Færsluflokkur: Trúmál og siðferði
Verði það sem verða vill og allt það.....
28.3.2008 | 09:52
Ég og Lappi og Múmin vorum að koma úr göngutúr, það er aftur smá vor í lofti eftir ansi mikinn kulda frá því við komum frá Íslandi. Sit nú með kaffið mitt og undanrennuskúm ofan á. Það er barasta toppurinn.
Ég hef það á tilfinningunni að ýmislegt sé að gerast hjá mér í meðvitundinni þessa dagana. Ég fer svolítið upp og niður í tilfinningunum.
Í gær var ég bara ferlega þung í sinninu. Var reyndar illt í öllum liðunum, en það er svo annað mál, á milli mín og elsku Guðna míns.
Ég veit ekki alveg hvað veldur þessari sveiflu.
Kannski það að ég gæti verið meira virk í hinu og þessu sem ég er að gera.
Kannski að sinna hugleiðslunum meira en ég geri, en þó hugleiði ég oft tvisvar á dag, og það ætti að vera nóg.
Einu sinni fyrir friði í Mið Austurlöndum og einu sinni fyrir Móður Jörð og hinum ríkjunum sem lifa með okkur þar.
Kannski er það vegna þess að ég er bráðum með sýningu og ég er bara ekkert að vinna að henni. Þetta er þó ansi stór sýning og ég þarf að ná miklu til að ná góðri sýningu.
Kannski er það vegna þess að ég er ekki nógu dugleg að gera þær æfingar sem ég fékk hjá Gordon (hann sem ég er í þerapí hjá) þar síðast og ég á að tala við hann eftir rúma viku og þó svo ég viti það, fer ég eiginlega ekki í gang.
Kannski vegna þess að ég er ekki búinn að panta tíma hjá homopatanum mínum þó svo ég sé löngu búinn með þau lyf sem ég fékk síðast og ég finn að líkaminn minn er að fá gömlu einkennin aftur.
Kannski vegna þess að ég var á Íslandi og þarf alltaf smá tíma að komast í það jafnvægi sem ég var í áður en ég fór af stað
Kannski vegna þess að ég tek mig ekki saman með peningamálin, nota of mikið af peningum, en finnst það einhvernvegin óþolandi ofneysla og vil svo gjarnan lifa meira í takt við það sem mér finnst rétt. Sem er að lifa í takt við þörfina en ekki græðgina.
Kannski vegna þess að ég hef mikið að hugsa um og gera í vinnunni, og ég veit að framundan eða fram á sumar verður mikið sem ég þarf að hafa stjórn á og ákveða sem ekki allir verða sáttir við.
Kannski vegna þess að ég lifi of mikið í því sem er á morgun, í staðin fyrir í því sem er í dag, hér og nú.
Kannski vegna þess að með smá aga get ég orðið betri í dag en ég var í gær.
Kannski vegna þess að ég finn að ég er á leiðinni frá einu í annað og það er ekki alltaf auðvelt , því það sem maður þekkir heldur maður oft að sé best og öruggast.
Kannski vegna þess að þær hugsanir sem ég held að séu mínar séu þær einu réttu núna, en ég finn að nýjar eru að læða sér inn, og þá fer það gamla í vörn og berst fyrir lífi sínu.
Kannski vegna þeirrar ábyrgðar sem kemur í takt við meiri skilning.
Hvað sem það er þá gerist það sem gerast skal.
Ég nota Ljósið til að umvefja mig og vernda fyrir öllu neikvæðu, svo það jákvæða komist að og birti upp huga minn.
Komi það sem koma skal.
Góða helgi kæru bloggvinir, vinir og ættingjar.
fékk mér brauð og hugsaði um ísbirnina
25.3.2008 | 11:37
Fékk mér heimabakað brauð með osti og papriku ! Nam hvað það er gott. Sigyn kom við í kaffi, og það var líka gott, en auðvitað á annan hátt. Ég er í fríi í dag og var að klára fréttabréf um ísbirni fyrir The OneEart Group . Ætla að deila með ykkur nokkrum hugsunum mínum um þessi mál
Núna kemur tími mikilla erfiðleika hjá þessum blessuðu frábæru dýrum. Ísbjarnarmamma kemur núna í vorinu út úr holunni með ungana sína og leitar sér fæðis. En það getur orðið erfið leit því hún leitar að selum, og til þess þarf hún út á ísinn, en það er ekki mikill ís eftir. Venjulega deyr ca helmingurinn af ísbjarnarungum, en að öllum líkindum hækkar hlutfallið núna. Fullorðnir ísbirnir (sem eru ekki með ungana sína) eru samt ótrúlega duglegir að bjarga sér, þeir geta synt dögum saman út á opið haf að leita sér fæðis, en þeir geta ekki synt út í það óendanlega, þeir drukkna að lokum ef enga fæðu er að finna. Þetta verða sennilega örlög margra af þessum frábæru dýrum.
Þeir aðlagast líka aðstæðum, dæmi er um að þeir lifi á ruslahaugum fyrir utan bægi. Okkur finnst sú mynd ekki alveg passa inn í fegurðarskinið okkar, en þetta er ein leið til að lifa af hungurdauða.
Það er samt ýmislegt sem ég hef tilfinningunni að sé gott sem er að gerast miðað við aðstæður, en sem mörgum finnst ekki sérlega gott. En það er að í dýragarðinum í Berlín er litli ísbjarnarunginn Knut sem hefur verið fóstraður upp af Thomas. Það ríkir mikill kærleikur á milli þeirra og er það að mínu mati gott. Þetta hefur smitað út frá sér og núna eru fleirir dýragarðar í Þýskalandi farnir að gera það sama. Þetta virtist fyrir mér við fyrstu sýn ekki gott, það var auðvelt að sjá að þetta var allt um peninga.
En ef það gerist gott fyrir enn ísbjörn, hefur það áhrif á alla ísbirni. Því þeir eru eitt, eins og við erum eitt sem mannkyn, þeir eru hluti af okkur, þannig að það hefur líka áhrif á okkur það sem gerist gott hjá þeim. Engin er einn án annars hvort sem okkur líkar það betur eða verr.
En ég trúi eins og þið flest vitið að öll dýr séu yngri bræður okkar og systur og það að vera í nálægð manna sé leið til þróunar. Það að við nálgumst dýrin í Kærleika og virðingu gefi dýrinu möguleika á að þróa aðra vitund í sér sem er sú þróun sem er mikilvæg fyrir þau.
Við erum þess valdandi að ísbjörninn er að deyja út, það er ekkert leyndarmál. Bandarískar rannsóknir sýna að eftir 100 ár þá eru engir ísbirnir eftir nema í dýragörðum. Það er þá í raun bara ein leið möguleg fyrir ísbjörninn til að geta haldið sinni þróun áfram hérna á Móður Jörð og það er að aðlaga sig mannverunni.
Það er hægt að sjá að það gerist í Þýskalandi, þó svo að það virðist tilviljun og að þetta sé bara um peninga, þá held ég að þarna séu önnur öfl sem ráða.
Annað stórmerkilegt dæmi um aðlögun að nýjum hlutskiptum ísbjarna eru ísbirnir í leik við hunda. Það hafa alla tíð farið sögur af ótrúlegri grimmd ísbjarna. Dæmi eru um að ísbirnir og hundar leiki sér saman, og á þeim myndum sem ég set hérna inn og video sem þið getir séð þarf blindan mann til að sjá ekki að þarna ríkir Kærleikur frá einni dýrategund til annarrar. (gætum tekið það til fyrirmyndar)
Þetta eru nú bara svona þriðjudagspælingar um bræður okkar og systur ísbirnina.
Kærleikur og Ljós til ykkar.
Njótið þessarar fegurðar og Kærleika.
Ísland er ekki best, flottast og frábærast !
23.3.2008 | 08:34
Páskadagsmorgun !! Gleðilega páska elsku öll. Við erum komin heim frá Íslandi, og það er gott að komast í litla kotið sitt, með öllu því sem maður þekkir og er. Lappi liggur hérna hjá mér, sæll. Sigrún Sólin, borðar páskaegg og horfir á barnaefnið. Gunni þurfti að fara smá í vinnu, því sá sem átti að vinna, varð veikur.
Við komum heim í gærdag. Ég var ferlega þreytt eftir ferðalagið hafði ekkert sofið um nóttina svo ég lagði mig í smá stund. Það var notalegt að liggja í hljóðunum sem ég þekki og þekki vel. Þegar ég var hvíld þá fórum við öll á ströndina það var kalt og fallegt.
Heim !
já hvað er það. Ég er gestur þegar ég er á Íslandi, og ég er gestur í Danmörku. Ég upplifi Ísland eins og útlendingur, ég upplifi Danmörk eins og útlenskur dani. Ég undra mig yfir hlutum á Íslandi, og ég undra mig yfir hlutum í Danmörku. Ég verð meira og meira meðvituð um að vera ekki meira hluti af einu landi en öðru, því það opnar fyrir öðru.
Ég heillaðist af fjöllunum.
Ég tók 500 myndir af fjöllum. Ég var að keyra til Selfoss, þar á tengdafjölskyldan mín heima. Við Sól nutum fjallasýninnar og selskaps hver annarra.
Ég kveikti á útvarpinu, þaðan drundu reiðiraddir eins og fallbyssuhríð um HELVÍTIS útlendingana, HELVÍTIS hitt og þetta. Ég flýtti mér að slökkva og varð smá miður mín, eins og þegar ég fer inn á sumar bloggsíður, og ákveð að fara þangað aldrei aftur. Reiðisíður, reiðiútvarp. Þetta er tónn sem streymir í gegnum Ísland. Læðir sér með og hefur áhrif.
Varð hugsað til þess hvað sé eiginlega að gerast. Ekki það að það er líka reiði hitt og þetta hérna í Danmörku, en landið er töluvert stærra og ég upplifi það öðruvísi.
Það er ekki gott að mínu mati að vera svona þjóðernissinnaður.
Ísland best fallegast og frábærast.
Þetta hefur að sjálfsögðu alltaf verið svona, en ég held að það sé tími beitinga, og það þurfi alvarlega að taka þessa hluti til athugunar. Því auðvitað er þetta ekki rétt , Ísland er ekki best fallegast og frábærast það höfum við alltaf vitað innst inni. En núna þegar heimurinn er svona mikið nálægt og fólk þarf að gefa af sjálfum sér til annarra, til dæmis, að leyfa öðrum að búa í landinu sínu, sem mér hefur nú alltaf fundist svolítið, ekki mitt, en allra.
Þegar við höldum okkur í þjóðarrembingnum þá höldum við okkur aðskildum frá öðrum. Við erum ekki hluti af öðrum í heiminum. Ég held að í raun sé þjóðarrembingur það sem er hættulegast. Ekki trúarbrögð, því trúarbrögð eru alveg í lagi í sjálfum sér, en þjóðarrembingur er ekki gott, hann skilur alla frá öllum. Þjóðarrembingur hjá einu landi er ekkert betri en þjóðarrembingur hjá öðru landi. Þetta er hugsun sem velur aðskilnað, og er að mínu mati ekki af hinu góða.
Fyrstur árin í Danmörku þá var ég svo stolt af því að vera íslendingur, líka árin mín í Dusseldorf, þá þótti mér sko flott að vera frá Íslandi, enda fékk ég athygli út á það. En með árunum finn ég að þetta stolt yfir að vera íslendingur er fjarað út. Mér þykir vænt um landið mitt, sem hefur verið með til að móta mig að því sem ég er, með þeirri orku sem það hefur í sér. En mér finnst ekkert merkilegra að hafa fæðst og mótast á Íslandi, en ef ég hefði fæðst og alist upp í Nepal, eða Afganistan. Þetta eru lönd sem hafa ákveðna orku í sér, sem móta þá sem hafa fæðst og alist upp þar. Ekkert meira en annað. Sum lönd bjóða upp á eitt og önnur upp á annað. En allt er þetta í raun um það sama :
að fæðast, safna reynslu í sálina, og deyja, fæðast safna reynslu og deyja, fæðast..........
Ef við skoðum þetta út frá þessu þá er þjóðernisremba alveg fáránleg, því í einu lífi fæðistu á Íslandi og í næsta lífi í Noregi, næsta í Íran og svo í USA. Þegar hlutirnir eru skoðaðir út frá þessu sjónarmiði, þá er augljóst að þjóðarstolt, er aðskilnaður frá hinum. Og það er ekki leiðin að
Einu Lífi, Einni Jörð Einu Mannkyni !
Blessi ykkur kæru öll.
Trúmál og siðferði | Breytt s.d. kl. 08:39 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (23)
Tibetans have exploded onto the streets in frustration--call on China to respect human rights and enter dialogue with the Dalai Lama now: |
The Chinese government has said that the protesters who have not yet surrendered "will be punished". Its leaders are right now considering a crucial choice between escalating brutality or dialogue that could determine the future of Tibet, and China.
We can affect this historic choice--China does care about its international reputation. China's President Hu Jintao needs to hear that the 'Made in China' brand and the upcoming Olympics in Beijing can succeed only if he makes the right choice. But it will take an avalanche of global people power to get his attention--and we need it in the next 48 hours.
The Tibetan Nobel peace prize winner and spiritual leader, the Dalai Lama has called for restraint and dialogue: he needs the world's people to support him. Click below now to sign the petition--and tell absolutely everyone you can right away--our goal is 1 million voices united for Tibet:
http://www.avaaz.org/en/tibet_end_the_violence/9.php
China's economy is totally dependent on "Made in China" exports that we all buy, and the government is keen to make the Olympics in Beijing this summer a celebration of a new China, respected as a leading world power. China is also a very diverse country with a brutal past and has reason to be concerned about its stability -- some of Tibet's rioters killed innocent people. But President Hu must recognize that the greatest danger to Chinese stability and development comes from hardliners who advocate escalating repression, not from Tibetans who seek dialogue and reform.
We will deliver our petition directly to Chinese officials in London, New York, and Beijing, but it must be a massive number before we deliver the petition. Please forward this email to your address book with a note explaining to your friends why this is important, or use our tell-a-friend tool to email your address book--it will come up after you sign the petition.
The Tibetan people have suffered quietly for decades. It is finally their moment to speak--we must help them be heard.
With hope and respect,
Ricken, Iain, Graziela, Paul, Galit, Pascal, Milena, Ben and the whole Avaaz team
PS - It has been suggested that the Chinese government may block the Avaaz website as a result of this email, and thousands of Avaaz members in China will no longer be able to participate in our community. A poll of Avaaz members over the weekend showed that over 80% of us believed it was still important to act on Tibet despite this terrible potential loss to our community, if we thought we could make a difference. If we are blocked, Avaaz will help maintain the campaign for internet freedom for all Chinese people, so that our members in China can one day rejoin our community.
Here are some links with more information on the Tibetan protests and the Chinese response:
BBC News: UN Calls for Restraint in Tibet
Human Rights Watch: China Restrain from Violently Attacking Protesters
Associated Press: Tibet Unrest Sparks Global Reaction
New York Times: China Takes Steps to Thwart Reporting on Tibet Protests
--------------------------------------------
Trúmál og siðferði | Breytt s.d. kl. 21:11 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (10)
við ræðum lífið, ég og Tómas Guðmundsson
13.3.2008 | 15:28
Sem talar upp úr rauðum svefni vors blóðs, sem rennur í æðum þjóðar okkar, saman en þó svo langt hvert frá öðru. Blóð sem heldur okkur nær hvert öðru, en er þó blóð jarðar, sem rennur í öllum æðum til allra.
Úr óminnisfyrnsku, um farveg aldanna runnin,sem er saga sem við munum og höldum okkur hluta af, skilningurinn flytur sig ekki í örófi alda, það glyttir þó í nýja sýn, nýja möguleika, nýjar vonir, sem tengir þjóðir en ekki þjóð,
Vor fortíð leitar oss uppi og kveðjur sér hljóðs, þegar við viljum forðast, byrja upp á nýtt, verða ný, önnur, ekki hluti af einu, en þó hluti af öllu, er það draumur, eða veruleiki. Er það óskhyggja eða von, um þá framtíð sem ég svo djúpt djúpt óska mér, þér og okkur. Skilningur okkar eykst í takt við tímann, fjarlægðir verða hugtök, því engar fjarlægðir finnast. Við fléttum okkur hvert inn í annað, og viljum hvert annað, meira og meira, þó forsendur séu misjafnar, þá skín í einstaka tilfelli inn í kærleikann þar sem augu snertast og hugur mætist.
En það er mótum minninganna og drauma sinna, það er sem sagt, minningar og draumar, eru veruleiki sem er kannski hinn sanni veruleiki, hvað er meiri veruleiki, eða hvað er rétti tíminn, er það tíminn sem þú lifðir í eða er það tíminn sem ég lifi í.Eru það báðir tímar samtímis, því get ég ekki svarað, því þú ert hérna svo raunverulegur í minningunni, sem ég er hérna í þessu núi, nú.
Sem mannsins heimþrá skal sína ættjörð finna. En ættjörð er móðir jörð, fyrir mér nú, en þó skil ég þránna í það sem er þekkt, í öllum vitum, Ísland sem ilmar af kulda, fortíð, æsku, vexti og minningum, kærleika, sakleysi, illsku.
Því draumur og minning er leiðin til sama lands, að hvað, segir hver fyrir sig, sem saknar þess sem var, en er ekki meira.
Og landið er uppruni, saga og framtíð hans.eða fortíð, ef vill. Mín fortíð er landið mitt, og skilningur minn er að svoleiðis verður það að vera, því með skilningi, þroska og víðsýni liggur leiðin aldrei til baka, í það sem var. En ég get tekið upp minningamyndirnar og gælt við þær um stund, þegar ég þarf að finna öryggi í þessum heimi, sem getur skapað svo mikið óöryggi. Þá sit ég í rólunni minni fyrir utan sýslumannsbústaðinn gamla í Vík og róla svo hátt, næstum því upp í himininn og syng í hæstu hæðum karlinn í tunglinu og ég hlæ hátt og finnst lífið svo frjálst og veit ekki um neitt annað en stað og stund. Svo er róin komin inn í hugann minn og ég get staðið upp aftur og haldið göngunni áfram með bjartan huga og ég veit að þeir bíða og fylgjast með mér, og ef á þarf að halda, taka þeir í höndina mína og hjálpa mér yfir stokka og steina, eða þar til ég get sjálf.......
Kæru bloggvinir, leiðin liggur til gamla landsins!
Trúmál og siðferði | Breytt s.d. kl. 19:54 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (21)
þögn er núna friður !
9.3.2008 | 16:45
Góðar fréttir las ég í blaðinu í dag, það á að setja inn nýtt námsefni í skólanna hérna í Danmörku. Mjög mikilvægt að mínu mati, Hvernig á að passa og fara vel með dýr Þetta gerði mig glaðari í dag enn í gær.
Annars er lífið bara rólegt, er að undirbúa mig andlega á að koma heim til íslands, það er aldrei bara auðvelt, en ætla nú ekkert nánar út í það.
Fórum í sund í morgun og syntum og við syntum, það er svo gott að hugsa þegar maður syndir.
Hugsaði um syndir,
hvað þær þýða og hvernig við dæmum þær og ekki dæmum?
Er synd að hata nágranna sinn?
Já það höfum við lært.
En að hata nágranna sinn í næsta bæ?
Það er sennilega mikið bannað,
en í næsta landi ?
Það hlýtur að vera jafn mikið bannað og að hata barnið sitt? Þegar við erum eitt, hver hluti af hinum.
En við hugsum aldrei um það, okkur finnst alltaf allt i lagi að hata hina sem eru öðruvísi í öðrum heimsálfum, kannski sumir meira en aðrir.
Það er synd að ljúga, um það getum við öll verið sammála. En við ljúgum sennilega öll meira og minna af og til, og oftast tökum við ekki eftir því, það er svona element sem er rótgróið í mér og þér.
Við segjum: það er allt í lagi með svona hvíta lygi, og er það ekki einhversstaðar smá sannleikur í því eða hvað ? Þegar við notum hvíta lygi, hvað þýðir það ? Við viljum ekki særa náungann. Við þorum ekki alveg að segja það sem okkur finnst.
Er það þá ekki athugandi að athuga hvað þar þarf að athuga.
Ef við veldum að segja alltaf sannleikann út frá þeim stað sem við erum í þeim skilningi og þroska sem við höfum, þá held ég að við særum oft. En ef við værum komin á hærra vitundarstig, sem við mannkyn erum á leið nú. Ef við hefðum Kærleikann til alls og allra, þá gætum við sagt sannleikann án þess að særa, en með skilningi og virðingu fyrir hverjum og einum, og i gegnum okkur streymdi Kærleikurinn til þess sem við er mælt. Þá særir maður engan. Það er sennilega löng leið, en við þurfum að undirbúa okkur , við erum einhveratíma í framtíðinni þar, og þar verður gott að vera.
Sá líka sorglega frétt í dag. Öll hundaheimili og kattaheimili eru full af dýrum sem engin vill eiga, sá líka að á hverju ári erum 15.ooo hundum lógað í Danmörku því eigendurnir verða þreyttir á þeim. Þetta er núna, en ég get séð og fundið að samkenndin verður meiri og meiri með dýrunum og náttúrunni. Það að umræðan er svona mikil, er tákn um vöknun hjá okkur á þessum minni bræðrum okkar og systrum.
En stundum finnst mér of langur tíma þangað til og þá tek ég eftir hlutum eins og í gær þegar ég var í borginni stóru . Við keyrðum yfir á Nørrebro, þar á eyjunni á milli stórra vega, lá lítil svört kisa, ekki stærri en meðal lófi. Hún var ekki hérna lengur. Það var svo skrítið að sjá að hún var ósýnileg þeim sem fram hjá gengu, en þó hefur hún einu sinni haft líf sem skipti öllu máli, jafn miklu máli og lífið mitt og þitt. Móðir Jörð var jafn mikil móðir hennar og þín og mín, en samt var hún ósýnileg þeim.Friður veri með þessari litlu kisu, sem núna er í kisusálinni með Þrúði og Vésteinni.
Ég er að drekka lakkríste, það er alveg ljómandi. Gunni er að klippa greinar úti. Sólin er með Nina og Cecilia niður á Lejreå að veiða fisk með greinum, bandi en engum önglum.......
Friður verið með ykkur á sunnudagskvöldi.
Trúmál og siðferði | Breytt s.d. kl. 16:50 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (21)
Hugur Fílls og ég, nútíð, fortíð, framtíð.
1.3.2008 | 17:45
Laugardagur og ósköp ljúft hérna heima. Vindurinn hamast á gluggunum. Reyndar eina skiptið sem ég upplifi smá pínku lítinn vetur í ár..
Það er þó ekkert vetrarlegt. Rósirnar eru komnar með knúppa, runnarnir eru með fyrstu fögru grænu blöðin, en ég læt eins og það sé smá vetur því það er svo huggulegt.
Við erum einar heima mæðgurnar með öllum blessuðum dýrunum.
Gunni fór að hjálpa Sigyn stóru dóttur okkar og Albert manninum hennar að þrífa veitingastaðinn sem þau voru að kaupa. Þetta er fiskiveitingarstaður við ströndina á Norður Sjálandi. Mjög flott og á frábærum stað, alveg við hafið dásamlega. Ég fór ekki með því ég er, eða eiginlega á að vera að skrifa grein um Ísbirni og hvernig þeim vegnar á jörðinni í dag og sennilega á morgun líka ! Sólin, Lappi og ég fórum þó í göngutúr í rokinu. Fórum heim til Sigyn og Albert að gefa Rósu og Birni (kanína og hamstur) að borða og drekka. Ég hef þó eiginlega bara verið að lesa með teð mitt og notalegheit.Gerði líka smá pönnsur, það passar svo vel við svona daga.
Hef setið og lesið og lesið í dag, hef hreinlega varla getað sleppt þessari bók sem vakti í mér óhugnuð, samkennd, sársauka, sorg, gleði og allt þar á milli.
Bókin heitir Under en strålende sol eftir Khaled Hosseini !
Þetta er sami rithöfundur og skrifaði Drageløberne ( ég held að hún heit Drekahlauparinn á íslensku)
Ég hef lesið Drekahlauparinn líka og snerti hún mig svo djúpt.
Þessi bók sem ég kláraði fyrir augnabliki er ekki síðri, ég mæli með henni.
Á morgun fer ég til Malmö að hitta hugleiðslugrúppuna mína sem er þó svo margt annað líka. Við erum að fara að skrifa grein um þessi átök á milli Íslamista og Danmörku. Það verður spennandi því við erum með mjög ólíkar skoðanir. Það verður spennandi að sjá hvort við getum fundið essensinn af því sem við meinum og skrifað góða grein um það.
Í gærkvöldi horfðum við á X faktor, eins og alltaf. Ég algjörlega heilluð af einni sem heitir Heidi ! Ég verð eiginlega algjörlega lömuð af að hlusta á hana, hún snertir allt í mér í hvert sinn. Hún fær mig til að gráta, ég fæ hreinlega gæsahúð um allt þegar hún syngur. Að mínu mati er þarna sannur, sannur djúpur listamaður sem á eftir að setja spor sín í tónistaheiminn, þar sem tónlistaheimurinn er með til að lyfta þeim sem hlusta aðeins hærra í meðvitundinni. Endilega gefið ykkur tíma til að hlusta á Heidi hérna fyrir neðan.
Í næstu viku byrjar vinnan og þá verður lítill tími til að blogga, en þið sem komið oft ættuð að vera farinn að þekkja þetta munstur, oft, sjaldan, aldrei!!
Blessun til ykkar allra frá gamla Konungaveldinu, Lejre
Trúmál og siðferði | Breytt s.d. kl. 17:51 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (16)
Til að skilja átökin í Mið Austurlöndum verður maður að fara aftur í tímann og sjá hlutina frá sögulegu sjónarmiði.
Hver hefur réttin til Jerúsalem ?
