Það er sorg í húsinu okkar

IMG_1348

 

Við erum ósköp aum hérna í Lejre þessa dagana, lítið skrifað, enda hugurinn bundinn við annað.
Það kemur dýralæknir hingað heim á fimmtudaginn í næstu viku og þá verður Iðunn okkar elskuleg svæfð.

Við fórum með hana í skoðun í dag, með hnút í maganum, vildum að dýralæknirinn segði við okkur,að Iðunn elskuleg hefði það betra en við vissum. Dýralæknirinn er góður maður, hann sagði sem var, en að hann skildi vel það sem við upplifðum, en hvað á hún skilið af okkur, að við tökum ábyrgð.

Iðunn hefur það erfitt, finnur til alltaf, það verður betra fyrir hana í hundasálinni.

Við verðum hérna öll og kveðjum hana saman.
Iðunn yrði 12 ára í mars, og er ein af okkur. Hún er dásamlegust, enda hefur ákvörðunin verið erfið fyrir okkur,

Skrifa meira þegar þannig er

AlheimsLjós til ykkar


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ylfa Mist Helgadóttir

Knúsaðu Iðunni frá okkur og færðu henni okkar hinstu kveðju. Það verður léttir fyrir hana að losna frá kvölunum og ellinni. Myndum við ekki öll vilja fá að gera það, værum við í þeim sporum að kveljast og þjást og eiga ekkert annað eftir þá fáu ævidaga sem við ættum eftir að þrauka í hárri elli? Elsku Steina ég veit að þetta er agalega erfitt. Þú hefur haft hundinn hjá þér í langan tíma og átt með henni yndislega tíma. Ekki gleyma því að ef henni líður svona illa, þá líður þér líka illa.

Dauðinn er blessun og líkn fyrir þjáða en við hin sem eftir verðum syrgjum í eigingjarnri ást okkar á þeim sjúka, veika og þreytta.

Ég verð með ykkur í huganum á fimmtudaginn. Ég elska ykkur kæra fjölskyldan mín. Ekki má gleyma Lappa spræka. Gefðu honum líka knús.

Ylfa Mist Helgadóttir, 14.11.2007 kl. 20:21

2 Smámynd: Pálmi Gunnarsson

er með ykkur í huganum... klappaðu Iðunni á kollinn frá dýravini

Pálmi Gunnarsson, 14.11.2007 kl. 20:34

3 Smámynd: www.zordis.com

Hjartans kveðjur og styrkur til ykkar fjölskyldunnar.  Gangi ykkur vel á morgun!  Ég ætla að hugsa fallega til ykkar og Iðunnar í dag og á morgun og alla aðra daga! 

www.zordis.com, 14.11.2007 kl. 20:40

4 Smámynd: Guðný Anna Arnþórsdóttir

Samúðarkveðjur til ykkar, kæra fjölskylda. Iðunn er heppin að kveðja umkringd svona kærleiksríkum hópi.

Guðný Anna Arnþórsdóttir, 14.11.2007 kl. 21:46

5 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Þetta er alltaf hræðilega erfitt. Að láta gæludýr frá sér er hreinlega að missa einn af fjölskyldunni.

 Faðmlag til ykkar allra og strokur til Iðunnar frá mér og Ljónshjartanu.

Hrönn Sigurðardóttir, 15.11.2007 kl. 01:09

6 Smámynd: Inga Steina Joh

Innilegustu samúðarkveðjur til allrar fjölskyldunnar. Þetta er hræðilega sorglegt. knús, ljós og birta til ykkar.  

Inga Steina Joh, 15.11.2007 kl. 05:33

7 Smámynd: Linda

í Janúar kvaddi ég minn 11 ára hund Dakóta, hann var með krabba í milti, hafði ekkert borið sig illa, en svo allt í einu, varð hann veikur, ég lét svæfa hann, ég sakna  hans ennþá, og mun ávalt gera, að kveðja dýrin okkar er eins átakanlegt og að kveðja okkar mennsku vini og fjölskildu, sálfræðingar vilja meina að það gæti verið jafnvel erfiðara sakir þess að ekki skilja allir þessi tengsl milli mans og skepnu eins og dýravinir upplifa hana.  Ég veit að þetta verður ekki auðveld ganga, en, hún er kærleiksganga, því þið sleppið elskunni ykkar yfir til almættisins.  Knúsið hana fyrir mig. 

Knús. 

Linda, 15.11.2007 kl. 08:36

8 Smámynd: Guðni Már Henningsson

Iðunn er góður hundur. Og við vorum vinir. Þú ert besti vinur minn og taktu utan um þig frá mér. Ég elska þig Steina mín.

Guðni Már Henningsson, 15.11.2007 kl. 09:24

9 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Samhryggist ykkur innilega, ég veit hve erfitt er að missa vin sem hefur verið svona lengi hjá manni, alveg eins og einn af fjölskyldunni, þannig var með hann Lubba okkar, skoskur Collie.  Hann var 12 ára þegar hann varð undir bíl og dó.  Við syrgðum hann lengi.  Þið fáið samt að kveðja hana, það er gott. 

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 15.11.2007 kl. 17:48

10 Smámynd: halkatla

ég finn rosalega til með ykkur - en það er þó gott að fá að kveðja, kærleikskveðjur til þín og þinna

halkatla, 15.11.2007 kl. 17:50

11 Smámynd: www.zordis.com

  Kærleikur!

www.zordis.com, 15.11.2007 kl. 18:01

12 Smámynd:                                           OM

Om Mani Padme Hum

Kveðja, Leifur

OM , 15.11.2007 kl. 20:31

13 identicon

Elsku Steina. Samúðakveðjur til ykkar allra.

Kveðja Dæda

Seinunn Jónsdóttir (IP-tala skráð) 15.11.2007 kl. 22:07

14 Smámynd: Karl Tómasson

Mikið er ég viss um að Iðunn hafi verið heppin að eiga þig og þína fjölskyldu.

Þetta er svo sárt.  

Bestu kveðjur frá Kalla Tomm úr Mosó

Karl Tómasson, 16.11.2007 kl. 01:21

15 Smámynd: Solla Guðjóns

Iðunn kveður ykkur innilega sátt og þakklát fyrir að hafa átt yndislega ævi með yndislegum og kærleiksríkum húsbændum.

Hef ykkur í bænum mínum elsku Steina nín.

Solla Guðjóns, 16.11.2007 kl. 10:23

16 Smámynd: Dísa Dóra

  Knús til ykkar

Dísa Dóra, 16.11.2007 kl. 10:58

17 Smámynd: Guðni Már Henningsson

Ást til þín elsku Steina....

Guðni Már Henningsson, 16.11.2007 kl. 13:45

18 Smámynd: Anna Ólafsdóttir Björnsson

Skil allt of vel hvað þið eruð að ganga í gegnum. Vona þó að allar góðu minningarnar muni í framtíðinni yfirskyggja sorgina núna. En ég veit líka að það gerist ekki strax. Það er það erfiða að eiga þessi yndislegu dýr, við þurfum að kveðja þau.

Anna Ólafsdóttir Björnsson, 18.11.2007 kl. 22:20

19 Smámynd: Anna Ólafsdóttir Björnsson

Skrýtið annars, allt í einu þurfti ég svo mikið að fara á síðuna þína, skil núna hvers vegna.

Anna Ólafsdóttir Björnsson, 18.11.2007 kl. 22:22

20 Smámynd: Margrét M

æi þetta er sárt .fékk tár í augun þegar ég las , get ýmindað mér að  þetta sé erfitt ... sendi ykkur samúðarkveðjur og knús úr Kópavoginum

Margrét M, 19.11.2007 kl. 14:07

21 Smámynd: Hlynur Hallsson

Kæra Steina, ég skil sorg ykkar vel. Ég man eftir Iðunni sem litlum hvolpi hjá ykkur og auðvitað er hún fyrir löngu orðinn hluti af fjölskyldunni. En maður huggar sig við að þetta er henni fyrir bestu. Mínar bestu kveðjur til ykkar allra,

Hlynur Hallsson, 19.11.2007 kl. 14:22

22 Smámynd: Elín Björk

Það er sárt að sjá á eftir ásvinum sínum, innilegar samúðarkveðjur til ykkar

Elín Björk, 20.11.2007 kl. 00:11

23 Smámynd: Steinunn Helga Sigurðardóttir

sonur minn  (siggi) var að skoða bloggið mitt um daginn, hann hringdi í mig á eftir, hann hafði lesið allar þessar yndislegu athugasemdir sem þið kæru bloggvinir hafði setti inn til mín hann sagði: mamma er þetta fólk vinir þínir, humm góð spurning, sum ykkar eru persónulegir vinir mínir, en hin þekki ég bara héðan af blogginu. en þetta sýnir mikla samstöðu sem ég er hrærð og þakklát yfir.

Kærleikur og Ljós til ykkar allra.

steina 

Steinunn Helga Sigurðardóttir, 20.11.2007 kl. 07:18

24 Smámynd: Linda litla

Það er hreinlega eins og að missa sinn nánasta að missa dýr, það eru miklar tilfiningar sem maður ber til vina sinna og enn sterkari þegar maður hefur átt þau svona lengi. Samúðarkveðjur frá mér til þín Iðunn.

Linda litla, 20.11.2007 kl. 18:05

25 Smámynd: Guðný Anna Arnþórsdóttir

Á miðvikudagskvöldi: Hugsa sérstaklega til ykkar á morgun! Knús.

Guðný Anna Arnþórsdóttir, 21.11.2007 kl. 21:40

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband