stórar myndir og lítill teksti....

IMG_2549

 

 

Bloggleti, eða ekki ! Stundum er ástæða fyrir bloggleti, mín ástæða er hugurinn sem veit ekki alveg hvað hann vill og hverju hann nennir. Hvað er best að nota tímann í og hvað ekki. Er að vinna að málum sem hafa kallað á athygli mína í langan tíma, það er erfitt, en nauðsynlegt. Hef gleymt hluta af sjálfri mér of lengi, en vinn að því núna hörðum höndum. Í þeim ferli, koma hugsanir úr fortíðinni, og blanda sér nútíðinni sem setur gamlar tilfinningar fram og erfitt er fyrir mig að ráða við, skilja aftur, og skoða þar sem ég er núna. Ég verð óörugg, og vil helst flýja í gamalt far sem ég þekki og veit hvernig  hljómar. Þó veit ég að það er ekki aftur snúið, því þetta er næsta skref, ekkert annað skref get ég tekið en þetta. Á morgun kemur nýr dagur, þá verður hugurinn nær nýjum tóni en hann var í gær og í dag.

Á morgun vil ég taka það besta frá fortíðinni, sem ég get notað í framtíðinni, og nota það í núinu.

Ljós og Kærleikur til ykkar allra.

_MG_2621

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Gunnar Helgi Eysteinsson

Efsta myndin er óhugarleg en mögnuð.
Myndin fyrir neðan er flott.
og mér finnst gaman að kíkja í heimsókn á bloggið þitt.

Gunnar Helgi Eysteinsson, 9.2.2008 kl. 22:07

2 identicon

Halló Steinunn, þú ert frábær eins og þú ert. Amsterdam biður að heils. Með beztu kveðju.

bumba (IP-tala skráð) 9.2.2008 kl. 22:21

3 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Er ekki kominn tími á þvott hjá einhverjum?

Hrönn Sigurðardóttir, 9.2.2008 kl. 22:33

4 Smámynd: www.zordis.com

Flott að sjá sólina í myrkrinu í svarta litnum!

www.zordis.com, 10.2.2008 kl. 00:18

5 identicon

Báðar myndirnar eru flottar en efri myndin er roslega skemmtileg líka, hvílík gleði í svipnum, kemur mér í gott skap! 

Maddý (IP-tala skráð) 10.2.2008 kl. 04:02

6 Smámynd: HP Foss

Efir myndin minnir mig á Sissa símamann í Litla Hvammi ( reikna með að þú þekkir hann) þegar hann koma eitt sinn austur að Klaustri í sandbyl . Hann var akkúrat svona, allur í sandi og glaður að vara komin yfir Sandinn. ( Ladan hans var ekkert sérstaklega þétt) :)

HP Foss, 10.2.2008 kl. 11:58

7 Smámynd: Karl Tómasson

Bláu augun þín, átt þú þessa fallegu og hressilegu stúlku?.

Bestu kveðjur frá Kalla Tomm úr Mosó kæra bloggvinkona Steina.

Karl Tómasson, 11.2.2008 kl. 00:14

8 Smámynd: Dísa Dóra

Kærleikskveðja til þín

Gott þegar maður nær að nýta fortíðina til góðs fyrir nútið og þar af leiðandi framtíð

Dísa Dóra, 11.2.2008 kl. 09:45

9 Smámynd: Steinunn Helga Sigurðardóttir

kæru öll takk fyrir falleg komment !

kæri kalli, já þetta t sólin mín yndisleg.. að þvó af sér öskuna eftir bolludag !

Blessi ykkur öll  

Steinunn Helga Sigurðardóttir, 11.2.2008 kl. 16:48

10 Smámynd: Solla Guðjóns

Tilkomumiklar myndir.Sólin er fallleg í hvaða gerfi sem er.

Nýta fortíð til nútíðar og framtíðar er gott til eftirbreyttni.

Solla Guðjóns, 12.2.2008 kl. 11:49

11 Smámynd: Katrín Snæhólm Baldursdóttir

....jamm kannski erum við flest að ganga í gegnum svona umbyltingu á sálinni um þessar mundir....Ekki auðvelt en nauðsynlegt eins og þú segir.

Knús á þig aSteina mín. Myndirnar eru skemmtilegar.

Katrín Snæhólm Baldursdóttir, 13.2.2008 kl. 23:02

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband