Mér er illt í bakinu
24.3.2007 | 16:55
Mér er illt í bakinu ! Hef í raun ekkert að segja, en sendi þessa litlu bæn frá mér í staðin !
Ljós til ykkar frá mér þreyttri konu í Lejre.
Herra, gefðu mér augu þín
svo ég sjái þegar aðrir líða
Herra, gefðu mér augu þín
svo ég geti séð sársauka í brosi
Herra, gefðu mér eyru þín
svo ég heyri hljóma hjartagrát
Herra, gefðu mér eyru þín
svo ég geti heyrt þögul hjálparóp
Herra, gefðu mér munn þinn
er mælir orð sem gleðja
orð sem uppörva
orð sem styrkja
orð sem gefa von
Herra, gefðu mér hendur þínar
sem ætíð opnast öllum mót
sem styðja á niðurbeygða öxl
sem strjúka burt tár
sem gefa og taka á móti
Herra, gefðu mér af hjarta þínu
svo ég geti fundið til með þeim sem líða
svo ég geti glaðst með þeim glöðu
svo ég geti elskað, - elskað eins og þú.
Söpvi H. Hopland
Trúmál og siðferði | Breytt s.d. kl. 16:57 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
Ég elska þessa setningu !
23.3.2007 | 15:17
"Og sýndu miskunn öllu því, sem andar."
Núna í fyrsta sinn í 10 ár erum við ekki með hænur. Blessuð sé minning þeirra.Gunni lógaði þeim öllum í fyrra vegna fuglainflúensunnar ! Það var ekki auðvelt verk. Við fengum klögur frá fólki vegna þess að hænurnar voru ekki lokaðar inni í hænsnahúsinu, það vildum við ekki því það er ekkert líf að okkar mati. Sérstaklega var erfitt fyrir okkur öll sömul þegar litla gráa dverghænan var dáin, hana höfðum við átt frá upphafi. Mikil varphæna og einnig frábær mamma fyrir ungana sína. Hún fékk oft unga tvisvar sinnum yfir sumartímann. Við þorðum ekki að fá okkur hænur aftur vegna látanna sem voru í fyrra í sambandi við þessa flensu.
En svona getur þetta verið. Þetta var allt blásið svoleiðis upp í fjölmiðlum hérna , þó svo að aðeins 90 manns hafið látist af völdum innflúensunar á 9 árum í öllum heiminum. Ef við líkjum þessu við hversu margir látist vegna reykinga, umferðarslysa og annara hluta, er þetta algjörlega út í hött. En þar sem fuglabú er orðin svona mikil peningamaskína þá fer allt í hrærigraut vegna þessa, því miklir peningar gætu verið í húfi fyrir þessa stórbændur ef flensan kæmist til þeirra..
Langar aðeins að skrifa um dýrin þar sem ég er að skrifa um hænurnar mínar. Ég er nú soddan rosa dýraelskari og hef alltaf verið. (dreymdi um að verða bóndi þegar ég var lítil) Það setur fullt af hugsunum í gang, þetta með fuglainnflúensuna og fyrir nokkrum árum var kúariða. Hvað er það sem veldur, er það vegna alls eiturs sem sett er á akrana, fóðrið þeirra, (beinamjöl af kúm) eða í því sem andað er inn. Það kemur ekki bara út af engu. Við erum völd að svo miklum hörmungum gagnvart blessuðum dýrunum.
Oft líka þeir sem eru með dýr sem gæludýr, hunda , ketti og fl. Sem halda að hundurinn og kötturinn hafi sömu þörf og manneskjan. Að reyna að gera dýrið að manneskju, sem er svo mikill miskilningur. Ég hef sjálf gert þetta með mín dýr, sérstaklega með hana Iðunni mína, (sem er orðin 11 ára) hún var algjörlega ótemjandi, þar til einn daginn að ég gerði nér grein fyrir því að hún var hundur, og ég gerði henni mikinn óleik með að umgangast hana og gera kröfur til hennar eins og hún væri manneskja. Eftir það hefur hún fengið leyfi til að vera hundur, og við reynum að umgangast hana sem hund, og hún er alveg frábær sem hundur, en ferleg sem manneskja. Við erum líka með Lappa, sem er tveggja ára. Hann höfum við alltaf umgengist sem hund, og hann er algjör hundur.
Við vitum öll um fólk sem á dýr, sem þau vanrækja og jafnvel fara mjög illa með. Ég veit ekki hvort þeir sem eru í því að reyna að breyta dýrunum sínum í manneskjur eru eitthvað skárri. Það er ofbeldi í því að gefa þeim ekki leyfi til að vera það sem þau eru.
Það er mikil ábyrgð sem fylgir því að hafa dýr, og alltof margir fá sér dýr án þess að hugsa um að þegar maður er orðin þreyttur á þeim, getur maður ekki bara hent þeim, þetta er binding, líka tilfinningalega að fá sér gæludýr. Veit það vel, er með tvo hunda, þrjá ketti, tvo páfagauka,var með margar kanínur, og var með 15 hænur! Ég hef alla tíð átt mjög erfitt með líkamlega misþyrmingu á dýrum. Ég heyrði í fyrra að í Kína er stórt lokað svæði þar sem framleiddur er pels í föt, sem er mjög mikil eftirsókn í. Þetta er pels frá einhversskonar villihundum. Framleiðslan er mikil, og þar af leiðandi er margir hundar drepnir daglega, og það verður að gerast hratt. Það gerist það hratt, að hundarnir fá enga deyfingu, heldur er pelsinum bara svift af dýrinu, og svo er hundinum án pels kastað í hrúgu af öðrum hundum, sem liggja og kveljast til dauða. Þetta er ekkert einsdæmi um hvernig við manneskjan förum með dýrin hérna á jörðinni, sem við hljótum að bera ábyrgð á. Þar sem það á að heita að við séum komin lengst í þróuninni af þeim dýrum sem eru á jörðinni. Þessi saga um villihundana, er því miður sönn. Ein sem ég þekki er dýralæknir, og hún hafði fengið videoupptöku senda , þar sem allt þetta var sýnt. Þetta gerist því miður ekki bara þarna !
Virðingin fyrir þessum blessuðum dýrum er engin, við viljum fá og fá, hvað sem það kostar, og helst ódýrt. Ég get alveg séð og skilið að við notum bæði kjöt, og pels af dýrum, en það er hvernig þessir hlutir eru gerðir, með svo miklu virðingarleysi. Dýrin eru ekki reiknuð fyrir neitt. Sagt er að þau hafi ekki tilfinningar, hver segir það, og ef það eru vísindamenn, hvernig vita þeir það, er hægt að mæla tilfininngar ?
Ég get séð það á mínum dýrum að þau hafa tilfinningar. Kannski á öðru plani en við, en tilfinningar hafa þau. Meira að segja kanínur og hænur. Hundar og kisur , hafa mikinn tilfinningaskala. Kannski er þetta sagt til að þurfa ekki að horfast í augu við það sem maður gerir þessum dýrum sem eru á t.d. tilraunasstofum, í sláturhúsunum, mörgum dýragörðum og fl. fl.
Darwin kom með þróunarkenningunna, sem fyrir mér er sönn að nokkru leiti, fyrir mér vantar þar, að við sem sálir, þróumst frá dýri til manneskju. Sálin fæðist í kropp sem hún notar í ákveðið tímabil, til að safna reynslu og fullt fullt fl, sem er efni í aðra grein!!!
Í Búddiskri trú, segja þeir að við fæðumst aftur og aftur, en við getum skipst á að vera manneskja og dýr Í kristinni trú er ekki endurholgun. Jesús reis upp frá dauðum,( var reyndar að kaupa mér bók um hvaða skoðun kirkjan hefur líf eftir dauðann . Kirke og reinkarnation). Þó svo að fólk túlki þetta hver á sinn hátt. Þá er einhver sannleikur í þessu öllu finnst mér eins og í þeim trúarbrögðum sem ég hef lesið um. Og ef við gerum ráð fyrir að við blöndum þessu saman, og dýrin verða að manneskjum, þá hvílir mikil ábyrgð á okkur. Þetta eru verðandi manneskjur, sem við berum ábyrgð á, eins og þeir sem eru þróaðri en við bera ábyrgð á okkur (Guð, englar, og æðri verur).
Við ættum í raun að umgangast dýrirn að sömu virðingu og við viljum að aðrir umgangast okkur.
Við ættum að umgangast þau sem dýr, en með kærleika og virðingu fyrir dýrinu, því að í því trúi ég að mesta virðingin sé fólgin. Núna þegar svo mörg dýr pínast og þjást af manna völdum, ættum við að hugsa um hvað við getum gert til að hjálpa. Það er hægt að hjálpa án þess að vera á staðnum, það er hægt að hjálpa með hugarkraftinum.(Ef þið viljið vita meira hvað ég er að tala um þá sendið mér mail).
Sem dæmi um að dýr eru dýr, og manneskjur eru manneskjur. Þá lét ég gelda hann Lappa minn, og kisurnar mínar þrjár!. Þetta geri ég því að hann þjáist af þörf sem hann getur aldrei uppfyllt. Að vera með tíkum. Svo ég tók ákvörðun um að svona yrði þetta að vera.
ÉG myndi aldre taka þessa ákvörðun fyrir son minn, sem hefur ekki ennþá eignast börn :O)
En ég vel þetta fyrir Lappa, því ég vil að hann geti haft það gott, í því umhverfi sem hann lifir í. Og hann veit ekki að það er hægt að fá svona aðgerð, en ég veit það. Og þar sem ég er passa hann í þessu lífi hans, er það á mína ábyrgð að hann geti fengið gott og harmoniskt líf !!!
En nóg í bili, ætla núna að taka til og svo að glugga í nýju bókina mína sem ég keypti í dag ! Vejen til frihed eftir Nelson Mandela.. Hlakka til að lesa og fara smá inn í hans hugarheim !
Ljós og kærleikur til ykkar allra!
Bloggar | Breytt s.d. kl. 16:03 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
Vildi deila þessu með ykkur !
22.3.2007 | 14:42
Our deepest fear is not that we are inadequate
Our deepest fear is that we are powerful beyond measure,
It is our Light, not our darkness, that frightens us.
We ask ourselves, who am I to be brilliant,
gorgeous, talented and fabulous?
Actually, who are you not to be?
You are a child of God.
Your playing small doesn't serve the world.
There's nothing enlightened about shrinking
So that other people won't feel insecure around you.
We are born to make manifest the Glory of God that is within us.
It's not just in some of us; it's in everyone.
And as we let our own Light shine,
We unconsciously give other people permission to do the same.
As we are liberated from our fears,
Our presence automatically liberates others.
Ljós frá mér í Lejre
Óttinn, hræðslan, óöryggið !
21.3.2007 | 15:53
Stundum lendir maður í áföllum í lífinu sem eru bæði minni og stærri en annara áföll.
En í augnablikinu er þetta stórt áfall, sem maður finnur að læðist inn í tilfinningarnar og gerir það að verkum að maður getur jafnvel fundið fyrir ótta yfir því sem:
gæti gerst,
er að gerast,
eða gerist ekki !
Þessi tilfinning, óttinn, hræðslan, óöryggið!
Að finna hversu smár maður er,og hversu háður maður er hinum !
Ég meina að þetta sé það besta sem lífið getur boðið manni, það er þarna sem maður vex, verður skilningsríkari, og á stundum fordómalaus, því maður hefur sjálfur verið á svo mörgum stöðum og þekkir mannlegt eðli,
ekki frá sjónvarpsþáttum, tímaritum, eða sögusögnum, en út frá eigin dýptum, reynslu sem gefur manni meiri skilning á mannlegt eðli, sem gefur skilning á lífinu og þeim átökum sem það býður upp á, og á óttanum sem hinn ber !
Ég hef oft sagt, sumir spila á píanó í gegnum lífið.
Á árum áður vildi ég líka vera þar.
Enn núna tek ég gjarnan á móti því sem kemur og er svolítið spennt að finna hvernig ég bregst við ólíkum áföllum. Ég skoða viðbrögð mín, og finn fyrir þakklæti þegar ég sé að ég hef náð lengra frá því óttinn síðast kom inn !
Spurningin er.
Hver er það sem skoðar viðbrögðin ?
Hver er það sem skoðar tilfinningarnar ?
Hvað er óttinn ?
Hvað er hræðslan ?
Ég fann þetta allt í dag og ég skoðaði það, og fann að ég gat horft niður til þessara tilfinningar skoðað þær og látið þær hverfa.
Hver er það sem skoðar ?
Ljós frá mér !
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (11)
Trúir þú á engla ?
20.3.2007 | 11:24
Já ég trúi á engla !
Við ölumst upp með fallega sálma um engla.
Við lærum í bænunum okkar um engla.
Við heyrum í dægurlagatekstum um engla,
Við köllum hvert annað engla.
Við segjum .Við börnin okkar að þau séu englar.
Í biblíunni er talað um engla. En trúum við á engla?
Já ég trúi á engla.
Ég trúi á Maríu mey, sem stórann engil, sem hjálpar öllum börnum að komast í heiminn.
Við þurfum bara að fá hana inn í hjartað í daglega lífinu. Ég trúi að María Mey hjálpi öllum sem eiga um sárt að binda. Manneskjum, dýrum, plöntum.....
Við þurfum bara að vita það í hjartanu okkar.
Ég trúi að María Mey, sé engill fyrir Móður Jörð, haldi við öllu lífi á jörðinni.
Engill fyrir allar konur, og börn.
Ég trúi að ef við meðvituð biðjum um hjálp, þá fáum við hjálp. Hjálpina skiljum við betur, ef við erum meðvituð, þá getum við lært að vinna, með englum. Leita ráða hjá englum, sem hjálpar okkur þegar við þurfum á að halda.
Væri það ekki frábært ef englaríkið og manneskjuríkið ynnu saman? Ef við myndum opna okkar innra auga og sjá inn í þeirra heim. Ég er viss um að englar eru það þróaðir að þeir sjá inn í okkar heim. Sjá hversu erfitt við oft höfum það. En þar sem við hvorki heyrum sé sjáum englana, getum við ekki mótekið þá hjálp að fullu, sem þeir efalaust vilja gefa okkur.
Ef við í öllu okkar lífi gætum séð verndarengilinn okkar, skilið þau skilaboð sem hann vill koma til okkar, þá held ég að það eina sem við þurfum að gera er að tjúna inn, og hlusta.........
Hver veit hvað við fáum að vita.
Þá er heimurinn fleiri víddir, en þrjár. Þá er hann fjórar víddir.
Ég sé fyrir mér í framtíðinni, og vona, að við manneskjur, englar og öll þau ríki sem eru til í alheiminum, vinnum saman, og hjálpum, þar sem þarf að hjálpa.
Og það þarf mikið að hjálpa til á okkar blessaðri jörð.
Ljós frá mér sem er í vinnunni !
Steina
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (16)
The Message og helgardraumur
18.3.2007 | 13:57
Við áttum alveg yndislega helgi !
Fórum í strandferð,
skógarferð,
það var rok,
sól
ekki rok
ekki sól !
Ég horfði á tvær góðar bíómyndir! Eina um Jesús og eina um Dalai Lama ! Þegar ég horfi á svona myndir, hugsa ég alltaf um allt sem ég gæti gert fyrir heiminn, í staðin fyrir að sitja og horfa á bíómyndir !
Úti er kallt, og ég var að koma heim úr vinnunni !
Geri mér fulla grein fyrir að andinn er ekki yfir mér núna,
á mánudegi,
seinni partinn,
kallt úti.
En á morgun kemur annar dagur, sem líka er annasamur !
En hinn daginn kemur líka dagur sem líka er annasamur !
Svona er lífið.
Megi ljós skína á ykkur
Steina
Bloggar | Breytt 19.3.2007 kl. 20:18 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (9)
Sophocles: Wisdom is the supreme part of happiness.
16.3.2007 | 09:16
Föstudagur til friðar ! Frí vikan mín er að verða búinn !
Átti yndislegan dag í gær. Þegar ég var búinn að koma Sólinni í skólann fór ég í göngutúr með hundanna. Ég gekk niður að Lejreá, það var ekki svo mikið vatn í henni eins og hefur verið, en allt var að spretta upp úr moldinni. Við förum alltaf á sumrin niður að þessari ár og hundar,kisur og börn leika sér í ánni.
Eftir göngutúrinn fór ég með lestinni til Kaupmannahafnar . Ég hafði mælt mér mót með Sigga syni mínum (sem býr í KBH) í gallerí Nordlys. Sá þar alveg frábæra sýningu með Finni Arnar. Mjög flott sýning. Gaman var að spjalla við þær stöllur Steinu frænku og Bryndísi sem reka þetta gallerí og teiknistofu.
Þarna kom Siggi og saman fórum við og gengum í gegnum bæinn. Við keyptum okkur pizzu og fórum svo í stúdíóið hans Sigga. Ég fékk fiðring í magann að koma þarna inn eins og alltaf þegar ég heimsæki hann.
Minningarnar koma upp, lyktin og hljóðin af fullt af fólki sem málar, skapar, og sprautar.
Það er ekki svo langt síðan ég var sjálf í námi í bæði Dusseldorf og í Mynd og hand, en samt er eins og það séu hundrað ár síðan
Ég sagði við Sigga að ég fylltist alltaf pínu öfund þegar ég kæmi til hans í skólann, því þetta hefðu verið mín bestu ár að læra og taka á móti alla daga. Að vera í púlsinum ! Svo taka árin við sem maður þarf að standa á eingin fótum, en svona er jú þróuninn í lífinu.
Hann sýndi mér það sem hann var að gera, sem mömmu fannst náttúrulega rosa flott, en gátum sammt líka rætt þetta á faglegu nótunum.
Við settum inn á bloggið mitt tvö frábær myndbönd sem ég hvet fólk að sjá ! Þau eru svo lífsgefandi bæði.
Á eftir þetta innlit í DDKK fórum við í Marmarakirkjuna og hugleiddum í tæpan klukkutíma. Það var yndislegt.
Eftir það löbbuðum við í gegnum bæinn til Hovedbanegaarden, bærinn iðaði af lífi og vori ! Ég tók lestina heim. Það er ca 800 metrar frá lestarstöðinni og heim til mín, og á leiðinni heim á túninu mætti ég Gunna, Sól, Lappa, Iðunni og Múmin (einni af kisunni okkar) Þau höfðu ákveðið að taka á móti mér. Við gengum svo í rólegheitum heim, klæddum okkur upp og fórum á frábæra tónleika í skólanum hérna. Þetta voru tónleikar með bekknum hennar Sólar. Þau spiluðu frumsamið, og við foreldrar vorum auðvitað með tár í augum og áttum ekki orð yfir snillingunum okkar.
Svona getur lífið líka verið gott og fallegt. Ljós frá Lejre til ykkar allra !
Bloggar | Breytt s.d. kl. 09:19 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
Gary Jule - Mad World / Free Hug campaign
15.3.2007 | 13:48
Bloggar | Breytt s.d. kl. 13:53 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
Kindness is more important than wisdom, and the recognition of this is the beginning of wisdom.
13.3.2007 | 06:24
Hérna eru nokkrar dásamlegar myndir, til að minna á undur lífsins, hvað mannveran er frábær til að fá það besta úr því sem er !
Í dag ætla ég að baka brauð, fá vinkonu mína í morgunkaffi, og taka til í garðinum ! Það er vor í lofti 12 til 13 stiga hiti og sól ! Hafið fallegan dag, og megi ljósið skýna á leið ykkar !
Bloggar | Breytt s.d. kl. 06:26 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
Það er gott að nördast í myndlistinni !
11.3.2007 | 11:48
Sunnudagur til sælu, svo sannarlega ! Er ein heima, Gunni og Sól fóru á epla plantekruna að taka til. Ég hafði þörf fyrir að slappa af, og vera með sjálfri mér. Opnuninn í gær gekk mjög vel, það komu yfir 200 gestir . Meðal annars kom Magnea sem var með mér í Mynd og hand. Hún var í heimsókn í Svíþjóð og ákvað að skella sér yfir, það var alveg frábært ! Það var gaman að hitta alla Íslendingana, og tala líka á íslensku. Ég seldi verkið mitt, og get þar með látið drauminn rætast og keypt mér góða myndavél og samt átt pening eftir !! Opnuninn var frá 13.00 til 17.00. Margir fóru út að borða, en ég Gunni, Elena og Siggi fórum heim og elduðum okkur dýrindis mat. Flest okkar eru grænmetirætur og þar af leiðandi vildum við heldur borða heima því að það er mjög sjaldan hægt að fá góðan grænmetismat á veitingahúsum, Gunni er besti kokkur í heimi þannig að við vorum ansi örugg á að við fengjum góðan mat hérna heima.
Fyrir rúmum tveim árum ákvað ég að taka pásu í myndlistinni. Ég hafði í nokkur ár haft svo mikið að gera að ég hafði hvorki tíma fyrir fjölskylduna mína eða sjálfa mig. Á sama tíma ofan í allt byrjuðum við (Morten, Lena og ég) með myndlistaskólann, sem var líka rosalega mikil vinna. Maður getur sagt að ég brann út. Ég fékk ógeð á myndlist og myndlistalífinu. Ég sagði mig úr öllu, sýningarstjóra verkefnum, sýningum, og myndlista hópum og hætti að fara á opnanir á hverju föstudagskvöldi. Ég fór svo að vinna við að finna harmomi/jafnvægi bæði í innra og ytra líf mínu. Ég fór að hugleiða, sem ég vil meina að hafi bjargað mér, ég hugleiði núna tvisvar á dag, á morgnana og á kvöldin . Ég hef samt notað mikinn tíma í myndlistarskólann, enda stækkar skólinn jafnt og þétt. Núna eru 6 kennarar, og við erum með biðlista inn í skólann. Ég finn að með þessum skóla bætum við lifsgæði hjá fullt af fólki, það er líka mikilvægt. Árið 2005 var ég svo með sýningu í Kling og Bang á Íslandi, og það var bara svolítið gaman, en það fékk mig ekki til að vilja fara á fullt aftur í listalífið. Svo var mér boðið að vera með á þessari sýningu í Stalke. Ég get sagt að við það að gera verkið sem ég sýndi fann ég gamla tilfinningu gleði við að skapa sem var alveg yndislegt ! Þessi tilfinning hefur ekki verið þarna frá því fyrir 2001 ! Ég ætla samt aðeins að taka því rólega og sjá hvað gerist. Ég átti langt samtal við gallerístan í gær (sem er listsafnari og það var hann sem keypti verkið mitt) um það að vera listamaður, með stóru L eða nörd eins og ég er orðin. Þar að segja að vera listamaður til að gera list sköpunarinnar vegna eða að vera sölumaður(ég veit að auðvitað er þetta ekki svona ferkantað, en það hefur verið það fyrir mér, og þannig hljóðaði það í þessu samtali) ! Hann þekkir þennan heim inn og út, það var hann sem Ólafur Elíasson var hjá í byrjun ferilsins, áður en hann var stórstjarna. Það að vera listamaður með stóru L er markaðsetning, söluvara. Þetta var ég farinn að finna á sínum tíma (þó svo ég hafi alls ekki verið nálægt stórstjörnunum), og þá hvarf gleðin, og um leið eitthvað inni í mér. Ég hef svo síðustu tvö árin nördast hérna heima, með dýrin mín garðinn minn, sem ég get týnt mér í á sumrin, epla plantrekrunni okkar, lesið góðar bækur og síðast en ekki sístverið með fjölskyldunni minni.
Ég hef farið í sumarfrí síðustu tvö árin, til að fara í frí, ekki fengið alla fjölskylduna með og notað fríið til að fara annað hvort á milli sýningarstaða eða sjálf verið að sýna. Í gær fann ég samt smá kvíða í mér, því það er svo auðvelt að fara í svíng, finna þetta rúss, þegar manni er hrósað of mikið. Það er mjög mikilvægt að taka gleði og sorg með sama jafnvægi, þetta er allt hluti af því sama. Þetta hef ég mjög í huga mínum núna í dag, til að halda mér í ró.
Það er mikilvægt að spyrja sjálfan sig : hvað er það sem er mikilvægast í lífinu ! fyrir mig er það harmoni/jafnvægi og gleði. Þegar ég hef það , hef ég eitthvað að gefa af sjálfri mér til umhverfisins.
Það er skrítið að skrifa svona um sjálfan sig á netið, en fyrir mig er það hluti af því að taka sjálfa mig ekki of hátíðlega, og kannski er einhver sem getur þekkt eitthvað í því sem ég skrifa og deilt því með mér og öðrum. Við erum jú öll hluti af því sama, þegar upp er staðið.
Þegar Sól og Gunni koma heim ætlum við til Hróarskeldu í bíó og út að borða, það verður notalegt.
Þeir sem vilja sjá myndir frá opnuninni geta farið inn á og séð myndir á http://www.barnaland.is/barn/20432
Einnig er hérna mynd af verkinu mínu frá sýningunni.
Ljós og friður héðan
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 19:35 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (10)
Listen to the Exhortation of the Dawn
10.3.2007 | 06:33
- Allir eru sofandi nema ég hundarnir og kettirnir ! Morguninn er svo hljóður, ég elska svona helgarmorgna. Siggi og Elena komu í gærkvöldi og borðuðum við súpu saman kl. 10. Sendi þessa fallegu morgunkveðju með von um að allir fái fallegasta dag í heimi.
Steina - Kalidasa:
- Listen to the Exhortation of the Dawn!
- Look to this Day!
- For it is Life, the very Life of Life.
- In its brief course lie all the
- Verities and Realities of your Existence.
- The Bliss of Growth,
- The Glory of Action,
- The Splendor of Beauty;
- For Yesterday is but a Dream,
- And To-morrow is only a Vision;
- But To-day well lived makes
- Every Yesterday a Dream of Happiness,
- And every Tomorrow a Vision of Hope.
- Look well therefore to this Day!
- Such is the Salutation of the Dawn!
Bloggar | Breytt s.d. kl. 06:37 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Svona geta börn verið dásamleg
9.3.2007 | 14:32
Svona geta börn verið dásamleg. Við fullorðnir getum lært mikið af þeim, til dæmis að tala oftar út frá hjartanu, þó heilinn og sé góður,þá er hægt að blanda þessu saman !










Bloggar | Breytt s.d. kl. 14:35 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
Thomas Jefferson: I hope our wisdom will grow with our power, and teach us, that the less we use our power the greater it will be.
8.3.2007 | 18:00
Það er mikið að gera þessa dagana, sýningin er nú komin upp, og opnunin er á laugardaginn! Það verður gaman að hitta íslendinga og spjalla við þá. Ég hef ekki svo mikið samband við íslendinga hérna í Danmörku! Á morgun kemur vinkona okkar hún Elena og verður hjá okkur fram yfir sýningu. Hún er frá Hvíta Rússland, og hefur enga fjölskyldu hérna nema systur sína. Þær eru oft hjá okkur yfir helgar og yfir jól, páska og þess háttar.
Gamli hundurinn minn hún Iðunn sem er orðin 11 ára er á blæðingum, það blæðir alveg ferlega. Ég hefði haldið að tíkur hættu þessu á ákveðnum aldri eins og við konurnar. Hún Iðunn mín blessunin hefur aldrei verið dugleg að þrífa upp eftir sig sjálf, en Lappi hundurinn okkar sem er tveggja ára þrífur heldur betur upp eftir hana! Veit ekki alveg hvort þetta er svona hjá villtum dýrum, villtum hundum, úlfum og þess hátta, en efast um það! Á morgun byrjar helgin, það verður dejligt !
Friður og ljós í netheim!
Steina
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Fréttabréf frá Stalke ! Allir eru velkomnir !
5.3.2007 | 15:45

INVITATION U P D A T E 2007 10. marts til 7. april 2007 Stalke Galleri i Kirke Sonnerup præsenterer udstillingen UPDATE 2007. Udstillingsprojektet er et forum hvor ni kunstnere er sat i stævne. De kommer fra forskellige positioner og tilgange og tager udgangspunkt i et mangfoldigt, mangefacetteret udtryk. Flere af de inviterede kunstnere har deres bopæl langt væk fra Danmark, såsom Vietnam, Berlin, London og Island. Udstillingen giver hver kunstner en mulighed for at præsentere sine værker i Stalke. Det er tilstræbt at forskelligheden vil skabe en dynamisk og seværdig udstilling bort fra den såkaldte mainstrem og det forudsigelige |
| Udstillingsprojektet kan ses som et nedslag, der spænder over det politiske, det stemningsfulde, det personlige. Målet er at vise en udstilling som ikke kan ses i andre sammenhænge. Værkerne kan ikke beskrives med en enkelt, samlende betegnelse, men repræsenterer det skæve, det underlige, det mærkværdige, det grimme, det mystiske og det kunne også være det profane, det irriterende, det underkendte. Kunsthistorien og medierne forsøger at forstå kunsten ved at ensrette og forenkle, vi gør det modsatte ved at eksponere mangfoldigheden og har valgt kunstere som netop er kritiske over for det kunstpolitisk korrekte. |
![]() |
![]() |
Følgende kunstnere deltager: Hans Peterson, Anne Bennike, Morten Tillitz, Frank Busk, Steinunn H. Sigurdardottir, Hulda Vilhjámsdóttir, Thorgej Steen Hansen, Kristleifur Björnsson og Jes Brinch |
|
Kuratorer: Sam Jedig og Morten Tillitz Udstillingen åbner den 10. marts 2007 med fernisering kl. 13-17 Udstillingen slutter den 7. april Åbningstider: fredag kl. 14-18 og lørdag kl. 13-15 og efter aftale på telefon 2926 7433 Læs mere www.stalke.dk |
Menning og listir | Breytt s.d. kl. 15:48 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Galleri Kirke Sonnerup í danaveldi !
5.3.2007 | 12:20
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Borgaraleg Alexandra.
3.3.2007 | 19:19
Í fyrsta sinn sem meðlimur konungsfjölskyldunnar velur borgaralegt líf hérna í Danmörku ! Hérna eru fallegar myndir frá brúðkaupinu. Synir Alex fylgdu henni til altaris,svo er mynd af parinu. Allur matur og áfengi var lífrænt ! Ég er ekki ein af þeim sem fylgjast grant með konungsfjölskyldunni, en ég hef alltaf verið hrifin af Alexandra. Hún hefur gert margt gott í Danmörku, og hefur verið sú afkastamesta af allri fjölskyldunni með opinbers törf !
Gott að fá athyglina á eitthvað annað er lætin í Kaupmannahöfn !
Friður héðan frá Lejre
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Ástin sigraði, eins og Kronprins Fredrik sagði !
3.3.2007 | 15:56
Alexandra og Martin segja já hvort við annað í Øster Egede kirke og Alexandra verður grevinde Jørgensen ! Ástin sigraði eins og kronprins Fredrik sagði þegar hann var spurður hvað honum findist um að þau giftu sig ! Kærleikurinn er bestur!
Steina
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Það er stríðsástand í Kaupmannahöfn !!
2.3.2007 | 15:59
Ég hef fylgst með þessu ástandi í nokkra tíð í gegnum son minn sem er 22 ára, og börn vina minna, sem hafa tekið þátt í hinum og þessum mótmælum í nokkurn tíma. Þetta er sorglegt ástand ! Það er margt í þessu máli sem er óskiljanlegt, t.d var þessu unga fólki gefið húsið á sínum tíma, en svo selur Kaupmannahöfn húsið til "fader huset", sem er hópur kristinna, sem meinar að húsið sé heltekið af djöflinum (sem er náttúrulega algjört aukaatriði). Þessu mótmæla að sjálfsögðu þeir sem telja sig eiga húsið, og svo kemur skriðan.......Ég skil vel þá sem slást fyrir rétti sínum, en ég held að svo óheppilega vilji til að það slást í hópinn fullt af fólki frá allri Evrópu, sem vilja bara slást. þá er þetta orðið meira en að berjast fyrir rétti sínum. Það er að mínu mati mjög óheppilegt fyrir þetta unga fólk að hlutirnir eru orðnir svona brjálaðir, það hjálpar þeim ekki, síður en svo. Ég er samt viss um að átökin verða, þar til þau fá nýtt hús ! Það hefur að sjálfsögðu verið mikið rætt um þetta mál, bæði í vinnuni minni, útvarpi og sjónvarpi. Ég horfði á þetta í sjónvarpinu til kl. hálf ellefu í gærkvöldi þar til Siggi hringdi í mig og sagði að allt væri í lagi með hann. Þá gat ég farið að sofa. Siggi var þarna frá því um morguninn og allan daginn, hann vildi meina að ástandið hafi ekki verið eins rosalegt og kom fram í sjónvarpinu. Frétti að það hefði komið mynd af honum í Information með kanínuandlit og rauða slaufu um hálsinn, gefandi fólk rósir til að benda fólki á fáránleika þessa atburðar! Greinin heitir "Absurd teater"og er heilsíða um þessi átök með þessari líka flottu litmynd af Sigga með kanínugrímuna, rauða slaufu með hvítum doppum og bleikar rósir. Ég er ferlega stolt af honum! Hann lenti visst í smá ógöngum þar sem hann var lokaður inni á milli lögreglu og unga fólksins, en var svo hjálpað burtu af lögregunni. Hann söng líka og dansaði bæði fyrir lögregluna og þá sem var búið að handtaka og sátu í röðum á jörðinni. Sem sagt stríð í Kaupmannahöfn, sem heldur ábyggilega áfram í nokkurn tíma.
Ljós og friður héðan.
Steina
Bloggar | Breytt s.d. kl. 16:09 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Í Danmörku ætlar allt um koll að keyra vegna fæðingu stúlkubarns ! Móðirin er 61 árs ! Þetta finnst flestum alveg hræðilegt, og fylgja Því líka ansi mörg önnur ókvæðisorð t.d. móðirin hefur greinilega enga ábyrgðartilfinningu af því hún velur að eignast barn svona gömul. barnið kemur til með að missa móður sína mjög snemma. Unglingar voru spurðir í sjónvarpinu hvort þau vildu eiga mömmu sem væri á 70 ára aldrinum ! Nei, hræðilegt, ógeðslegt...... í allri þessari umræðu er aldrei spurt um föðurinn, hann er 61 árs líka ? Hversu margir verða ekki feður á gamals aldri og eru ágætis feður og slæmir feður, eins og allir aðrir feður ? Eitt er hvort við eigum að breyta því sem náttúran hefur ákveðið fyrir okkur, sem við gerum endalaust ! Annað er hvernig fréttaflutningur þessi hefur verið hérna í Danmörku. Foreldrarnir fóru í glasafrjógun til Englands, en fæddu barnið á Ríkisspítalanum í Kaupmannahöfn. Heyrði útundan mér þegar ég var að vaska upp eftir kvöldmatinn í gær að einhver sagði að auðvitað yrðum við að taka á móti þessu barni ?
Ég veit ekki hvort mér finnst í lagi að fara í svona aðgerð á þessum aldri, það er í raun aukaatriði, það finnst mér hver og einn eigi að velja sjálfur. Ef rökin fyrir því að maður eigi ekki að eignast börn á þessum aldri sé vegna þess að þá missi börnin foreldra sína svo ung, þau rök eru ekki næg að mínu mati, allir geta dáið hvenær sem er, það eru engar reglur um það. Það er fullt af fólki sem fær hjálp til að eignast börn, sem alls ekki ættu að eignast börn ! Sem dæmi man ég eftir máli þar sem vangefin kona hérna í DK fór í svona aðgerð og fékk barn, en gat svo ekki passað barnið og það var fjarlægt frá henni á móti hennar vilja, mjög sorglegt mál. Það er erfitt að dæma ! Þessi hjón sem eru 61 árs, geta verið við hesta heilsu, og það er einnig mögulegt að þetta verði súper foreldrar ! Hver getur dæmt um það. Allt annað er mögulegt líka. En ef fólk á þessum aldri leggur þetta á sig bæði hlýtur þetta að kosta mikinn pening, og einnig er þessi prosess ekkert auðveldur þá er þráin til að eignast barn mikil. Það er ekki okkar að dæma !
Já gott að við höfum frjálsan vilja í flestum málum.
Kærleikur og ljós Hver man ekki eftir Louise Brown!!!
Steina
Bloggar | Breytt s.d. kl. 11:38 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Gratitude will bring more into our lives immediately.
28.2.2007 | 16:00
Er ansi þreytt eftir daginn í dag. Við erum að ljúka skúlptúrönn og í næstu viku verður byrjað á málaraönn. Við fórum yfir hluta af verkunum í dag, sem var mjög spennandi. Á morgun förum við svo yfir restina af verkunum frá skúlptúrönninni. Nemendurnir eru mjög duglegir og gera frábær verk. Þetta er blandaður hópur af fullorðnu fólki sem á við ýmis vandamál að stríða. Sumir eru með létta einhverfu, einnig eru nokkrir asberger, og svo eru þeir sem eru með lélega sjón, og nokkrir sem eiga við andleg vandamál að stríða. Enn öll eiga þau það sameiginlegt að vilja skapa. Þetta nám er fjjögur ár, eftir þessi fjögur ár getur maður fengið eitt ár meira sem fer í að einbeita sér að sinni eigin þróun, og læra að vinna meira sjálfstætt Fyrir fimm árum byrjuðum við þrjú með þennann skóla. Fyrstu mánuðina vorum við með einn nemanda og svo hægt og rólega komu fleiri. Núna eftir 5 ár, höfum við ekk pláss fyrir fleiri nemendur Það eru 6 kennarar. Kennararnir eru hinum ýmsu hæfileikum gæddir. Tveir eru með kennaramenntun, ein er hönnuður og senograf (veit ekki hvað það heitir á íslensku) og svo erum við þrjú sem erum myndlistamenn. Þessi ólíki kennarahópur og ólíki nemenda hópur gefur mikið til skólans. Allir vega upp á móti hver öðrum. samkenndin á milli nemenda er alveg yndisleg. Núna þegar við erum orðin svona mörg og það er ansi mikið að hlutum fyrir utan kennsluna sem er mikilvægt t.d. fundir með sveitafélögunum, fundir með félagsfræðingum og fl. það er núna mitt nýja hlutverk sem skólastjóri . Það er alveg nýtti fyrir mér að vera í svona starfi , en mjög spennandi. Frá upphafi höfum við verið hluti af FOF sem má líkja á einhvernhátt við námsflokkana. Þetta er risa stór stofnun í allri Danmörku. Við komum með þessa hugmynd til þeirra á sínum tíma og þau slógu til. Þau hafa núna í 5 ár staðið að mestu fyrir öllu sem heitir ekki kennsla og uppbygging á kennslu. En núna tek ég við því sem þau hafa gert. Skólinn hefur í gegnum tíðina fengið mikla athygli fjölmiðla hérna í DK, vegna þess að þetta er öðruvísi tilboð fyrir fólk sem á í erfiðleikum en annars er á flestum stöðum í heiminum. Okkar mottó hefur verið að allir eigi rétt á menntun, það þarf bara að mæta þörfum þessa fólks.Núna er skólinn að öllum líkindum að stækka í fl einingar sem verður mjög spennandi .
Ástæða þess að ég er á þessari braut er sennilega að þegar ég var 17 ára byrjaði ég að vinna á Kópavogshæli. Ég var þar að vinna meira og minna þar til ég byrjaði í Myndlista og handíðaskóla Íslands, 28 ára. Ég var mjög ánægð að vinna á Kópavogshæli, á margar yndislegar minningar þaðan. ENN aðbúnaður bæði vistamanna og starfsmanna var ekki sæmandi. Möguleikarnir voru ekki margir, þó vil ég meina að við höfum gert það besta úr því sem var. Launinn voru hræðileg, og allt of fátt starfsfólk með of marga einstaklinga að passa. Svona er aðbúnaðurinn ennþá á mörgum stofnunum í Danmörku. Það hefur verið mikil umræða í gangi um þessi mál vegna heimildarmyndar sem kom í sjónvarpinu sem tekin var upp með faldri myndavél. Ég tek það fram að ég sá ekki þáttinn, enn fannst ömurlegt að sjá umræðuna í sjónvarpinu. Þar var allavega í byrjun hrópað hátt um þessa satista sem sáust í sjónvarpinu, og hefur það örugglega verið ömurlegt. En ef skoðað er vil ég meina að vandinn liggi ekki þar, vandinn liggur í þjóðfélaginu sem ennþá sér þetta sem felustaði sem ekki er lagt mikla peninga í eða sérlega góða ramma fyrir hvorki starfsfólk eða vistfólk. Það eru ekki margir sem endast í þessum störfum, (er ég þá að tala um þá sem vinna með þá sem eru mest fatlaðir) Launin eru lág og vinnan mjög erfið bæði líkamlega og ekki síst andlega. Þarna á þessum stofnunum endast helst þeir sem eru ófaglærðir. Einnig koma inn starfsmenn sem vinna við afleiðingar, oft mjög ungt fólk, sem er á leið eitthvað annað. Mín skoðun er að það þarf að gefa því starfsfólki sem er fastráðið meira svigrúm til að endurmennta sig og miklu betri laun. Þetta er mjög vanmetir starf ! Þau þrjú ár sem ég var í framhaldsnámi í Dusseldorf vann ég við afleysingar á stofnun fyrir mikið fatlaða hérna í Kaupmannahöfn.( Ég var í Dusseldorf á þeim tíma sem prófessorinn minn var þar, annars bjó ég í KBH). Á þessari stofnun var með mjög veikt fólk og það stafsfólk sem var fastráðið voru öll ómenntuð fyrir utan yfirmanneskjuna, sem sjaldan kom inn á deildina. Þetta voru allt konur, sem höfðu enga aðra starfsreynslu. Starfsfólkið fannst mér mjög gott við heimilisfólkið, en álagið var oft mikið, og ef það hefði verið falinn myndavél við nokkrar aðstæður sem upp komu, hefði fjandinn verið laus! Ég er alveg viss um að allt þetta fólk gerði eins vel og það gat. Það er ábyrgð yfirmanna að sjá til þessa að allt sé eins og það á að vera og að starfsfók sé með þá kunnáttu sem til þarf. Ef ég hugsa til baka til Kópavogshælis, þá var það það sama sem gerðist þar. Við vorum með alltof mikla ábyrgð miðað við hversu litla þekkingu við höfðum. Ég upplifði að við vorum með fárveikt fók, sem hefði átt að liggja á spítala, með krabbamein, sem var sent heim liggur við daginn eftir uppskurð, þar sem við tókum við þeim og gerðum eins vel og við gátum, sem auðvitað var ekki nógu gott. Hvað hefði gerst ef það hefði verið falinn myndavél þar ? Það starfsfólk sem kom fram í þessari dönsku heimildarmynd var allt rekið, nema þeir sem voru yfir deildinni !! Ég gæti haldið áfram í langan tíma, en ætla að stoppa hérna. Við eigum að vera meira þakklát fyrir þá vinnu sem þetta ófaglærða fólk gerir en við erum. Þau ættu að fá topplaun fyrir þessa vinnu, það mundi örugglega skila sér .......
Ljós og kærleikur
Steina
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)