Aðalátökin í Miðausturlöndum eða Ísrael/Palestína er sennilega um það hver hafi réttinn til að ráða yfir/búa í Jerúsalem. Bæði kristnir, gyðingar,og múslímar telja sig hafa réttinn til þess.
Það er mikið fókuserað á það sem skilur að (það sem er ekki sameiginlegt) í þessum þremur trúarbrögðum, og að það sé í raun ástæða þessa stríðs sem ríkir á milli þeirra.
Það hefur ábyggilega ekki verið sú hugsun Guðs að skapa þessi þrjú ólíku trúarbrögð til að splitta fólk hvert frá öðru, en það er sennileg það hvernig við manneskjur veljum að túlka hver trúarbrögð fyrir sig, sem er orsök þessara deilna.
Kristin trú, gyðingatrú og íslam eiga öll upptök sín í Miðausturlöndum. Kristin trú og gyðingatrú hafa rætur sínar í núverandi Ísrael.
Gyðingar trúa að Guð hafi gefið þeim þetta land, kristnir trúa að landið tilheyri þeim, af því að Jesús lifði og dó þar. Íslam hefur rætur sínar í Saudi Arabíu, en fluttist til Palestínu, og þar á eftir yfirtóku múslímar Jerúsalem, og gerðu Jerúsalem að heilagri borg.
Í aldaraðir lifðu múslímskir arabar og gyðingar saman í friði, eða þar til kristnir frá Evrópu fyrirskipuðu heilagt stríð svo Palestína gæti aftur orðið kristið svæði. Í því stríði drápu kristnir þúsundir af bæði gyðingum og múslimum. Frá þeim tíma og þar til í dag hafa verið fjölda stríða á milli þessara trúarbragða á þessu svæði. Deilan hefur ekki eingöngu verið trúarlegs eðlis, en einnig um sögu, menningu og síðast en ekki síst völd.
Hvað þýðir það að vera trúaður ?
Trúarbrögð eru mikilvægur hluti mannkyns, bæði nú og áður, og þar af leiðandi mikilvægt að koma inn á það efni þegar hugað er að framtíð jarðar.
Að vera trúaður er það að trúa á Guð, eða eitthvað æðra en maður sjálfur.
Þessi þrjú stærstu trúarbrögð í heiminum í dag, sem ég hef áður nefnt hafa margt sameiginlegt.
Bæði kristnir, gyðingar og múslímar trúa á að það sé einn Guð, og að Guð hafi skapað heiminn á sex dögum, einnig að við sem mannfólk getum haft samtal/dialog við Guð. Þau er einnig sammála um að Guð skapaði fyrstu manneskjur á jörðinni (Adam og Evu) og að þeim var freistað af Satan þegar þau borðuðu eplið af lífsins tré í Paradís.
Í kristinni trú og gyðingatrú eru Adam og Eva sköpuð í Paradísargarðinum, en í Íslam eru þau sköpuð á himninum, en á eftir sköpunina færð í Paradísargarðinn.
Abraham, kallaður Ibrahim í Íslamskri trú er afkomandi Adam og Evu. Abraham gegnir stóru hlutverki í öllum þremur trúarbrögðum. Bæði gyðingar og múslímar telja sig afkomendur Abraham. Abraham er fyrstur manna til að trúa á einn Guð. Árið 1800 fyrir okkar tímatal fær hann skilaboð frá Guði um að hann eigi eftir að verða ættfaðir mikils hóps mannkyns. Abraham á þó erfitt með að trúa því, þar sem eiginkona hans Sara er orðin of öldruð til að fæða börn. Þar af leiðandi fær hann son sem fékk nafnið Ismael með Hagar sem er þrællinn hans. Ismael er sá sem grunnleggur Íslam. Abraham til mikillar undrunar verður Sara eiginkona hans ófrísk og fæðir soninn Isak. Hann er sá sem grunnleggur gyðingdóminn
Það er hægt að vera trúaður á margan hátt.
Það eru þeir sem eru ofsatrúarfólk, sem lifa ortodoks eftir Biblíunni, Kóraninum eða Toraen. Ofsatrúarhópar finnst ekki eingöngu innan Íslam. Þeir finnast einnig innan gyðingatrúar og kristinnar trúar. Það er þessi hópur sem við heyrum um í fjölmiðlum, því það eru þessir hópar sem hafa öfgafullar skoðanir sem þeir réttlæta í Guðs nafni.
Þar sem þessir öfgahópar lifa eftir sinni þýðingu/túlkun á trúnni, sem aðeins er hægt að túlka á þeirra hátt, gæti maður sagt að þeir lifi í gömlum hugsunarformum, sem heldur þeim fast í því, að það er aðeins hægt að trúa og lifa á einn hátt. Þegar maður þvermóðskulega stendur og heldur fast í eigin túlkun, og segir þær einu réttu, og getur ekki á nokkurn hátt séð að aðrir geti haft aðra sýn á hlutunum, og sú sýn er jafn rétt fyrir þann aðila og mann sjálfan. Þá gerast átökin/deilurnar sem við sjáum í því trúarbragðastríði sem herjar á jörðinni.
Ef ég tek gyðinga sem dæmi þá halda þeir krampakennt fast í gömul hugsanaform, sem t.d. að sjá sig sem Guðs útvalda þjóð, og að Guð hafi gefið þeim Palestínu. Hérna meina ég að gyðingar hafi rangt fyrir sér. Ég trúi að allt mannkyn sé Guðs útvalda þjóð. Gyðingar ættu að skoða stolt sitt á eigin þjóð, sem liggur í þeirri hugsun að halda að maður sé meiri en annar..
Réttrúðir gyðingar í Ísrael aðskilja sig frá okkur hinum hlutanum af mannkyninu, þegar þeir telja sig rétta eigendur af Ísrael Þeir óska ekki að vera hluti af hinum hlutanum af mannkyninu. Þessi hugsun getur ekki verið góð fyrir heildina, fyrir mannkynið, fyrir það guðdómlega. Það er að mínu mati löng leið að samruna mannkyns, hvort sem er gyðingar, múslima eða kristnir, á ég þá við þá sem hugsa sig þá rétttrúuðu. Það er að mínu mati mjög mikilvægt að blanda saman bæði trúarbrögðum, og kynþáttum. Gifta sig yfir landamæri þess sem ekki eru við. Þetta sjáum við í ríkari mæli nú en áður. Þetta veldur eldri kynslóðinni miklum harmi, en er að mínu mati leiðin fram að einu lífi, einu mannkyni, einni þjóð.
Stríðið í Miðausturlöndum er í dag tjáning fyrir aðskilnað, egoisma/sjálfselsku, efnishyggju,valdabaráttu og græðgi sem í raun fyllir líf stærsta hluta mannkyns á jörðu. Þetta er það sem ógnar heimsfriðnum í dag á jörðinni. En það er ekki eingöngu stríð í Miðausturlöndum, einnig stórríki eins og Bandaríkin, Kína og Rússland,sem spila á strengi valdsins, friðarumræðu, vopnasala, og ekki síst, olíuáhuga á þessum svæðum.
Margir leiðtogar í heiminum hafa reynt að vinna að friði á þessum svæðum. En það er hægt að mínu mati að setja spurningarmerki við ástæðuna á bak við það sem margir af þeim eru að gera. Margir vilja tryggja sér aðgang að olíusvæðunum, og að koma í veg fyrir að öll þessi olíusvæði séu yfirráðasvæði múslima, sem vestræn þjóðfélög sjá sem hryðjuverkamenn.
Það er greinilegt að olían frá Miðausturlöndum hefur mikil áhrif á líf okkar vesturlanda. Ef það eru sprengingar og óeirðir á þessum svæðum, þá hækkar olíuverðið hjá okkur. Þar af leiðandi erum við mjög háð öllu því sem gerist á þessum svæðum, hvort sem við viljum það eða ekki. Olían hefur óhugnanlega mikil völd í okkar heimi, og daglega lífi. Það er í Miðausturlöndum sem mest hráolía er framleidd í heiminum í dag.
Hormuzstrætið er mikilvægt svæði á þessum svæðum, það er eins og blóðæð frá þessum svæðum, til okkar, blóðæð sem siglir með hráolíu. Í gegn um þessa blóðæð streymir fjórðungur af allri olíu á jörðinni. Hormuzstrætið er skurður sem tengir saman Persiska flóann í suðvestur og Omanflóann sem liggur að Arabíska Hafinu.
Í dag eiga olíufurstarnir og fjölskyldur þeirra alla þessa olíu, og eru þar af leiðandi óhugnanlega ríkir. Ef olían væri í eigu landanna sjálfra og fólksins væri hægt að nota þá peninga sem koma í stað olíunnar til að byggja upp og þróa landið til ánægju fyrir íbúa þessara landa.Peningarnir gætu þjónað mörgum, í stað fárra.
Ef Miðausturlönd ynnu sjálfir hráolíuna í heimalandinu sínu, í staðinn fyrir að senda hráolíuna til vestrænna ríkja til að fá hana unna, myndi það skapa meiri efnahagslegan vöxt í heimalandi þeirra, það myndi skapa þúsundir atvinnumöguleika, sem myndi verða til þess að atvinnuleysi myndi minnka og velferð aukast. Þetta gæti orðið til þess að heilbrigðiskerfið yrði betra svo fátækir jafnt sem ríkir fengi þá læknisþjónustu sem þeim ber. Einnig myndi þessi efnahagslegi vöxtur gefa fleirum möguleika á menntun, og menntun er eins og við vitum máttur, og besta leiðin inn í framtíðina.
Við erum öll hluti af þessu á einn eða annan hátt, við erum öll hluti af mannkyninu, og þar af leiðandi vil ég meina að við höfum ábyrgð á því sem gerist hvar sem er í heiminum, við höfum ábyrgð á því að heimurinn verði betri á morgun en hann er í dag. Okkur ber skylda til að byggja brú á milli fólks, án hugsunar um kynþátt, trúarbrögð, eða þjóðerni. Við skulum sjá möguleika í staðin fyrir hindranir. Við skulum sjá það, að hversu ólík við erum, sem styrk, en ekki veikleika. Við skulum taka það besta frá fortíðinni, sem við getum notað í framtíðinni, og svo skulum við nota það í nútíðinni.
Við skulum ekki bara tala um frið, við skulum bretta upp ermarnar og skapa frið, svo það verði friður. Friður næst ekki með stríði. Friður næst með að tala saman, með virðingu, og svo að finna lausn með skilningi fyrir hinu ólíka og fyrirgefningu á fortíðinni. Fyrirgefning er það að skilja. Skoðanaskiptin/dialog verður að vera í Kærleikanum, og virðingu fyrir hverjum og einum. Verknaðurinn framkvæmist í Kærleika til allra og alls og fyrir það heila. Bara á þann hátt vinnum við stríðin ,
í gegnum hjarta fólksins, og Kærleikurinn mun vinna mannkynið.
Hugsunarformin hafa ógurlega mikinn áhrif á hvernig við lifum lífinu okkar, hvernig við hugsum, skiljum, finnum og gerum hlutina. Það er viljinn í hugsuninni sem stjórnar tilfinningunum okkar í ákveðnar brautir og skapar svoleiðis hvernig við bregðumst við, við allar aðstæður. Í praksis er mjög erfitt að aðskilja tilfinningar og hugsanir. Því þær virka í mjög nánum tengslum hver við aðra. En það er munur á þeim. Hugsunin færir viljann inn á ákveðna braut, það er þess vegna sem orka fylgir hugsun.
Við höfum bæði ómeðvituð hugsunarform, og meðvituð hugsunarform. Þær ómeðvituðu eru m.a. þau hugsunarform á bak við uppeldi, trú, samfélag og þess háttar.
Sem sagt hugarkrafturinn hefur mikinn kraft. Ef við hugsum neikvætt, höfum við áhrif á umhverfi okkar á neikvæðan hátt. Við höfum geri ég ráð fyrir öll upplifað hvernig neikvæðni getur smitað út frá sér. Ef við erum í herbergi með manneskju sem er neikvæð, finnum við fljótlega hve mikil áhrif það getur haft á okkur.Við finnum líka að ef við erum með jákvæðu fólki hvernig það getur smitað til allra um kring.
Lifum við eftir boðskap Guðs um náungakærleika, eða lifum við í efnishyggju hugsanaformi, þar sem við höfum nóg með okkur sjálf !
Hræðsla, þunglyndi, neikvæðni, sjálfselska og hatur, sé ég sem efnishyggjuhugsanaform. Hugsanaform sem eru réttlætt í Guðs og efnishyggjunnar nafni. Hugsanaform sem við sem einstaklingar og við sem mannkyn höfum byggt upp kynslóð eftir kynslóð. Við sjáum núna að þetta eru þau hugsanaform sem getur orðið til þess að hvorki við sem mannkyn, né Jörðin sem pláneta getum lifað mikið lengur.
Er mögulegt að vinna á og breyta þessum hugsunarformum sem eru það sem er verst fyrir áframhaldandi líf á jörðinni.
Þannig að hræðsla verði frelsi,
þunglyndi verði gleði,
neikvæðni verði jákvæðni,
sjálfselska verði að óeigingirni
og hatur verði að Kærleika.
Já, það er ég viss um að sé hægt ! Það er hægt að eyða gömlu hugsunarformi, sem heldur fólki föstu í ákveðnum munstrum, munstrum hvernig við bregðumst við og hugsum.
Ef við viljum leysa upp gömul hugsunarform þá er hægt að gera það á mjög einfaldan hátt. Í hverju hugsunarformi er og hefur einhveratíma verið jákvæðni, sem gerir að þarna finnst ljós, Sjáðu þetta litla ljós skínandi og fagurt. Sjáðu ljósið vaxa og verða bjartara inni í hugsunarforminu. Sjáðu ljósið vaxa þar til allt hugsunarformið er eingöngu Ljós. Sjáðu svo Ljósið leysa upp hugsunarformið í Kærleikanum. Þegar þetta gamla hugsunarform er horfið, leyst upp í Ljósi Kærleikans, myndast pláss fyrir nýjar hugsanir, hugsanir í Ljósinu, sköpuninni og frelsinu .
Við sem einstaklingar berum ábyrgð á hugsunum okkar og því lífi sem við veljum að lifa. Við getum ákveðið með sjálfum okkur að hugsa aðeins fallega um og til annarra.. Í hvert sinn sem sem neikvæð hugsun rekur inn nefið, höfum við vald til að afvísa henni. Við getum valið að elska náungan, og við getum sýnt það í umhyggju til þeirra sem verða á vegi okkar.Við getum valið að vera ekki sjálfselsk, og að vera heiðarleg, og afvísað efnishyggjuandanum.
Það fólk sem á heima í Miðausturlöndum og sérstaklega unga fólkið er meira og meira mótækileg fyrir nýjum hugsunarformum i staðin fyrir þau gömlu. Ný hugsunarform sem eru sköpuð í Kærleikans Ljósi og orku. Flestir sem búa þarna óska eftir friði í lífi sínu, og þau sjá að stríð er ekki leiðin sem leysir trúarbragðadeiluna.Það er eitthvað sem reynslan og sagan hefur sýnt þeim .
Flestir á þessum svæðum hafa haft sorgina inni í hjartanu, fátækt í lífinu, missir af nánum og ættingjum, afleiðingar af stríði kynslóð eftir kynslóð.
Í ljósi þess að við komum nær og nær hvert öðru, landamæri verða ósýnilegri, með þeirri tækni sem gerir okkur kleift að sjá og upplifa það sem gerist á öðrum stöðum i heiminum, eins og gerðist inni í eigin stofu.Sérstaklega er yngri kynslóðin opin fyrir þessum möguleikum. Þar af leiðandi eru þau opnari fyrir þeim möguleika að lífinu er hægt að lifa á margan ólíkan máta. Þau sjá í fjölmiðlum og á netinu að aðrar manneskjur hafa ólíka sýn á deilurnar á þeirra heimaslóðum, en stjórnmálamenn, og trúarleiðtogarar í heimalandi þeirra. Þetta opnar augu þeirra fyrir nýjum hugsunum, nýjum möguleikum, sem er eins og fræ sem sáð er og gefið möguleiki á nýju lífi. Þessi nýja kynslóð í Miðausturlöndum eru þar af leiðandi meira krítísk fyrir því sem þeim er sagt. Þeir hafa meiri möguleika en eldri kynslóðir að sjá nýjar leiðir en áður voru hugsaðar.
Einnig eru fleiri sem vinna að sameiningu ólíkra trúarhópa með menningu og íþróttum. Til dæmis Middle East Peace Orchestra. Þar hefur Henrik Goldsmith tekist að fá tónlistafólk frá þessum þremur trúarhópum sem um er rætt til að spila saman.
Í heimi íþróttanna hefur verið safnað í körfuboltalið. Þar sem hópur ísraela og palestínubúa spila saman í liði. Ég veit að þetta er ekki nóg til að skapa frið, en það er greinilegt að það að finna áhugasvið þar sem þess konar samvinna er möguleg gefur jákvæða og nýja möguleika. Samvinna sem sameinar í staðin fyrir að sundra. Þess slags samvinna á örugglega eftir að breiða um sig eins og hringir í vatni, og þar af leiðandi vera með til að skapa frið í heiminum.
Fjöldi manns vinnur að því að skapa frið á milli þessara ríkja. Það er lögð mikil áhersla á að finna lausn á þessum deilum, svo mögulegt sé fyrir alla aðila að lifa saman í eins miklum friði og mögulegt er.
En það er ekki nóg að skapa frið hjá öðrum, við þurfum einnig hver og einn að vinna að því að verða betri manneskjur til að vera með til að gera skapa betri jörð fyrir okkur öll.
Við ættum hver og einn daglega í samspili okkar við aðra, að sýna Kærleika, þar er ég ekki bara að meina kærleika til fjölskyldu okkar og vina. Ég er að tala um Kærleika sem nær lengra en til okkar nánasta og dýpra en það hversdagslega.
Kærleikurinn er djúpur, innilegur, óeigingjarn umhyggjusamur og sýnir skilning fyrir öllu lífi á jörðinni. Kærleikurinn er umhyggja fyrir öllum bræðrum okkar og systrum hvar sem er á jörðinni. Kærleikurinn nær einnig til allra dýra, plantna og inn til sjálfrar Móður Jarðar.
Kærleikurinn og óeigingirni er ekki eitthvað sem við förum út og kaupum. Hann/það finnst í okkur öllum. Við erum öll Guðdómleg, við höfum öll Guðs orku í okkur.
Við, ég og þú verðum sjálf að taka ábyrgð á hugsunum okkar og tilfinningum, því sem við gerum, og gerum ekki. Við verðum að upplifa okkur sem eina heild, og við verðum að hugsa og vera saman með hugsun um falleg og rétt samskipti okkar á milli. Þannig og bara þannig gerum við Jörðina að góðum stað að lifa á.
Ég hef með þessum skrifum mínum reynt að gefa smá mynd, kannski mína mynd af ástandinu í Miðausturlöndum. Kannski líka einn af þeim möguleikum sem ég tel vera mögulega til að skapa frið á þessum svæðum. Þar á ég við hvernig maður getur eitt og skapa hugsunarform.
Þessar deilur verða ekki leystar á stuttum tíma. Það þarf tíma til að eyða gömlum forstokkuðum hugsunum. En ég er viss sum að við öll getum verið með á þennan einfalda hátt til að skapa frið í heiminum.
Fyrir hvert neikvætt huganarform, sem er skipt út fyrir jákvæða hugsun. Í hvert sinn sem við sýnum skilning í staðin fyrir fordóma erum við skrefi nær friðsamlegri lausn á trúardeilunum....
Persaflóaríki vilja aðgerðir danskra stjórnvalda | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Trúmál og siðferði | Breytt s.d. kl. 07:09 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (13)
Ég þarf að elska þá sem segja mér á móti
18.2.2008 | 12:56
Yndislegur mánudagur, fyrsti dagurinn í vetrarfríinu okkar Sigrúnar Sólar.
Við fengum okkur Smoothe í morgunmat, eins og hvern morgun (það eru ávextir sem við veljum og blöndum svo í blandara) . Ég hugleiddi, fékk mér svo te. Á eftir þegar morgunvenjan var búinn fórum við í göngutúr í þessu líka fallega veðri. Lappi var rosa kátur, hljóp um engi, gróf sig til Kína og elti dádýr á heimsenda.
Sólin litla mín skein á allt það sem fyrir augu bar, og hljóp með Lappa tappa.
Við komum við hjá Sigyn og Albert sem búa í húsinu á sléttunni. Við fengum te, og ræddum heimsvandamálin, og leistum þau líka. Við Sólin yndisleg gengum svo heim, í leik og hugsun. Sólin fór í vitund Lappa og var með honum í öllu sem var gaman hún gróf moldvörpuholur, elti fasana, og hló í gleðinni með Lappa frábæra.
Ég hafði ró til að hugsa hitt og þetta, ég hugsaði þó mest um að vera, og elska það að vera. Ég er ekki alltaf svo meðvituð um að elska allt í kringum mig og gefa því þann gaum sem allt í kringum mig á skilið. Ég er heldur ekki nógu meðvituð um öll þau kraftaverk sem gerast í kringum mig og kringum aðra. Allt verður einhvernvegin of mikið sjálfsagður hlutur, þó alls ekki sé. Ég þarf að huga að þessum smáhlutum, sem eru í raun stærstu málin og ekki bara huga að því, því það geri ég svosem oftara en oftar.
Ég þarf að senda Kærleika í andrúmsloftið sem ég anda inn og út, með Móður Jörð og ykkur hinum
Ég þarf að elska Jörðina sem ber mig fram og til baka í leit að hinu og þessu sem er mikilvægt hverju sinni
Ég þarf að elska fuglana sem syngja fyrir mig bæði úti og inni.
Ég þarf að elska dýrin sem fórna sér fyrir mig í fæði og klæðum
Ég þarf að elska þá sem segja mér á móti
Ég þarf að elska þá sem staðfesta skoðun mína
Ég þarf að elska hugsanir mínar, hvort sem þær eru góðar eða miður góðar.
Ég þarf að elska það sem ég segi hverju sinni, því í hvert sinn segi ég það besta sem ég veit og skil.
Ég þarf að elska bræður mína og systur sem deila Móður Jörð með mér í nútíð, fortíð og framtíð
Ég þarf að elska mig, sem er Guðdómurinn, með þér og öllum hinum.
Það er margt sem þarf að huga að til að verða betri manneskja, en að gera það í Kærleikanum er fyrir mig það eina rétta.
Í fríinu mínu er ýmislegt sem ég þarf að huga að, ætli ég byrji ekki á því núna þegar sólin skín svo fallega inn um gluggann minn.
Kærleikur, gleði og Ljós til ykkar allra
Dýrin eru send í hræðilegustu ferðalögin, stundum í 30 daga !
12.2.2008 | 15:27
Hef setið í allan dag og unnið, og líka kíkt á blogg, og bloggvini. Það er ekki alltaf sem ég hef svona mikinn tíma til þess. Hérna er gott veður og fallegt að horfa út í garðinn minn sem er fullur að laukum sem eru að kíkja upp úr moldinni.
Heyrði dásamlega, en sorglega frétt í dag. WSPA sem eru dýraverndunarsamtök um allan heim, eru búinn ásamt öðrum dýraverndunarsamtökum um allan heim að vinna að dokumentarmynd "Handle with Care" um dýraflutningar í tvö ár með leynilegum upptökum.Þetta eru flutningar þar sem dýr eru flutt lifandi frá einu landi til annars til að verða slátrað. Stundum 30 daga í einu, bæði í bíl, með skipi eða með flugi.
Þau verða sturluð af hræðslu,
þau fá ekki vatn,
þau fá ekki mat.
Það deyja þúsundir og aftur þúsundir af grísum, hestum, kindum, geitum og kjúklingum á ári í þessum flutningum.
Þetta er kjöt sem við borðum. Dýrunum er fórnað með þjáningarlífi svo við getum borðað, því við hugsum um krónur og aura þegar við kaupum mat, og föt.... Við getum valið að kaupa vörur af dýrum sem við vitum að hafa haft gott líf, bæði hvað matvörur og fatnað varðar.
Það eru milljónir og aftur milljónir af dýrum sem þjást, vegna okkar, og það minnsta sem við gætum gert er að gera þeim dauðan eins friðsælan og sársaukalausan og unnt er. Ég skoðaði nokkur video, en ég verð að segja að ég gat ekki horft á þetta, ég varð bara alveg miður mín. Ég vil bara ekki vera hluti af þeirri dýrategund sem getur fengið sig til að gera þessa hluti. Þetta er bara of mikið...
Set inn eitt video, ef þið getið þola að sjá það.
Í 125 ár hefur verið hægt að senda frosið kjöt á milli landa og landshluta, hvers vegna er það ekki gert ? Í viku hverri eru 1.000.000.000 dýr send í þessa hræðilegu flutninga. Dýrin eru flutt frá Spáni til Ítalíu, frá Kanada til Hawaii frá Brasilíu til Líbanon og frá Ástralíu til Jórdaníu. . Það er talið að á milli Ástralíu og Jórdan deyji allt upp í 40.000 kindur á hverju ári vegna hungurs !
Ég vona svo innilega að þessi dokumentarmynd veki fólk alvarlega til umhugsunar um það líf sem við bjóðum þessum minni bræðrum okkar og systrum, sem við berum ábyrgð á, á þessari jörð. Það er á allra okkar ábyrgð að hækka vitund mannkyns sem væri hjálp fyrir dýrin og í raun allt annað líf á jörðu. Það þarf ekki endilega að vera með því að vera grænmetisæta, en að hver og einn vinni að því markvisst að verða betri manneskja. Því það er nú svoleiðis að því fleiri sem ná andlegum þroska á jörðinni, því hærra verður energíið og vitundarstigið á jörðu, sem svo hefur áhrif á allt líf á jörðu.
Ég fer á fund með hugleiðslugrúppunni minni í kvöld, það verður gott.
Hafið fallegan dag, eða það sem er eftir af honum.
Blessi ykkur
Trúmál og siðferði | Breytt s.d. kl. 15:49 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (20)