fergurðin í því sem er, og sorgin í því sem við gerum !

IMG_2652

Í þessari viku, eftir morgundaginn byrja ég undirbúninginn á nýju fréttabréfi ! Það er oft ansi erfitt tímabil. Þetta fer of mikið í tilfinningarnar mínar ! Vildi að það væri öðruvísi, og ég gæti skilið hvert frá öðru, tilfinningar og hugsanir, en ennþá get ég það ekki. Allavega ekki þegar það er um blessuð dýrin, bræður okkar og systur. Set inn vídeó um úlfa og delfína (man ekki  hvernig sagt er delfínar á íslensku) Friður, Kærleikur og Ljós til ykkar allra.

Steina


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Háhyrningar heita þeir víst Steina mín, er hægt að skilja að tilfiinningar og hugsanir ? Við sem eru svona tilfinningabúnt, þurfum að læra að brynja okkur gegn illskunni.  Það er samt erfitt. 

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 25.2.2008 kl. 16:28

2 Smámynd: Gunnar Helgi Eysteinsson

Er það ekki höfrungar?

Manneskjan er skammalega grimm 

Gunnar Helgi Eysteinsson, 25.2.2008 kl. 16:38

3 Smámynd: Anna Ólafsdóttir Björnsson

Gangi þér vel með þetta erfiða verkefni. Sagt var eitt sinn: ,,Engin skepna er fullkomin en maðurinn er fullkomin skepna." Svolítið kaldhæðislegt (veit upp á mig skömmina, hættir til þess) en mömmu fannst þetta móðgun við dýrin.

Anna Ólafsdóttir Björnsson, 25.2.2008 kl. 17:01

4 Smámynd: Steinunn Helga Sigurðardóttir

kæra cesil já það er hægt að skilja tilfinningar og hugsanir hvert frá öðru. við höfum hugsanir, við erum ekki hugsanir okkar, við höfum tilfinningar, en við erum ekki tilfinningar okkar. ég er mikið að vinna að því að geta stjórnað þessu hvert frá öðru !!

kæra anna ! skemmtileg samlíking !

kæra sigríður, ég skil þig SVO vel, en ég tel mikilvægt fyrir mig að vita hvað er að gerast í heiminum, vegna þess að þetta er það sem fyllir huga min, næstum því mest !

kæri gunni, já, við erum svo sammála....

bless til ykkar allra inn í kvöldið! 

Steinunn Helga Sigurðardóttir, 25.2.2008 kl. 17:44

5 Smámynd: Vilborg Eggertsdóttir

Elsku Steina, þakka þér fyrir þetta framlag þitt til að vekja okkur til umhugsunar um, að það sem við gerum einhverju öðru - sama hvaða nafni það nefnist, erum við að gera okkur sjálfum.

~ ~ vilborg

Vilborg Eggertsdóttir, 25.2.2008 kl. 18:19

6 identicon

Ég var að flakka á netinu í kvöld og skoða ýmsar síður í sambandi við svani, þá rakst ég á veiðisíður, ég hélt að svanurinn væri bara allsstaðar friðaður, ég varð miður mín að lesa þetta.   Langaði mest að skrifa þrumuræðu og birta svanamynd á flickrinu mínu en guggnaði á því, geri það seinna þegar ég verð hressari.   Gott hjá þér Steina að gera eitthvað í málunum, ég þarf að peppa mig upp í þessum málum. 

Kærleiksljós til þín ...

Maddý (IP-tala skráð) 25.2.2008 kl. 23:03

7 Smámynd: Solla Guðjóns

Takk Steina mín.

Grimd okkar er ekki altaf meðvituð.Tifinningar hugsanir og gerðir eru flóknar.

Faðlag til þín

Solla Guðjóns, 26.2.2008 kl. 09:07

8 Smámynd: Marta B Helgadóttir

Gangi þér vel Steina.

Marta B Helgadóttir, 26.2.2008 kl. 20:48

9 Smámynd: Dísa Dóra

Gangi þér vel með fréttabréfið - þú ert að gera góða hluti

Dísa Dóra, 27.2.2008 kl. 11:07

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband