Fylgdu ljósinu í hjarta þínu. Fyrirgefning. Frið minn gef ég þér.

 

Fylgdu ljósinu í hjarta þínu

Ímyndaðu þér ekki að okkur sé eigi kunnugt um vonbrigði þín og erfiðleika og hræðsluna sem hefur þig á valdi sínu. Við í andanum vitum að þú gengur í gegnum reynslupróf. Við vitum að efnislíkaminn er ekki ætíð eins heilbrigður og fullkominn og hann gæti verið. Við vitum að efnaleg kjör þín geta verið erfið. Við erum svo tengdir inn á þig, bróðir, að við nemum tilfinningar þínar. Við þekkjum vandamálin og erfiðleikana, en við fullvissum ykkur öllum að ef þið fylgið í raun ljósinu í hjarta ykkar þá mun ykkur vel farnast.

 

handrose-1

Fyrirgefning

 Hefur þú einhvern tíma hugleitt hvað fyrirgefning merkir? Þú, þitt eigið sjálf, þitt eigin persónuleiki þarfnast fyrirgefningar þinnar. Andi þinn er guðdómlegur, en þangað til þú hefur unnið sigur, verður persónuleiki þinn mannlegur og þarfnast fyrirgefningar anda þíns. Á sama hátt og þú fyrirgefur, á sama hátt og andi þinn fyrirgefur meðbræðrum þínum, munt þú læra að fyrirgefa meðbræðrum þínum mistök þeirra. Ef þú einsetur þér að hugsa út frá kærleika og fyrirgefningu sérhvert andartak lífs þíns mun yndisleg heilun eiga sér stað innra með þér.

Frið minn gef ég þér

Meistarinn er blíður og kærleiksríkur; hann þekkir þarfir þínar, hann skilur erfiðleika þína og vonbrigði og segir: "Komdu bróðir, komdu út úr þokunni, komdu til mín og ég mun gefa þér hinn innri frið sem þú leitar að".

ba445791b1ee6f2b693b2b12631c3b65.gif

 

 

 

 

Úr bókinni Hinn Kyrri Hugur

eftir White Eagle

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Gunnar Helgi Eysteinsson



Gunnar Helgi Eysteinsson, 20.9.2007 kl. 07:56

3 Smámynd: Hólmgeir Karlsson

Það er alltaf jafn gaman og notarlegt að koma við á síðunni þinni.

Ljós og kveðja :)

Hólmgeir Karlsson, 20.9.2007 kl. 22:46

4 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Alltaf sami friðurinn og kyrrðin hér og kærleikurinn elsku Steina mín.  En síðan ég fór að hugsa jákvætt, og senda frá mér kærleika og ljós, þá einhvernveginn finn ég voða sjaldan fyrir reiði í garð fólks í kring um mig.  Og öll sambönd verða einhvernveginn kærleiksríkari.  En ég á ennþá eftir að koma mér upp úr hjólförunum með að dæma fólk sem er í fréttum og sögum og gerðir þeirra.  En ég held að það hafist líka. 

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 21.9.2007 kl. 08:42

5 Smámynd: Solla Guðjóns

Veistu Steina að betri lesningu hefði ég ekki geta fengið einmitt núna.

Þú ert einstök.Takk elsku stelpa

Solla Guðjóns, 21.9.2007 kl. 20:43

6 Smámynd: Karl Tómasson

Stjörnuljós til þín.

Bestu kveðjur frá Kalla Tomm úr Mosó.

Karl Tómasson, 21.9.2007 kl. 22:10

7 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Yndislegt að lesa. Indælt að íhuga

Takk fyrir þetta

Hrönn Sigurðardóttir, 21.9.2007 kl. 22:36

8 Smámynd: Heiða  Þórðar

Þakka fallega lesningu, fallega kona.

Heiða Þórðar, 22.9.2007 kl. 00:12

9 Smámynd: www.zordis.com

Eins og að leggjast upp í rúm í brakandi hreinum náttfötum með tandurhreint línið á!  Andin fær sömu upplifun í heimsókninni til þín!  "Vellíðan"

Ég hugsa stundum í margflóknum hug mínum að þegar hjartastöðin er tóm þá sé rétti tíminn að gefa sig að hreinleikanum, almættinu eða því sem nærir anda þinn.

Trúin er falleg og það sem við trúum æðri anda okkar.  Faðmlag til þín inn í helgina!

www.zordis.com, 22.9.2007 kl. 08:21

10 Smámynd: halkatla

Mjög fallegt ég og Kassí sendum til þín og þinna.

halkatla, 22.9.2007 kl. 12:11

11 Smámynd: Svava frá Strandbergi

Þetta er mjög fallegt og svo satt.

Svava frá Strandbergi , 22.9.2007 kl. 14:20

12 Smámynd: Guðrún Þorleifs

Takk fyrir góðan pistil Steina mín

Guðrún Þorleifs, 23.9.2007 kl. 08:32

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband