þetta ætti virkilega að vekja okkur til umhugsunar...

um allt í sambandi við dýr, hvernig farið er með þau, hvernig við hugsum um þau... Þetta eru bræður okkar og systur ! Hugsum okkur um .... Blessun á mánudegi til ykkar

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Gunnar Helgi Eysteinsson

Ég á ekki orð... + =

Gunnar Helgi Eysteinsson, 31.3.2008 kl. 06:14

2 identicon

Ég er gráti næst og fékk sting í hjartað  við að horfa á þetta.

Hvað ætli fíllinn hafi fengið mörg svipuhögg þangað til hann náði þessu.

Það sem er ekki gert fyrir peninga.

Blessi þig og elsku fallegu fílana sem fá ekki að vera fílar. 

jóna björg (IP-tala skráð) 31.3.2008 kl. 08:16

3 Smámynd: Solla Guðjóns

Tár.Þvílíkt óeðli sem liggur að baki.Þó það sé snilld að sjá fíl teikna þá hrillir mig við tilhugsuninni um hvernig honum hefur verið kennt það.

Menn ættu að skammast sín.

inn í daginn til þín.

Solla Guðjóns, 31.3.2008 kl. 09:21

4 Smámynd: halkatla

halkatla, 31.3.2008 kl. 09:26

5 Smámynd: Dísa Dóra

segi eins og ollasak og jóna björg að mig hryllir við tilhugsuninni um hvernig þessum grey fílum hefur verið kennt þetta og sennilegast liggja mörg svipuhögg og slíkt þarna að baki   Finnst þetta bara grátlegt og illa farið með dýr

Dísa Dóra, 31.3.2008 kl. 09:48

6 Smámynd: Sigrún Friðriksdóttir

Rosalega flott video, ég er ekki viss um að þetta séu píndir fílar, það fer nú mikið eftir því hvar þetta er. En þetta vekur mann vissulega til umhugsunar á hversu mikið meira dýr vita/skilja/finna en við gerum okkur grein fyrir.

Takk fyrir að deila þessu með mér Og góðan mánudag til þín !!

Sigrún Friðriksdóttir, 31.3.2008 kl. 11:43

7 Smámynd: Steinunn Helga Sigurðardóttir

mín hugsun var aldrei sú að þetta væru píndir fílar,  ég upplifi að það sé kærleikur í þeim línum sem hann teiknar, minnir mig á verk eftir Mattisse. ég held að ef dýr eru pínd færð þú ekki þessa yfirvegun í tjáninguna sem ég upplifi. svona held ég að náist bara í gegnum samvinnu í kærleikanum. það er samt áhugavert að flest hugsi um það að þetta sé gert í gegnum sársaukann, og er það ekkert skrítið. ég hrífst einnig af því að sjá á hvaða meðvitundarstigi fíllinn er, og að það sé mjög áhugavert að þeir séu komnir svona langt í sinni þróun að hann tildæmis teiknar í víddum, fæturnir eru teiknaðir rétt í þrívídd, og fjórir fætur. einnig hrífst ég að línunni í teikningunni sem er dásamleg . og blómið sem er gert í öðrum lit  í öðru formi. og og og. ég upplifi þetta sem sagt sem stig í þróun áfram til hins guðdómlega. léttleiki og fegurð.

Blessi ykkur öll

steina 

Steinunn Helga Sigurðardóttir, 31.3.2008 kl. 13:35

8 identicon

Já skrítið hvernig við sjáum þetta ólíkt, ég get engann vegin séð neitt jákvætt við þetta, fílar eiga ekki að teikna, þeir eiga að vera frjálsir, þeir eiga ekki að verða að mönnum.

En kannski gæti mér snúist hugur ef ég sægi að það væri hugsað vel um þá og þeim kennt að mála svona með kærleikanum eins og þú segir Er samt á þeirri skoðun að dýr eigi að fá að vera dýr. En kannski er ég bara ekki komin lengra en það.

Hafðu yndislegt kvöld

jóna björg (IP-tala skráð) 31.3.2008 kl. 19:02

9 Smámynd: Guðrún Emilía Guðnadóttir

Það er rétt hjá þér Steina þetta er samvinna í kærleikanum á milli manns og dýrs.
Þessi mynd sýnir traust og kærleika.
En það er ekkert skrýtið að fólk skuli sjá við fyrstu sýn og hugsa hvað liggur að baki, horfði einhver á fréttir frá kópadrápinu, ég held að það sé í Kanada,
ég horfði bara augnablik, því ég horfði í augu kóps sem var síðan barinn með kylfu
eða svo sýndist mér og ég fékk bara tár í augun.
Maður horfir einnig upp á illa framkomu við dýr næstum alla daga líka á Íslandi.
                                       Kveðja Milla.

Guðrún Emilía Guðnadóttir, 31.3.2008 kl. 19:59

10 Smámynd: Vilborg Eggertsdóttir

Æðislegt myndband hjá þér elsku Steina mín, dýrin eru komin á undan okkur í breytingunum.

Hef verið að hlusta á Weave your World- miðlanirnar og þar er talað um að við séum ekki bræður og systur heldur aðeins ONE.

Öll fingur á sömu hendi - vilborg

Vilborg Eggertsdóttir, 31.3.2008 kl. 20:10

11 Smámynd: www.zordis.com

Ég sá enga grimmd í þessu videói sem þú sýnir, var búin að sjá heimasíðu með þessum listafílum og þykir mikið til koma.  Mikil fegurð á ferðinni.

Það er því miður ofbeldi á mönnum sem dýrum því miður er það einhver endalaus hluti af ljótleikanum í einingunni.  Ef það væri meira af gleði og frið í heiminum þá liði okkur öllum betur!

Bestu kveðjur inn í hjartað þitt!

www.zordis.com, 31.3.2008 kl. 20:24

12 Smámynd: Ragnhildur Jónsdóttir

Einhverjum datt einhvern tíma í hug að segja "skynlausar skepnur", ég hef aldrei skilið það orðasamband. Þetta myndband er dásamlegt. Dýrin læra af okkur og þroskast í samskiptum við okkur mannfólkið, við berum mikla ábyrgð í samskiptum okkar við önnur börn Móður Jarðar, af hvaða tegund sem þau eru. 

Fallegt, þakka þér fyrir að sýna okkur þetta.

Ragnhildur Jónsdóttir, 31.3.2008 kl. 21:36

13 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Knús á þig Steina mín  Treysti mér ekki til að horfa á myndbandið.  En ég elska dýr og virði þau líka. 

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 31.3.2008 kl. 22:25

14 Smámynd: Þröstur Unnar

Þoli illa myndir svona myndir eins og ég ímynda mér þessa, þannig að ég sleppi þeim.

Góða nótt til þín Steina.

Þröstur Unnar, 31.3.2008 kl. 22:43

15 Smámynd: Sigrún Friðriksdóttir

Þetta er FALLEGT myndband !!!!!

Sigrún Friðriksdóttir, 31.3.2008 kl. 22:51

16 Smámynd: Brynja skordal

Knús inn í nóttina mín kæra

Brynja skordal, 1.4.2008 kl. 00:14

17 Smámynd: Ylfa Mist Helgadóttir

Jeminn eini. Ég veit ekki hvað mér finnst. Ef þetta er afrakstur svipuhögga þá finnst mér það sorglegt. Ef hinsvegar þetta er merki um samband kærleika og virðingar þá er þetta auðvitað dásamlegt. En ég hef séð afskaplega fallegar myndir sem málaðar voru af þrælabörnum á Indlandi svo að ég veit líka að píningin getur af sér fallega hluti. Þær myndir voru ótúlegar, fullar af sköpun og fegurð. Svo að ég veit ekki með fílinn.... En aftur á móti segir mannskepnan: Fílar gleyma engu svo að kannski málar hann eftir sjónminni :)

Knún til þín

Ylfa Mist Helgadóttir, 1.4.2008 kl. 15:27

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband