjálpa , þar sem ég get.
Stundum get ég ekki beðið eftir að við sem mannkyn komumst á aðeins hærra vitundarstig.
Sumar manneskjur eru ekki komin mikið lengra í þróuninni en dýr, en eru með kunnáttu til að gera óhuggulega hluti. Fyrir nokkru skrifaði ég í einu af bloggunum mínum um villihunda í Kína sem væru píndir á hræðilegasta hátt fyrir pelsbransann. Sonur minn sendi mér vídeóið í morgun, ég gat ekki séð það allt. Vissi svo sem að ég myndi ekki þola að sjá það, enda var þetta eins hræðilegt og ég hafði ímyndað mér. Hversu lengi eiga þessi blessuð dýr að þjást fyrir okkur ? Ég veit að hluti af þessu er það sem kallast karma. Fyrr á öldum höfðum við sem manneskjur ekki sjens í baráttunni við dýrin við vorum fæða þeirra í langan tíma . Við höfum núna í nokkrar aldir pínt og plagað blessuð dýrin, en er ekki tími til komin að við tökum höndum saman og hjálpum þessum yngri bræðrum okkar og systrum í þeirra þróun, með öllum þeim kærleika sem við höfum í okkur.
Við erum lítill hópur sem gerum okkar besta sem við getum til að hjálpa dýrunum, á þann hátt sem við teljum mikilvægan. Sjá: The One Earth Group
Skráið ykkur með okkur til að hjálpa á þann hátt sem allir geta verið með
Ég bið, hugum að þeirri meðferð sem dýrin fá, allt í kringum okkur.
Verum meðvitum um það hvað við kaupum, því stundum styðjum við það sem er slæmt með því að kaupa án þess að hugsa !
Ég vara við óhuggulegu videoi ! en við getum ekki lokað augunum
Pledge to go fur-free at PETA.org
Bloggar | Breytt s.d. kl. 17:05 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (13)
stórar myndir og lítill teksti....
9.2.2008 | 21:06
Bloggleti, eða ekki ! Stundum er ástæða fyrir bloggleti, mín ástæða er hugurinn sem veit ekki alveg hvað hann vill og hverju hann nennir. Hvað er best að nota tímann í og hvað ekki. Er að vinna að málum sem hafa kallað á athygli mína í langan tíma, það er erfitt, en nauðsynlegt. Hef gleymt hluta af sjálfri mér of lengi, en vinn að því núna hörðum höndum. Í þeim ferli, koma hugsanir úr fortíðinni, og blanda sér nútíðinni sem setur gamlar tilfinningar fram og erfitt er fyrir mig að ráða við, skilja aftur, og skoða þar sem ég er núna. Ég verð óörugg, og vil helst flýja í gamalt far sem ég þekki og veit hvernig hljómar. Þó veit ég að það er ekki aftur snúið, því þetta er næsta skref, ekkert annað skref get ég tekið en þetta. Á morgun kemur nýr dagur, þá verður hugurinn nær nýjum tóni en hann var í gær og í dag.
Á morgun vil ég taka það besta frá fortíðinni, sem ég get notað í framtíðinni, og nota það í núinu.
Ljós og Kærleikur til ykkar allra.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 22:25 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (14)
bloggleti
3.2.2008 | 15:28
Öskudagur. Gunni og Sól fóru á Bygaarden hérna við hliðina að slá tunnuna með namminu í.
Ég sit og er að skrifa hitt og þetta. Aðallega er ég að vinna að hugleiðslu sem ég er að þýða fyrir grúppuna sem ég er í. Ákvað að skrifa nokkur orð, er annars ekkert í bloggstuði þessa dagana.
Á laugardaginn var ég í skólanum mínum með Sól og hinum kennurum og þeirra börnum. Við vorum að gera tilraun með að vinna með Rakuleir og gler saman. Það verður spennandi þegar við brennum alla skúlptúrana í mars, apríl, þegar það fer að hlýna meira.
Eins og sum ykkar vita sennilega þá eigum við heima í litlum bæ rétt utan við Kaupmannahöfn. Á hverju ári þegar það er fastelvan þá hittast allir sem búa hérna í þessu samfélagi í kringum mig, á bóndabænum hérna við hliðina á okkur og bæði börn og fullorðnir eru í búningum. Það eru borðaðar heimabakaðar bollur og allt mjög gaman.
Þar sem við búum er eiginlega lítill bær í stórum bæ. Því þetta er húsaþyrping sem er eins og bær í bænum. Þessi litli bær er alveg óskaplega fallegur, mikið af gömlum húsum, sem er mjög sjarmerandi. Það eru kannski 50 hús. Við erum mjög ánægð að búa akkúrat hérna og akkúrat í þessu húsi, Emelíuhúsi Það er fallegt í kringum okkur, falleg náttúra. Stór skógur sem við förum oft í göngutúr í og svo falleg Lejreá sem er ca 2 mín. Gangur frá húsinu okkar. Þar er hægt að labba langan göngutúr meðfram ánni og inn í óbyggðir
Á hverju ári heldur Bygaarden Fastelavn fyrir börnin og fullorðna í bænum okkar í stóra bænum . Á Bygaarden búa nokkrar fjölskyldur saman sem við höfum ansi mikið samband við, enda stutt á milli, og þetta er frábært fólk. Þarna koma fl. og fl. með hverju árinu til að taka þátt í gamaninu.
Set inn myndir frá í dag, nokkrar frá veislunni og líka frá lífinu í glugganum mínum.
En eins og fyrr sagði er ég ferlega löt að blogga þessa dagana, enda nóg að gera í raunverulega lífinu. Megi Ljósið vera í ykkur
s
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (20)
Fyrr var oft í koti kátt..
30.1.2008 | 13:02
Laukarnir minna mig á mig og okkur. Laukarnir eiga heilt líf frá vori til fljótlega.
Þeir vaxa hægt og hægt, en þegar eldri tíminn er komin með blómið kíkjandi upp úr blaðinu gerist allt hratt. Það eina sem blómið gerir og skiptir öllu máli í lífi þess, er að teygja sig eftir Sólinni, eins og við gerum þegar við teygjum okkar í átt að Sálinni, viljum svo mikið skilja sjá og lifa í þeirri alsælu sem Sálinni fylgir. Sálin sem skilur allt, hefur lifað allt, og notar okkur til að safna reynslu í þessu lífi, eins og hún gerði í síðasta lífi og síðasta, síðasta lífi og hún gerir í næsta lífi og næsta næsta lífi..
Það er fallegt og er það sem lífið er um. Ekkert annað skiptir meira máli.
Fékk mail í morgun þar sem mér var bent á að 53 sæljón hafi fundist drepin á Galapagoseyjum. Þetta veldur mér sorg, og ég fyllist af skilningsleysi, hvað veldur að einhver hefur þörf fyrir að gera þetta, Sæljónin á Glapagoseyjum treysta manninum, eru ekki hrædd við manninn, og eru þar af leiðandi auðveld bráð. Sæljón eru á mörgum stöðum í útrýmingarhættu meðal annars eru Áströlsku Sæljónin og Sæljónin í Kaliforníu í útrýmingarhættu. Bæði vegna fæðuskorts í hafinu og eiturefna og ofveiði, líka af öðrum dýrum en manninum m.a af háhyrningum og hvíta hákarlinum sem líka eru í útrýmingarhættu, þeir hafa samt fæðubúr hjá blessuðum sæljónunum, sem berjast fyrir tilverurétti sínum við strendur Ameríku vegna þessa stóru rándýra. Einnig er sú fæða sem þeir nærast á m.a. mörgæsir í útrýmingarhættu.
Hvað erum við að gera við hana Móður Jörð.
Við mannkyn erum óttalega mikið verri en dýrin sem sjaldan drepa sér til ánægju, eins og gert er þarna á Glapagosaeyjum, þar sem dýralíf er friðað.
En upp með ermarnar og senda SæljónaSálinni allan þann Kærleika sem ég og þið hafið í ykkur til að hjálpa.
Það er skrítið hversu fáir trúa að mátt hugans, kannski trúa, en gefa sér ekki tíma til að nota máttinn til að hjálpa meðbræðrum okkar bæði mannkyni og líka hinum ríkjunum.
Við höfum hugarmátt, notum hann til hjálpar þeim sem á þurfa að halda.
Við erum of mikið hér og nú og söppum í gegnum lífið frá einni stöð til annarrar. Gott er að stoppa og hlusta og finna , hver getur hvar gert gagn til hjálpar, því það erum bara við, litlu ég og þú sem björgum jörðinni, björgum bræðrum okkar í Ísrael, Palestínu, Afríku.
Það þarf ekki annað er 5 mín á dag til að senda Ljós þangað sem innsæið segir að þörf sé á Ljósi, Kærleika og hjálp !
Sem dæmi um hversu mikilvæg við erum, þá var innsöfnun til barna í Afríku í danska sjónvarpinu um síðustu helgi. Það söfnuðust 67 milljónir dk. (ca 700 milljónir ísl) Kíkt var á hversu mikið hver dani gaf að meðaltali, , það voru 776 dkr á hvern dana, Einnig var gerð söfnun hjá alþingismönnum, þar var gefið að meðaltali 144 dkr. Þannig að við sem venjulegir borgarar vegum mikið meira en við gerum okkur grein fyrir. Það er ekki nóg að setja alla ábyrgð á ríkisstjórnina, við berum líka ábyrgð, líka eftir kosningar. Við berum líka ábyrgð á meiru en því sem gerist í kringum okkur, í bæjarfélaginu okkar, í landinu okkar....
Dagurinn í dag verður góður, ætla að þvo þvott, skúra gólf, planta nokkrum blómum, fara í göngutúr með Lappa, hugsa fallega...........drekke te, kaffi með vini mínum
Fyrr var oft í koti kátt....
Kærleikur og Ljós til ykkar allra kæru bloggvinir
Sæljónum slátrað á Galapagoseyjum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 13:15 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (18)
Það er frábært að hafa öll börnin okkar búandi hérna í DK
28.1.2008 | 19:00
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
Bloggar | Breytt s.d. kl. 15:27 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
ég drekk morgunkaffi með þeim, móðgun, reiði og stolti.
26.1.2008 | 07:41
Morguninn læðist inn og rigningin lemur þakið, ring ring ring... ég er með kaffið mitt með mjólkurskúmmið, og hef gluggann sem mest opin til að heyra sem mest.
Lappi minn liggur hérna við hliðina á mér yndislegur og tryggur eins og alltaf.
Það er skrítið þegar tilfinningin reiðin og móðgunin kemur og lætur vita af sér. Veit ekki alveg hvað ég á að gera við hana. Ég varð móðguð og reið við vin minn í gær, en veit þó að best er að hugsa frá sálinni, en ekki tilfinningunni, það er ekki auðvelt. Ég veit að hann gerir það besta sem hann getur, og er þar sem hann er, mér ber að virða það, og skilja. En mér ber líka að virða og skilja mínar tilfinningar , hvað er best að gera. Ég get látið sem ekkert sé, látið bréfið liggja og látið eins og það hafi aldrei borist mér, ég get svarað bréfinu með öllum þeim tilfinningum sem ég hef, ekkert að skafa undan, ég get beðið smá og látið reiðina og móðgunina slappa aðeins af og falla í ró, fagur fiskur í sjó, með rauða kúlu á maganum,... ég get hugsað frá sálinni, hvað hugsar sálin, hvað er best að gera út frá sálinni.
Ég fer úr tilfinningunni, horfi niður og skoða málið, án tilfinninga. Hvað liggur í því sem hann segir, vega og meta, án tilfinninga. Er í raun mikilvægt það sem hann segir, eru það ekki bara orð sem innibera eitthvað sem vekur tilfinningar til lífs í mér, sem alltaf sveima um mig og bíða eftir að fá að koma fram í vitund mína, bíða eftir tækifærum eins og þessum, sem koma aftur og aftur..
Hann hefur sínar ástæður fyrir því sem hann gerirsegiroghugsar, ástæður sem hann sennilega þarf einhveratíma að takast á við og skoða, ennnnn það er ekki mitt vandamál. Mitt vandamál er hvernig ég bregst við. Hvað í mér verður móðgað, og reitt, hvað í mér þarf ég að skoða og finna út úr hvað veldur hverju og hvers vegna. Móðgun er systir stolts, hum, áhugavert, þarna er stolt sem þarf að takast á við, stolt yfir hverju ? Ef ég skoða þetta út frá því sem ég trúi, þá er tilfinningin stolt ekki ég , en hún er eitthvað sem ég hef, og hvað er best að gera við henni og því. Á ég að svelta hana, þá deyr hún, það væri möguleiki, eða á ég að senda svo mikið ljós inn í hana að hún eyðist upp í Kærleikanum, eða á ég að skoða orsökina fyrir því hvers vegna hún varð hluti af mér. Þar sem ég elska allt í mér og virði, skil orsök og afleiðingu þá vel ég skoða hvaðan stolt, reið og móðgun komu, hvar þær urðu samferðamenn mínir.Það gæti verið löng ferð að skoða, frá þessu lífi til næsta og næsta og næsta.. verð sennilega að skoða það í hugleiðslum á næstu dögum, með virðingu fyrir mér og öllu í mér.
Eitt veit ég að hann vinur minn, gerir mér mikinn greiða, því hvernig hefði ég fundið fram til þeirra: reiði, móðgun og stolts ef hann hefði ekki hjálpað mér til þess.....
Stolt er andstæða Minnimáttarkenndar
Reiði er andstæða Gleði
Móðgun er andstæða Skilnings, skilningur sem færir til frelsis...
Megi laugardagurinn verða ykkur fallegur og góður...
Bloggar | Breytt s.d. kl. 08:47 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (19)
Daily Show John Stewart. og Island, mjög skemmtilegt !!
24.1.2008 | 15:36
Bloggar | Breytt s.d. kl. 15:43 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (10)
Bækur eru bestar í Janúar ! Svo kemur salt....
23.1.2008 | 15:38
Þessa dagana er ég alltaf að lesa, ef ég er ekki að vinna eða eitthvað sem ég verð að gera þá les ég og les. Ég keypti mér þrjár bækur í síðustu viku. Ég er að klára fyrstu bókina sem heitir á dönsku Biernes hemmelige liv skrifuð af Sue Monk Kidd
Alveg frábær bók. Ég flýti mér upp í rúm á kvöldin til að lesa. Mæli sannarlega með þessari bók. Íslenska þýðingin er sennilega Leyndarmál Býflugnanna. Önnur bókin sem liggur á náttborðinu mínu og bíður heitir "Drageløberen" skrifuð af Khaled Hosseini.
Hef heyrt að þetta sé stórkostleg bók. Þriðja bókin heitir Sjælen og dens redskap eftir Lucilla Cedercrans. Bók um sálina og hvaða hún getur gert, eða hvernig hún hjálpar.
Janúar er mánuður þar sem á að liggja og lesa og horfa á góðar bíómyndir. Það er nú samt ekkert janúarlegt hérna, garðurinn er allur í litlum gulum blómum, runnarnir með knúpa og einstaka rósir í blóma.
Ég sendi út fréttabréf í dag frá The One Earth Group um Sæljónin, og þeirra lífsbaráttu. Bréfið er á dönsku, en þið sem getið lesið dönsku hvet ég til að lesa og hugsa aðeins um þessi blessuðu dýr. Hérna er bréfið.
Kæru öll, góðan miðvikudagseftirmiðdag til ykkar allra.
Ætla að fara í göngu með Lappa, setjast svo með te og ullarteppi inn í stofu að lesa.
