Færsluflokkur: Vísindi og fræði
Við erum öll í einu orkufelti, sjáið bara vísindi !!!
1.12.2008 | 08:42
Kæru bræður og systur, mánudagur til gleði !!! Hef daginn fyrir mig með skrifum og að læra ensku betur.
Langaði að sýna ykkur þetta frábæra vídeó ! Mæli með að þið gefið ykkur tíma, þetta er mjög, mjög magnað.
Hafið fallegan og yndislegan dag öll sem eruð hluti af mér og ég af ykkur.
Gleðilega aðventu allir nær og fjær !
30.11.2008 | 12:46
Núna er gleðileg aðventa !!!
Jólaboðið í gær var gott ! Svolítið rifist hátt, svo voru allir vinur.
Ég og Sól gerðum aðventukrans í morgun. Fórum út og týndum það sem þurfti í hann, mosa og greinar. Svo tók litla skottan yfir og spreyjaði smá glimmer hér og þar og svo varð til þessi fallegi aðventukrans.
Við höfum tekið því rólega í morgun, drukkið te og kaffi og bara verið. Við erum bæði þreytt eftir gærkvöldið. Gunni fór til Kaupmannahafnar og var með Sigga okkar.
Á eftir erum við að fara til Sigynjar og fjölskyldu. Þau eru með jólabasar á veitingastaðnum sínum á norður Sjálandi.
Ég man þegar við komum fyrst til Danmerkur, þá hringdi maður heim kannski á nokkurra mánaða fresti, það var nefnilega svo dýrt. Læt vera að segja frá því hversu oft Sigyn dóttir hringdi heim til Íslands til vina sinna.
Læt nægja að segja að við vorum spurð um það einu sinni í bankanum þegar við vorum að borga símareikning , hvort við rækjum fyrirtæki, híhí.
En núna í dag eru möguleikarnir svo miklir. Sól sat í morgun með vinkonu sinni Nínu. Ekki frásögu færandi, en þær voru að spila spil við vinkonu sína á Fjóni ! Þetta hefði verið óhugsandi á sínum tíma. Þær hringjast við mörgum sinnum í viku í gegnum Skypið og blaðra og spila og eru að kíkja á hinar og þessar dýraheimasíður saman.
Það hefði á sínum tíma sparað okkur um hundruði þúsunda að hafa þessa tækni, þegar Sigyn mín bjó heima.
Núna ætla ég og fá mér hádegismat áður en við keyrum norður eftir.
Kærleikur og Ljós til allra
Set inn smá myndir af boðinu í gær !
skrítin upplifun sem ég vil deila með þér...
13.11.2008 | 15:53
Það er orðið haustlegt hérna í Danmörku. Ég fór með vettlinga á höndunum í morgun þegar ég fór í vinnuna.
Á morgun er þessari vinnutörn lokið, vikufríið mitt byrjar á mánudaginn og ég hlakka mikið til. Ég er að klára uddannelssplanen í skólanum þessa dagana. Þar að segja að útfylla alla pappíra sem eru margir fyrir hvern nemanda í ungdomsuddannelsen sem er svo sent til námsráðgjafa sem fylgir hverjum nemanda, foreldra og sveitarfélaga. Ég sendi það síðasta út á morgun með bréfi um hvenær við fundum fyrir hvern og einn nemanda. Þetta er heilmikið batterí og ég verð svo feginn þegar ég er búinn að þessu.
Það hefur ekkert sérstakt gerst undanfarið nema ég hef það betur en ég hafði það áður. Ég hef haft góðan tíma með þerapístanum mínum og það var til að hjálpa mér að skoða hlutina ofan frá og þá er allt auðveldara.
Ég hef voða mikið verið að hugsa um atburð sem gerðist einu sinni fyrir mig.
Mig langar að deila því með ykkur, því ég hef verið að huga um hvað þetta hafi verið.
Þannig er að ég var á heimavistarskóla í tvö ár frá því ég var 15 ára til 17 ára.
Þetta gerðist þegar ég var 16 ára.
Það var eitt kvöld að mikil læti voru á vistinni, það gerðist hlutur sem ég vil ekkert fara út í hérna, enda hefur það ekkert með frásögnina að gera. En við á herberginu mínu vorum í mjög miklu uppnámi og grétum þessi ósköp og gátum ekki fallið í ró. Skólastjórinn kemur og talar við okkur og reynir að róa okkur. Kemur hann svo að rúminu mínu og segir mér að fyrr um kvöldið hafi gerst undarlegur hlutur. Hann hafi verið inn í eldhúsi að drekka kaffi. Hann var einn, af hverju veit ég ekki. Þá er bankað á dyrnar hjá honum. Ég vil taka það fram að skólinn er langt frá öllum mannabyggðum og til að keyra upp að skólanum þarf að keyra dágóðan spotta frá þjóðveginum.
En sem sagt hann opnar dyrnar og fyrir utan stendur maður. Hann biður um að fá að koma inn.
Hann biður um að fá vatn að drekka, sem hann fær.
Það eru svið á borðinu og hann spyr skólastjórann hvað þetta sé. Skólastjórinn verður undrandi á þessari spurningu, en segir honum að þetta séu svið. Hann bíður honum að smakka og mig minnir að hann hafi þegið það.
Svo spyr maðurinn hvort það sé stúlka þarna í skólanum sem komi frá Vík í Mýrdal sem hafi stafinn S sem fyrsta staf í nafninu sínu. Svo lýsir hann nokkrun veginn hvernig ég leit út. Hann nefnir m.a. að ég hafi græn augu og að mamma mín hafi I sem fyrsta stafinn í nafninu sínu (sem passar) Svo kemur hann inn á ýmis mál frá fjölskyldu minni sem ekki var á almanna vörum og fáir vissu.