Kære Brødre og Søstre !
Nu er det tid, at vi fokuserer vores healings og kærligheds energi til en ny dyreart.
Det aktuelle dyr er Søløven.
Søløven er det første dyr vi hjælper fra havet, men helt sikkert ikke det sidste.
Søløven er et af mange dyr, som kæmper i havet for sin overlevelse.
Klimaforandringer.
Vi ved, at på grund af klimaforandringer, er det en kamp at overleve i havet.
Vi bruger giftstoffer som aldrig før. Vi forurener naturen med kemiske stoffer, olieudslip, affald, urenset spildevand, radioaktivt udslip og en masse anden forurening.
Giftstoffer, som er i atomsfæren, er noget, som ikke bare forsvinder, men gør stor skade på alt liv på Jorden. Der er en stigende mængde CO 2 i atmos-færen og de klimaforandringer dette medfører, er en af de største trusler imod havets økosystem.
Men der er flere giftstoffer som truer havet, POP´erne (Persistent Organic Pollutants) er tungt nedbrydelige kemikalier. Det kan være industri-kemikalier som PCB og også DDT, som er insektgifte og er et eksempel på, hvordan et kemisk stof kan påvirke dyr. DDT blev i høj grad tidligere brugt til at dræbe insekter, f.eks. myg, der spredte malaria. Men 1960 blev det opdaget, hvilken indflydelse det havde på dyrene, og i dag er det heldigvis forbudt i de fleste lande.
Når dyr og mennesker får giftstofferne ind i kroppen, ophobes de i fedtet.
Disse stoffer kan fremkalde kræft og andre sygdomme i dyr og mennesker. Giftstofferne forsvinder aldrig, de er her på vores Jord og gør stor skade både nu og i fremtiden.
IUCN´s Rødliste.
Vi ved fra IUCN´s Rødliste, at 1101 arter af verdens pattedyr er enten kritisk truede, truede eller sårbare. Det svarer til 20% af alle de pattedyr, som man kender.
Vi ved også, at 1213 arter af verdens fugle er truede eller sårbare, 304 arter af verdens krybdyr, 1856 arter af verdens padder og 801 arter af verdens fisk. Mange af de dyr, som vi ikke mener, har en videnskabelig betydning, har en vigtig funktion, alles liv her på Jorden har en funktion i længere og kortere perioder, både på de indre og på de ydre planer. Men det som er en katastrofe er, at vi ikke ved hvilke dyr, der er vigtige for Jordens overlevelse!
Døden har været et faktum her på jorden fra tidernes morgen. Døden har ramt planter, dyr og mennesker fra livets begyndelse, det er naturens gang, men i den senere tid, ser vi en anden form for død og i en så stor mængde og helt uden, at vi overhoved kan kontrollere det.
Søløven tilhører øresælsfamilien.
Det er Stellers Søløve, Sydamerikansk Søløve, Australsk Søløve, Hookers Søløve og den nok bedst kendte Søløve, er den Californiske Søløve, der lever langs den amerikanske Stillehavskyst, men findes også i fangenskab i akvarier og zoologiske haver over hele jorden.
Søløverne er ikke beskyttet af CITES (liste over truede dyrearter), men det er en lokal beskyttet art. Søløvernes eksistens på Californiens kyst er udsat.
De jages af de hvidhajer og spækhuggere, som patruljerer langs kysten. Der bliver mindre og mindre føde i havet, og derfor bliver de Søløvekolonier hårdt udsat for rovdrift af disse store dyr. Søløven har en meget lille chance i denne kamp.
Australske søløver er truede og regeringen på Cook Island ved New Zealand oprettede i 2001, et beskyttet område for søløver til at beskytte dem mod jagt.
Hvorfor
Søløve er et af de dyr fra havet, som giver meget glæde til os mennesker. Hvem kan ikke huske dem i Zoologiske Haver og Cirkus alle steder i verden? Vi husker den skønne film Bidske Bæster, en komedie fra 1997 med John Cleese, Jamie Lee Curtis, Michael Palin og Kalvin Kline i hovedrollerne. Der er Søløverne udtalt som Kronen på Guds skaberværk.
Disse skønne dyr kommer tæt på os mennesker og giver glæde og minder, som er positiv energi, der hjælper os mennesker i vores udvikling.
Søløven er et af de dyr vi tæmmer og mange steder, lever tæt samen med os mennesker. De kan være meget knyttet til sine trænere og vi ved, at ud fra dette samarbejde, kommer evnen til at elske og tjene, som er vigtig i dyrenes udvikling.
Vi som menneskehed skal nu hjælpe vores brødre og søstre på deres vej.
Vi har igennem længere tid været grusomme over for dem, men det er dyrerigets uundgåelige karma der udlignes.
I de fjerne mørke tider var menneskene dyrenes føde. Dyrene var meget stærkere end menneskene. Menneskene var hjælpeløse overfor dyrenes grufulde overgreb.
Dengang var menneskers instinkt ikke langt over dyrene instinkt. Først da tusinder år var gået og menneskers intelligens og dygtighed begyndte at gøre sig gældende, blev menneskeheden stærkere end dyrenes. Siden da, har vi mennesker hærget dyrene. Nu er det tid til Kærlighedstonen mellem menneskeriget og dyreriget. Og vi som deres ældre brødre, må hjælpe dem i deres udvikling.
Vi mennesker har fået betroet den opgave, at lede dyreriget frem til frigørelse, der giver adgang til det fjerde naturrige, som er dyrenes næste opgave.
(menneskeheden er det fjerde naturrige og blev etableret for 18,5 millioner år siden).
Vi fra The One Eart Group sender jer alle sammen Kærlighed og Lys.
Bloggar | Breytt 24.1.2008 kl. 06:35 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (10)
Í upphafi var orðið og orðið var hjá Guði, OHM !
17.1.2008 | 19:52
Hugurinn ber mig alla leið. Það er oft ekkert gaman að vera ég, eða hver sem er. Það er oftast best að vera svífandi vera yfir æskubænum mínum. Eitt með alheiminum. Finna sig eitt með öllu.Eitt með vatninu, Eitt með fjallinu. Eitt með blóminu, Eitt með dýrinu. Eitt með hinu Guðlega. Skilur sig ekki sem sig , en sem allt, í öllu. Er þetta það að hafa Guð í sér ? Er enn svífandi yfir æskubænum mínum, Það er dimmt yfir öllu, aðeins ég er eins og svífandi gullorka, svíf með vindinum. Sé ströndina fyllist sorg. Var æskan hamingjusöm, eða var æskan ekki hamingjusöm, var æskan kannski bið eftir að finna sig seinna, til að geta verið annar og einn, annar með öðrum, sá sem skilur, sá sem fyrirgefur, sá sem finnur Guð sinn og er eitt með honum og öllu hinu. Árin líða í leitinni, sorginni, að tilheyra engum, en þó tilheyra öllum. Lifa í lífinu, í annarri mynd en hugði. Horfði til himins með barnsaugunum, kalt á fingrunum, vettlingar með götum, sogið og sogið ísinn í ullinni, nú er ullin köld og hörð. Horfði frá himni til hafs, sé lönd og leið, veit af lífi í fjarlægum löndum, á fjarlægum plánetum, Karlinn í tunglinu er vinur minn. Þarna er Noregur, þarna er Danmörk, þarna fer ég og verð fullorðin, þegar ég finn Guð minn. Við verðum saman ég og Guð, lærum tungur, höldumst í hendur, hann leiðir mig þar sem verkefnin bíða, þar sem komu minnar er beðið, þegar ég verð stór, og kona, og mamma og allt hitt, þegar ég hef prufað hitt og þetta, og finnst allt annað orðið ekkert, þá veit Guð og hin innri ég að tími minn er komin til að hjálpa bræðrum mínum og systrum, þegar ég verð stór, stærri, stærst, lítil, minni minnst......
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (15)