Skólastjórinn segir að svo geti vel verið, en hvað það er sem hann vilji henni. Hann sagðist nauðsynlega þurfa að tala við hana um mjög áríðandi hlut.
Skólastjórinn sagði að það væri ómögulegt, þar sem hún væri farinn að sofa, en hann gæti komið að degi til ef það væri svona mikilvægt.
Spyr þá maðurinn hvort hann megi skrifa bréf til mín og hann /skólastjórinn vilji færa mér það. Segist hann að sjálfsögðu vilja gera það.
Bað þá maðurinn um blað og penna og skrifaði mér bréf.
Hann gefur svo skólastjóranum bréfið, kveður og hverfur út í nóttina.
Skólastjórinn gaf mér svo bréfið og sagði um leið að þessi maður hafi haft mjög sérkennileg augu.
Mér fannst þetta allt hið undarlegasta mál. Ég las bréfið en man ekki allt sem stóð í því, en ég man að það var skrifað með bláum kúlupenna.
Ég man heldur ekki allt sem hann skrifaði, en það sem ég man, var að hann sagði að ég hefði verið í draumunum hans í langan tíma og að hann vildi svo gjarnan gera eitthvað fyrir mig. Ef ég vildi gæti hann smíðað handa mér húsgagn. Einnig var símanúmerið hans í bréfinu, til að ég gæti hringt í hann.
Við fengum allar stelpurnar að lokum svefntöflu til að geta sofnað eftir mikil átök og ekki man ég fleiri smáatriði.
Ég reyndi að hringja í þetta númer, en það var ekki mögulegt að fá samband við þennan mann.
Ég hugsaði ekki oft um þetta, gleymdi þessu reyndar í mörg ár en undanfarið hef ég hugsað mikið um þetta og spáð í hvað þetta hafi verið og hver þetta hafi verið.
Gaman væri að heyra ykkar komment um þessa skrítnu upplifun sem ég hafði.
Núna ætla ég að gera mér gott te og fara svo í göngutúr með Lappa sæta.
Kærleikur til alls lífs og þín
Vísindi og fræði | Breytt s.d. kl. 15:59 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (18)
rigning
11.11.2008 | 17:10
Ósköp er ég eitthvað löt að blogga, er alltaf inni á fésbókinni að skrifa smátt og ekkert. En ég á heima hérna líka og góða vini hér sem ég vil ekki missa.
Allt er gott héðan að frétta.
Haustið er að koma, það finnur maður mest á rigningum og rigningum og aftur rigningum.
Mér er svosem alveg sama, finnst bara notalegt að vera inni og heyra rigninguna lemja á hitt og þetta úti í garði.
Ég er feginn að vera ekki fugl í rigningunni, því það er kannski þungt á vængjunum þegar droparnir eru að reyna að smjúga inn að holdinu. Það er þó þannig að fjaðrir hrinda frá sér vatni, þannig að droparnir slást við fjaðrirnar, eða þannig.
Ég vildi heldur ekki vera ormur eða skordýr með þessa risa dropa sem eru stærri en þau sjálf og koma alveg eins og sprengjudropaæði hver á eftir öðrum og gera svo mikinn usla í skordýraheiminum.
Nei, það er þó gott að hafa þak yfir höfðið sitt og skjótast inn þegar rignir. Maður getur líka skotist inn í regnkápuna ef rignir og maður finnur löngun hjá sér að vera úti.
Líka undir regnhlífina ef maður vill vera á peysunni eða kjólnum úti fyrir.
Líka inn í bílinn eða eitthvað annað ef maður vill hvorki hafa regnhlíf eða regnkápu og er kannski með voða fínt hár á höfðinu.
Þó svo að fyrir mér sé rigningin ekkert þægilegust, þá held ég að á sléttum Afríku komi til með að vanta vatn á næstu tímum.Þess vagna ætla ég ekkert að vera að óska mér rigningarleysis en að vera þakklát fyrir að sem kemur, hvað sem það er því ekki deyjum við hérna í Danmörku af vatnsskorti, nei nei sei sei
Blessuð séu dýrin okkar sem deila Móður Jörð með okkur!
Hérna er mjög áhugaverð grein sem Björk okkar allra skrifað í TimesOnline !
31.10.2008 | 11:06
Ég og Lappi englabossi vorum að koma úr göngutúr. Ég tíu kílóum léttari en áður fyrr og Lappi jafn fallegur og áður fyrr. Göngutúrinn var líka meira svífandi bæði á líkama og sál.
Við hittum nokkra hunda sem bæði vildu heilsa okkur og svo líka nokkrir sem vildu ekkert tala við okkur. Þeir fengu svo sannarlega að heyra það, Lappi lætur sko ekki bjóða sér hvað sem er, hann er sko Lappi kóngur, Íslands eina vona, Lappi Steinuson !!!
Við löbbuðum í klukkutíma, heilsuðum hestunum, beljunum og fuglunum, allt á ljúfu nótunum og Lappi ekkert að rífa sig.
Veðrið er dásamlegt, sól og kalt loftið, engin vindur.
Laufblöðin liggja um allt í allavega brúnum, grænum og rauðum tónum. Eplin voru þarna líka um alla jörð. Hugsaði mér á leiðinni að plata Sól og Gunna á sunnudaginn á Dyrehavsbakken til að sjá öll dádýrin í pörunarástandi.
Einu sinni fyrir mörgum, mörgum árum fórum Siggi, Gunni og ég þangað á þessum tíma og það var alveg frábært. Við gátum nánast snert dádýrin og hornin þeirra. Við sjáum til hvort þau hin í fjölskyldunni hafi einhver plön. Við höfðum talað um að fara til Sigynjar og fjölskyldu, þau búa ekki svo langt frá þannig að þetta gæti verið í leiðinni.
Ég fékk pakka áðan frá besta vini mínum, ég elska að fá pakka og fæ alltaf fiðrildi í magann þegar ég sé að það liggur svona leyndarmál og bíður mín, þegar ég opna póstkassann.
Takk vinur minn !
Annars er lífið bara ljúft eftir þau átök sem hafa verið undanfarið. Ég finn að þó svo þetta hafi verið svona erfitt þá hefur þetta verið svo lærdómsríkt fyrir mig og ég er þakklát þeim sem voru með til að skapa þetta vandamál. Það þarf nefnilega svo oft erfiðleika til að vaxa í þroska og auka skilning sinn í meiri víddum.
Í dag ætla ég að setja niður síðustu laukana í garðinn og taka aðeins til í honum fyrir veturinn. Njóta sólarinnar og selskap með sjálfri mér. Næsta viku bíður upp á vinnu og fundi og mikið að gera. Einn nemandinn í skólanum sem hefur verið hjá okkur í sex ár, hættir í næstu viku. Sveitarfélagið sem hún kemur frá vill ekki borga meira fyrir hana þrátt fyrir að foreldrarnir hafi gert sem var í þeirra valdi.
Þetta er ósköp leiðinlegt, en ekkert hægt að gera við því. Við erum sem betur fer með biðlista af nemendum sem vilja komast inn í skólann. En engin þeirra getur fyllt það skarð sem hún skilur eftir sig. Svo yndisleg stúlka sem hefur gefið okkur öllum yndislegar minningar til að gera líf okkar ríkara en ella..
Jæja kæru vinir á blogg heiminum KærleiksLjós til ykkar allra og ósk um að þið fáið fallega helgi.
Hérna er mjög áhugaverð grein sem Björk okkar allra skrifað í TimesOnline !
http://www.timesonline.co.uk/tol/comment/columnists/guest_contributors/article5026175.ece
Vísindi og fræði | Breytt s.d. kl. 12:00 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (12)
ómeðvitað einelti
26.10.2008 | 10:42
Núna fer Danmörk frá sumartíma yfir á vetrartíma. Ég hef eiginlega aldrei skilið þetta dæmi og það er erfitt að fatta hversvegna. Ein reglan segir að til að muna hvort við förum fram eða til baka í tíma, þá segjum við að á vorin setjum við garðhúsgögnin út, sem þýðir að tíminn fer fram og á haustin tökum við garðhúsgögnin inn, einn tími til baka. Sem sagt núna er bara eins tíma munur á Danmörku og Íslandi en á sumrin er tveggja tíma mismunur.
Það er rigning úti og haustlegt og það er voða huggulegt. Ég og Sól sitjum hérna inni í stofu saman í sitt hvorri tölvunni, við kertaljós til að auka á hugguna.
Sól ímyndar sér að það sé líka mikilvægt fyrir hana að hafa sjónvarpið keyrandi í bakgrunninum, því hún er líka að fylgjast með barnaefninu. Ég vel að vera ekkert að nöldra yfir því, enda vel ég vandlega hvað ég vil nöldra yfir þessa dagana.
Það hefur verið erfiður tími undanfarið, en mjög lærdómsríkur. Ég hef fundið fram fullt af hlutum sem ég þarf að vinna betur á hjá mér og það er alltaf jákvætt og gott.
Ég hef oft í gegnum árin í samræðum og umræðum bara samþykkt það sem sagt er, ef ég hef ekki haft neina sérstaka skoðun á efninu. Sérstaklega á það við hjá þeim sem mér þykir vænt um. En nú er tími breytinga, ég þarf að skoða í hvert sinn, hvað mér finnst um öll málefni, því annars getur það rúllað upp á sig og farið illa og eyðilagt og meitt.
Vegna þessa hef ég misst nána vini mína.
Ég hef verið eins og lömuð undanfarið og ekki getað annað en lokað mig af og sleikt sárin. Núna er ég að skoða hvernig ég hefði getað gert þetta öðruvísi og betra fyrir heildina. Ég get að sjálfsögðu ekki eingöngu fókuserað á hvað hinir sem voru hluti af þessari krísu gerðu rangt eða rétt. Ég þarf að einbeita mér að því hvernig ég hefði getað gert hlutina betur og það er margt.
Þetta hefur allt haft langan aðdraganda og fullt af samtölum, með hjálp utan frá til að reyna að redda þessu eins vel og hægt var, en það dugði ekki.
Út frá því sem ég hef upplifað undanfarið, þá hef ég í raun hugsað hversu auðvelt það er að verða vafinn inn í að leggja í einelti án þess að gera sér alveg grein fyrir því hvað það er sem er að gerast. Ég hef í langan tíma verið hluti af því, án þess að gera mér grein fyrir því að það er í raun það sem hefur verið að gerast, á hinum innri plönum.
Ég hef í langan tíma samþykkt reiði kærar vinkonum minnar. til annarrar persónu í grúppunni okkar. Ég hef samþykkt það sem hún hefur sagt og við öll verið hluti af pirring til hans sem ekkert vissi en var allt það sem pirringurinn beindist að. Við gátum séð að betur mátti fara hjá honum, gleymdum að skoða hvað betur mátti fara hjá okkur sjálfum, sem er það sem þetta er allt um. Ég hef hlustað og hlustað og oftast verið sammála og með því verið þáttakandi í að senda þessa reið yfir á hann sem okkur fannst geta gert hlutina betur. Hann var í sínu líkamlega lífi alls óvitandi um það sem gerðist. En áhrifin hafa örugglega sett sín spor á hann án þess að hann vissi.
Það er nú þannig að ég hef oft upplifað svona áður og verið þáttakandi í baktali um aðra, en aldrei upplifað það sem einelti, ég hef ekki hugsað það neitt sérstakt, því þetta er nú einu sinni hluti af okkur mannkyni. En núna upplifi ég þetta mjög sterkt sem ein grein af því að leggja í einelti og senda vonda orku yfir á aðra, sem er í raun að senda vonda orku yfir á sjálfa mig. Við erum nefnilega öll hluti af því sama.
Það þurfti að koma svo langt að talið var að hann væri ekki hæfur, þá loksins vaknaði ég upp frá þessari martröð og varð að segja það sem hjartað sagði. Það kom að sjálfsögðu öllum í opna skjöldu, bæði honum, þeim og mér.
Ég fékk vont bragð í munninn yfir mér, yfir að bregðast ekki við út frá hjartanu frá upphafi, en að bregðast við út frá því sem var þægilegast á þeim tíma. Að standa með vinum mínum í hinu líkamlega lífi, á móti bróður mínum á innri plönum. Ég sé hversu langt er í land með að verða það sem ég óska mér.
Ég hef þó fengið skilning í gegnum þessar vikur, ekki bara sem einhver orð sem ég heyri, en ég skil alveg inn frá hjartanu að allir gera það besta sem þeir geta, það besta út frá því hvar viðkomandi er. Það er hvers og eins að skoða sjálfan sig og elska. Ef við elskum og virðum ekki okkur sjálf, þá er ómögulegt fyrir okkur að elska bræður okkar og systur,
Það er hægt að sjá þetta í heimsmyndinni hvernig við meiðum og drepum hvert annað, þannig erum við við okkur sjálf.
Ég held að svona þátttaka eins og ég hef verið hluti af, sé eitthvað sem flestir þekki sig í og sé í raun mikið vandamál allsstaðar. Í fjölskyldum, á vinnustöðum, í vinahópum, andlegum grúppum og svona mætti lengi telja.
Ég sé einnig að reiði er á einhvern hátt meira sjálfstæð en ég gerði mér grein fyrir. En reiðin notar okkur sem verkfæri til að eyðileggja góð mannleg samskipti eins og reiðinni er mögulegt. Reiðin notar okkar veikleika til að breiða út eins mikilli reiði á eins fljótan hátt og mögulegt. Við í okkar veikleika gefum reiðinni, baknaginu, vondri orku leifi til að nota okkur, því það er ákveðin fullnæging í að rægja aðra niður, þar að segja okkur sjálf því. því við eigum ekkert betra skilið, finnst okkur. Við elskum ekki okkur sjálf, við elskum ekki náungann !
Það væri gott ef allir hugsuðu sig vel um og skoðuðu það sem er að gerast áður en það meiðir eða splittar fólki hvert frá öðru. Það ætti alltaf að vera móttó að safna fólki saman, en ekki splitta fólk frá hvert öðru.
Hugsa sig um áður en við samþykkjum eitthvað sem annar segir illt um annan. Það að við bregðumst ekki alltaf rétt við, er ekki að við séum vondar manneskjur, en ef við höfum einhverja reiði til okkar sjálfra, eða höfum minnimáttarkennd eða eitthvað annað, þá gerum við það sama við náunga okkar.
Það sem ég hef reynt að einbeita mér að, er að ekki dæma sjálfan mig, en samþykkja og vera meðvituð um að ég gerði það besta sem ég gat á þessum tíma en að skoða án gagnrýni málið frá öllum hliðum til að læra og vaxa á því.
Kærleikur inn í fallegan sunnudag til ykkar allra kæru bræður og systur.
páfagaukapeningaleysisgleðibanki í októbersólinni
12.10.2008 | 14:02
Allt er eins og vanalega ! Ljósið skín innan frá og út en núna er tíminn til að lifa það.
Ég geri allt eins og áður, nema ég hugsa um hverja vöru sem ég ætla að kaupa.
Ég hugsa ekki um það sem mig langar að eignast af alla vega vörum.
Engan Iphone í jólagjöf !
Við saumum gjafir til stúlkna okkar í Afríku og Tælandi.
Við gerum garðinn fallegan fyrir næsta sumar.
Engin ferð í haustfríinu.
Við ætlum í ZOO og við ætlum að vera saman í fallegu haustinu hérna.
Plönum engin ferðalög næsta sumar, en garðurinn er fallegur, og Lappi verður ánægður.
Við misstum enga peninga, við áttum heldur ekki neina peninga.
Við fórum í yndislegt matarboð hjá vinum okkar í gærkvöldi, það var svo ljúft. Við erum þrenn hjón hérna í bænum sem borðum alltaf saman einu sinni í mánuði. Allt var eins ljúft eins og í gamla daga.
Við löbbuðum heim eftir matarboðið í smá rigningarúða, það var ljúft og fallegt og ró yfir okkur.
Við drukkum morgunkaffið okkar í rúminu í morgun. Við spjölluðum um gærkvöldið, við spjölluðum um vini okkar og ættingja á Íslandi, við sendum líka hlýjan hug heim til Íslands.
Við spjölluðum um hvað við ætluðum okkur að gera í dag.
Ég fór inn í hug hugleiðslunnar
Sól og Gunni fóru á eplaplantekruna að týna síðustu eplin.
Ég kom til baka frá hinum innra heimi og sópaði, vaskaði upp, hlustaði á músík , gaf dýrunum, labbaði í garðinum.
Ég settist í sófann og skrifaði Gordon bréf. Ég fékk mér hádegismat og skoðaði fréttir innanlands og erlendis. Ég skoðaði fréttir um Obama, og mér hlýnaði um hjartað.
Ég gekk aðeins út í garð aftur, og ákvað svo að fara í bað. Ég fór í baðið, og það var ósköp stutt, en vellíðan við að vera hrein .
Ég fór aftur á netið og horfði á fréttir frá ríkissjónvarpinu heima. Ég fékk mér vatnssopa.
Settist svo hérna niður og ákvað að setja smá niður inn á bloggið. Múmín er hérna á stólarminum við hliðina á mér, á borðinu stendur fallegur blómvöndur með appelsínugulum og dökk rauðum blómum í bláum vasa með vatni frá krananum okkar.
Það er gott vatnið í Lejre.
Klukkan í eldhúsinu tifar tikk takk og það eru tvær flugur alltaf að setjast á höndina á mér á meðan ég er að skrifa. Ég sé líka þegar ég kíki upp frá tölvunni og horfi út um gluggann að það eru fullt af flugum og sólin skín inn um gluggann.
Það er í raun ótrúlegt að það skuli vera svona mikil sól í október. Það er meira en sól, það er svo milt veðrið. Ég er nú þakklát fyrir það.
Ég heyri svo margt, og ég get valið að verða hrædd og fara í panik, en í raun eru þetta bara tölur sem ég heyri sem svífa óraunverulega í loftinu, þær ná ekki alveg inn í mig. Því lífið er í raun um eitthvað mikið meira og dýpra. Ég ætla eins lengi og ég get að vera í núinu og taka því sem koma skal, ekki að vera í sorginni og hræðslunni fyrirfram.
Ég held að þetta bæði getir verið og verði verra.
Það er svo mikið að lifa upp til, þegar margir peningar eru, en núna er bara að vera.
Stundum þegar ég er að hugsa um lífið, upplifi ég það eins og leikrit. Kannski svona spuna sem við improviserum. Það koma upp fullt af óvæntum hlutum sem við á besta veg reynum að leysa og leysa eins vel og við getum. Fyrir utan sviðið eru áhorfendur sem fylgjast með og skoða hversu vel okkur tekst og ef ekki tekst vel, þá æfum við atriðið aftur og aftur og aftur.
Það eru í raun að mínu mati engir erfiðleikar í lífinu, en fullt af möguleikum til að verða betri manneskja.
Allt er í raun eftir því hvernig við veljum að sjá það.
Páfagaukarnir mínir eru úti í sólinni í búrinu sínu, þeir eru svo glaðir ...
Kærleikur heim og Kærleikur til alls Alheims.
ég megi flytja birtu þangað sem myrkt er
30.9.2008 | 14:47
Ég og Lappi fórum í göngutúr í morgun í dembandi rigningu. Það var gott, ég var í stuttum buxum með rauða regnhlíf með hvítum doppum. Lappi var eins og alltaf svartur og hvítur.
Við mættum einum hundi sem var með svo stóra grein í munninum, greinin var stærri en hann. Við mættum líka manninum sem var með honum, hann hafði bláa regnhlíf.
Við sáum líka fugl með langa og flotta vængi, eins og svifflugvél, hann var flottur og mig grunar að hann hafi vitað það, því hann flaug aftur og aftur í kringum okkur.
Annars er þetta ekki það sem ég vildi segja Ég vil segja ykkur að á laugardaginn er besti dagur heimsins, dagur sem allir ættu að taka þátt í og sýna þakklæti sitt til bræðra okkar og systra ! Það er dagur dýranna
Til minningar um hinn mikla mann og verndarengil dýranna Frans frá Assisi .
Dýraverndunarsamtök um heim allan halda þennan dag heilagan og
hátíðlegan !
Þetta eru tímamót sem við ættum aðeins að staldra við og hugsa Við ættum að hugsa um það sem við gerum fyrir þau elsku hjartans dýrin og hvað þau gera fyrir okkur.
Er jöfnuður á sem við getum verið stolt af.
Sýnum við þeim þann Kærleika og þakklæti sem þeim ber.
Einu sinni talaði ég við konu um dýrin og það að þeim er fórnað fyrir okkur ! Hún leit á mig og sagði, en Steina dýrin fórna sér fyrir okkur og það fannst henni sjálfsagt.
Það fannst mér skrítið, þetta er að mínu mati ekki fórn, þetta er rányrkja, og oftar en oft ill meðferð sem rekin er áfram af græðgi í auð sem fengin er á kostnað þeirra.
Stundum skammast ég mín fyrir hvernig við mannkyn látum stjórnast af stundargræðgi, án hugsunar um að við erum öll eitt, tengd hvert öðru. Líka dýrunum og gróðrinum, og vatninu og loftinu.
Ég hugsa líka um, að án okkar myndi dýraríkið og plönturíkið geta lifað í sinni eigin tilveru hérna á jörðinni en án dýraríkisins og plönturíkisins gætum við á engan hátt lifað hérna á jörðinni.
þannig að hver er háður hverjum.
Hver hefur allt sitt undir hverjum, og hvernig þökkum við fyrir það.
Ég skrifaði um daginn, um það að þakka fyrir sig, um það að þegar við neitum matar, að við sendum smá þökk í huganum til þess sem hefur látið lífið fyrir þessa máltíð. Það kostar okkur ekkert, en gerir okkur meðvituð og hversu dýrmæt þessi fæða er, hversu mikil fórn liggur í hverjum bita, það er líf , sína tilveru, sem hefur yfirgefið þessa jörð svo við getum neitt þess.
Það væri mikið gert fyrir dýra og plönturíkið ef við á degi dýranna tökum upp þann sið að segja Takk ! Kannski gætum við stofnað samtök sem segja Takk, fyrir til dýra, plantan og vatnsins og loftsins!
Eða hvað ?
Í morgun heyrði ég viðtal við rithöfund sem er að gefa út bók. Ég man ekki hvað bókin heitir , eða hvað rithöfundurinn heitir. En hún sagði svolítið merkilegt sem fékk mig til að hlusta.
Hún hafði á meðan hún skrifaði bókina notað mikinn tíma til rannsókna, rannsókna á sögu þrælahalds í Danmörku. Hún skoðaði hvernig fólk varð mjög auðugt á þrælahaldi, þrælahaldið var ekki hérna í Danmörku en í fjarlægum löndum sem voru í eigu Danmörku.
Í þessu þrælahaldi varð sem samt ákveðin hópur óhuggulega ríkur. Það var aldrei talað um það eða skrifað í þeim bréfum sem hún las frá þeim tíma. Sennilega vegna þess að þetta talaði maður ekki um. Fjarlægðin gerði það líka, að þetta snerti fólk ekki, þau fengu bara sína peninga.
Enn það sem ég hjó eftir var að hún líkti þessi við hvernig við förum með dýrin sem við borðum. Rányrkja á dýrum, þar sem stórbændur troða eins mörgum hænsnum, svínum, beljum, refum og og og, á eins lítið pláss og mögulegt til að geta framleitt eins mikið og mögulegt og eins ódýrt og mögulegt. Hver vinnur og hver tapar ! Við kaupum þetta ódýrt, og hann gerir þetta eins ódýrt og mögulegt. Það er bara blessað dýrið sem er fléttað inn í þessa gróðahugsun og fær ekkert fyrir það sem það fórnar.
Við segum alltaf, jú en við verðum að fá kjöt, já ég veit að margir þurfa kjöt, en við borðum orðið of mikið kjöt og við borðum hvaða kjöt sem er, án þess að hugsa um hvaðan kjötið kemur og hvernig það hefur verið framleitt. Við horfum í veskið . Og í staðin fyrir að kaupa aðeins dýrara kjöt af dýri sem hefur fengið gott líf, þá veljum við oftast að kaupa mikið kjöt fyrir sem minnstan pening. Þessi hugsun er sú hugsun sem við ættum að skoða og endurskoða.
Við borðum fimm sinnum meira kjöt á hvert mannsbarn en við gerðum í kringum 1950. Þessi mikla aukning er talin halda áfram að aukast á næstu árum. Þessi aukning hefur ekki bara áhrif á dýrin og þeirra líf eða heilsuna okkar, Þetta hefur líka mikil áhrif á loftslagsbreytingarnar á jörðinni. Það vita sennilega ekki margir, en út frá rannsóknum hjá Fod and Agriculture Organization,red eru dýraframleiðendur ábyrgir fyrir18 % af co2 í andrúmsloftinu. Annað sem er svo ömurlegt er að við HENDUM 10 til 12 % af þeim matvörum sem við kaupum. Þetta er engin virðing fyrir því sem lifir. Og þegar við hugsum það aðeins lengra, þá getum við flutt það yfir á okkur sjálf.
Við höfum enga virðingu fyrir því sem lifir, við höfum enga virðingu fyrir okkur. Því við erum öll hluti hvert að öðru. Það er ekki bara ég sem segi það, það er vísindalega sannað, og hana nú !
Ég ætla nú ekki að fara út í einhverja upptalningu á þessum málum, en það passaði bara inn í það sem ég var að skrifa og er að mínu mati til umhugsunar um það hvert við viljum láta þessi mál þróast, og eins og ég skrifa það erum við sem ráðum því það erum við sem veljum það sem við kaupum og hvað við veljum að styrkja m aurunum okkar.
Ég vona að sem flest ykkar verði með hugann við laugardaginn og sameinist okkur í TAKK
Til heiðurs Frans frá Assisi set ég þessa bæn inn til okkar allra
Bæn heilags Frans frá Assisi
að ég megi flytja kærleika þangað sem hatur er
að ég megi flytja anda fyrirgefningar þangað sem ranglæti er
að ég megi flytja samhug þangað sem sundrung
er að ég megi flytja sannleika þangað sem villa er
að ég megi flytja trú þangað sem efi er
að ég megi flytja von þangað sem örvænting er
að ég megi flytja birtu þangað sem myrkt er
að ég megi flytja gleði þangað sem hryggð er
Drottinn, veittu að ég megi fremur leitast við að hugga en að vera huggaður
að skilja fremur en að vera skilinn
að elska fremur en að vera elskaður.
Því með því að gleyma sjálfum mér, auðnast mér að finna.
Með því að fyrirgefa öðlast ég fyrirgefningu.
Með því að deyja vakna ég til eilífs lífs.
Amen
Vísindi og fræði | Breytt s.d. kl. 15:19 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (19)
maðurinn sem plantaði trjám !
28.9.2008 | 13:02
Núna er huggan í hámarki á sunnudegi, á morgun er hinn stóri fundardagur !
Þannig að nú er um að gera að njóta þess að vera í fríi og gera það sem mig langar.
Mig langar að skrifa smá blogg, hlusta á músík, og bara slappa af.
Sló garðinn áðan, sem var góð líkamsæfing í klukkutíma.
Gunni og Sól eru á eplaplantekrunni, að týna og týna epli svo að við fáum sem mest af eplamost fyrir veturinn.
Alexandra Manlei situr í stólnum hérna á móti mér og horfir á mig með sýnum djúpu augum. Hún hefur alltaf verið svo, svona.
Þegar við fengum hana fyrir 13 árum, þá var hún nokkra mánaða og svo horuð með einhvern augnsjúkdóm og full af orm og flóm. Einhverjir höfðu fundið hana og annan kettling í plastpoka troðið inn í göturist í Kaupmannahöfn.
Það var hringt í okkur og við beðin að taka hana, og að sjálfsögðu gerðum við það. Hún var fyrsta kisan af mörgum. Allar fundist hingað og þangað á einverubraut, nema Múmín hann kom frá tryggri fjölskyldu. Það er þó ekki hægt að finna það á honum. Hann er skrítinn, en sætur.
Núna er Alex, drottning drottninganna og hún virðir mig fyrir sér og hugsar sennilega eitthvað sem ég vil ekkert vita. Er hún ekki flott ?
Núna í gær var liðin mánuður síðan ég borðaði sykur og hveiti og margt annað óholt. Kílóin hverfa og ég verð léttari í lund.
Ég finn tildæmis að næmni mitt eykst, ég finn samband mitt við líkamsdivuna aukast dag frá degi. Ég finn eins og sambandið frá því innsta sé opin straumur í gegn um kroppinn, án eiturefna sem stoppa og trufla. Það er erfitt að útskýra það í orðum, en einhver glóð sem hefur alltaf skinið, nær í gegn og mér er fært að ná geislum hennar, vegna hreinleika kroppsins.
Ég er svo þakklát á hverjum morgni að þessum áfanga er náð. Einu sinni stoppaði ég með að drekka áfengi á sama hátt. Áfengið truflaði þróun hugans og líkamans. Áfengið var alltaf lengi í kroppnum sem hafði áhrif á hugleiðslunar mínar. Það var ekkert auðvelt í huggulandinu þar sem allt byggist á að fá sér bjór saman , að stoppa. En það gekk. Það er 5 til 6 ár síðan.
Ég var svo hamingjusöm þegar þessi löstur var yfirunninn.
Svo var það sykurinn, ég er nefnilega sykurgrís, en núna er það líka fortíð og það er svo góð tilhugsun. Ég helt í raun, einhversstaðar að ég yrði bara að lifa við þetta, ég tæki bara á þessu í næsta lífi.
En svo var ekki !
Á eftir þegar þau koma heim, ætlum við á ströndina, kannski böðum við. Það er nefnilega svo fallegt veður.
Ég set hérna inn alveg ofsalega fallega mynd, ég hvet ykkur til að gefa ykkur tíma til að horfa á hana.
Kærleikur til ykkar !
Fíkn
13.9.2008 | 19:32
Yndislegur dagur hjá mér. Ég byrjaði daginn á að fara á kynningarmessu á öllum menntunar tilboðum fyrir ungt fólk sem hefur einhver vandamál ! Það var alveg ofsalega mikið að skoða og ég kom heim með tíu kíló af bæklingum dvdíum og öllu mögulegu til að fara með í skólann og skoða nánar.
Þegar ég kom heim komu Sól og Gunni á næstum sama tíma. Gunni hafði fylgt Sól og Cesilia til Hóraskeldu þar sem þær eru í leiklistarskóla fyrir börn.
Við fórum að vinna í garðinum í alveg frábæru veðri. Allt var gert fínt og flott.
Við fórum svo inn og ég og Sól fengum okkur indælan kvöldverð en Gunni fór út á lífið í Kaupmannahöfn.
Núna sitjum við Sól hérna inni í stofu í sófanum, drekkum te og erum að horfa á sjónvarpið.
Við erum báðar miklar tekellingar .
Það er ýmislegt að gerast inni í kollinum mínum þessa dagana eins og svo oft áður. En það sem er að gerast inni í höfðinu á mér hefur áhrif á alla mína líðan, og vekur mér vellíðan sem ég hef ekki fundið fyrir í mörg mörg ár.
Þannig er að ég eins og milljónir annarra hef einkennilegt samspil með mat. Ég hef alla tíð bæði hatað og elskað mat. Við Gunni erum bæði mikið matarfólk og vitum fátt skemmtilegra og huggulegra en að borða góðan mat.
Ég hef alla tíð haft svona samband við bæði kroppinn minn og matinn, sambandið þar hefur ekki verið eðlilegt.
Fyrir ferminguna mína svelti ég mig í viku til tíu daga, viss um að ég væri offitusjúklingur. Sem ég get ekki annað en brosað yfir í dag. því ég var allt annað en það, ég var falleg og hraustleg.
En ég hafði sjálfsmynd sem var mjög óraunveruleg og var bara í höfðinu á mér.
Alla tíð eftir þetta var ég eins og harmonikka rokkaði upp og niður í kílóum og hélt mér niðri með allavega sjúklegum ráðum. Ég ældi matnum, drakk kúkate, borðaði megrunarkaramellur, hörbelive, allavega hitt og þetta og hina og þessa kúra. Þessa sögu þekkja margir sem hafa brenglað samband við mat.
En vandamálið var að ég náði aldrei að halda neinu við, allt fór alltaf í sama farið aftur.
Ég hef svo undanfarin ár notað mikla orku við að vinna að mínu innra með hugleiðslu og í þerapí hjá honum Gordon mínum frábæra, sem hringir í mig einu sinni í mánuði frá Kaliforníu og við vinnum saman í cirka tvo tíma með mitt innra og þau vandamáls sem hafa komið upp síðan siðast. Einnig fær ég verkefni sem ég vinn að eins og einskonar heimavinnu. Þetta hefur verið mér alveg stórkostleg hjálp til að fá innra jafnvægi og vera meðvituð um það sem lífið mitt er um, hver ég er á innri og ytri plönum og margt margt fleira.
Ég hef þó fundið fyrir undanfarið ár að til að ná þeim árangri sem ég vil bæði í hugleiðslu og í öllum þeim andlegu verkefnum sem eru mér mikilvæg og sem meðmanneskja allra sem ég hef samskipti við, yrði ég að vinna að mínum líkamlegu málum. Ég yrði að einbeita mér að því að sameina huga minn líkamanum, ekki vera bara höfuð og upp ,heldur heil, eitt með öllu því sem ég er. Líkami minn er það verkfæri sem ég hef í þessu lífi og mér ber að vinna með honum en ekki á móti.
Vandamálið var að ég hafði erfitt með að finna það sem hentaði og þar af leiðandi gerðist ekki mikið að mér fannst. En þar sem ég trúi því að mér sé hjálpað á þá braut sem er góð fyrir mig þegar ég er tilbúinn og beið ég á einhvern hátt eftir skilaboðum, tákni um að eitthvað væri það rétta hjá mér.
Ég fékk svo skilaboð frá gamalli vinkonu minni henni Bobbu inn á bloggið mitt. Smá kveðja eftir 22 ár. Við fórum að skrifa smá hvor til annarrar . Ég tók eftir að hún var næstum óþekkjanleg því í gamla daga var Bobba alltaf stór og mikil kona, en núna var hún einhvernvegin svo lítil og svo kvenleg að ég átti erfitt með að sameina þá nýju þeirri gömlu.
Ég las þó á milli línanna að hún var á einhverju sérfæði og það hafði hjálpað henni að forma sig í annað mót. Ég beið nokkurn tíma með að spyrja, því ég vissi innst inni að þá væri ekki aftur snúið.
En ég spurði og það leið ekki vika þar til vorum farnar að tala saman á skypinu. Núna eru 18 dagar síðan ég byrjaði á þessu fæði og mér líður svo svo vel. Ég finn einhvernvegin mikinn léttir yfir að ég er að gera mér gott. Ég er að gera mig að betra verkfæri fyrir framtíðina.
Það sem var erfiðast fyrir mig við þessa ákvörðun var : nú verð ég ennþá meira öðruvísi en aðrir. Ég drekk ekki áfengi, ég borða bara fisk og hvítt kjöt, ég fer aldrei út að skemmta mér og núna yrði ég á algjöru sérfæði.
Ég vorkenndi mér yfir að ætla að taka þessa ákvörðun. En núna sé ég að ég er að gera mér lífið léttara og auðveldara en áður.
Það sem er öðruvísi en áður, er að ég hef enga tilfinningu fyrir að ég sé í megrun, enda er ég ekki í megrun. Ég hef sjaldan borðað eins mikið og ég geri núna, bara öðruvísi blöndu af mat og hlutföllin eru ólík því sem ég hef gert áður. Maturinn er alveg frábær ! Nýr lífstíll.
Ég finn líka annað sem ég ekki hef upplifað áður, það er að ég er svo tilbúinn að breyta til,. Þar held ég að spili inn öll sú vinna sem ég hef gert með Gordon undanfarin ár..
Ég hef verið að lesa mig til um þessi mál á hinum og þessum heimasíðum og mér varð ljóst að sú mynd sem ég og margir, margir aðrir hafa af þeim sem ekki geta stjórnað mataræðinu er algjörlega röng !!!
Ég las einhversstaðar á einhverri síðunni að það væri vísindalega sannað að þeir sem eiga við matarfíkn eða einhverja átröskun, alkaholismi og spilafíkn að stríða eru með einhvern auka gen í sér, sem sé ástæða þessa vandamáls. Þetta fannst mér mjög áhugavert og opnaði það augu mín fyrir svo mörgu og einhver léttir gerðist inni í mér.
Ekki þannig að nú er ég með einhvern sjúkdóm, leggst upp í sófa og bara vorkennt mér, nei, nú veit ég hvað það er sem ég á að takast á við og um leið og það varð ljóst var allt auðveldara.
Eins og ég hugsa þarf þetta líka að hanga saman út frá því andlega sem ég trúi og mín kenning er sú að þeir sem erfa þetta gen ger að til að takast á við fíkn í hvaða formi sem er.
Fíkn geta verið margir hlutir og til að komast á hærra vitundarstig þurfum við að vinna með fíknina og ein leið til að vera viss um að við tökumst nú á við þetta stig í þróuninni er að láta það erfast. Því er hreinlega plantað í þann sem þarf að vinna á fíkninni, engin leið í kringum það.
Ég held að það sé mikilvægt þegar maður ákveður að vinna á ákveðinni fíkn að flytja fíknina ekki yfir á eitthvað annað.
Til dæmis, ég vinn á matarfíkninni og fer að kaupa mér fullt af fötum, óeðlilega mikið af fötum.
Maður hættir að drekka en borðar mjög mikið af nammi eða stundar mjög mikið kynlíf eða eitthvað annað.
Ég þarf nefnilega að vinna á FÍKN sem í þessu tilfelli bitnar á líkama mínum, en gæti alveg eins bitnað á peningaveskinu mínu. Fíknin er sú sem ég þarf að ráða yfir, þarf að vinna á og það verður spennandi ferðalag.
Ef ég sé fíknina sem lifandi form sem svífur frá einu til annars til að lifa,. Ef unnið er á einu sem er kaupfíkn svífur hún yfir á fíknina að borða. Ég vinn á því, þá svífur hún yfir á annað sem er veikleiki. Fíknin er nefnilega lifandi og ekki ég, hún er sjálfstætt lifandi form sem ég þarf að taka og vera herra yfir í Kærleikanum.
Ekki dæma hana og hata en elska hana eins og hvern annað hluta af mér sem hjálpar mér í þeirri þróun sem ég er í.
Ég hef fíkn, en ég er ekki þessi fíkn.
Ég gæti sennilega haldið þessum vangaveltum áfram í alla nótt en núna byrjar bíómynd sem við Sólin ætlum að horfa á saman.
Set inn myndir frá sófanum okkar , Sól, Lappi og tebollinn minn.
Kærleikur til ykkar allra