Gestabók
Skrifa í Gestabók
Gestir:
Snilld að hafa REKIST á þig, Steinunn Helga..!
Sæl, og til hamingju með lífið, dásamlegt að lesa árið þitt, 2012, ÓTTINN,MEIRIHÁTTAR Lesning,ja hérna, the tree live..eða eitthvað í þá áttina, langar vera með, heyra, flæða og upplifa. Kv Unnur Fríða
Unnur Fríða Halldórsdóttir (Óskráður, IP-tala skráð), þri. 19. feb. 2013
Snilld að hafa REKIST á þig, Steinunn Helga..!
Sæl, og til hamingju með lífið, dásamlegt að lesa árið þitt, 2012, ÓTTINN,MEIRIHÁTTAR Lesning,ja hérna, the tree live..eða eitthvað í þá áttina, langar vera með, heyra, flæða og upplifa. Kv Unnur Fríða
Unnur Fríða Halldórsdóttir (Óskráður, IP-tala skráð), þri. 19. feb. 2013
45 kíló
Elsku hjartans Steina mín. Var að lesa reynslu þína og baráttu við þráhyggjuna en gat ekki "commentað" þar vegna tímamarka. Langaði bara að þakka þér fyrir að deila þessu hér og gera okkur hinum, með skrifum þínum, frekar kleift að taka á okkar erfiðu verkefnum í lífinu. Að minna okkur á hvað ber að þakka fyrir í þessu lífi og vekja til umhugsunar um þá ábyrgð sem hvert og eitt okkar höfum á eigin lífi. Gangi þér og fjölskyldu þinni allt í haginn og ég bið fyrir kærleiksríkum jólakveðjum til ykkar. Þín gamla vinkona Kristín Eyjólfsdóttir
Kristín (Óskráður, IP-tala skráð), mið. 1. des. 2010
Kæra Steina
Eg sé framá að við getum haft margt að spjalla um. Eg bjó lengi í Köben. Það var á Grænlandsárunum mínum. A leiðinni heim til Islands, skrapp maður gjarna suður á bóginn. Hef búið í USA síða 1991 Bestu kveðjur Bjorn westurfari.blog .is
Björn Emilsson, sun. 14. nóv. 2010
já
Kæra Marta, að sjálfsögðu er það í lagi, kærar kveðjur til þín og þinna og Gleíleg jól !
Steinunn Helga Sigurðardóttir, sun. 20. des. 2009
Vönduð skrif
Mig langar til að vekja athygli lesvina minna á vönduðum pistli eftir þig; hugurinn flytur fjöll eða grefur gröf, þitt er valið. Hjartansþakkir fyrir góð skrif og vandaðar hugvekjur.
Marta B Helgadóttir, sun. 20. des. 2009
Síðbúin Afmæliskveðja
Til hamingju með afmælið Sigrún Sól! Og þið Gunni og Steina til hamingju með dóttur ykkar. Kveðja frá öllum í Stapasíðu 22 AK
Yrsa Horn Helgadottir (Óskráður, IP-tala skráð), mán. 15. júní 2009
Hilsen fra Thomas og Marianne
Hej Gunnar og Steinunn. Jeg fandt din side ved et tilfælde. Vores datter Frida er tre år nu. Håber alt vel. Marianne og Thomas, Slangerup
thomas (Óskráður, IP-tala skráð), fös. 2. jan. 2009
til ómars
kæri ómar, gleðileg jól til þín og þinna ! stórt knús steina
Steinunn Helga Sigurðardóttir, lau. 6. des. 2008
Halló
gaman að kíkja á síðuna þína,gleðileg jól
Ómar Ívarsson (Óskráður, IP-tala skráð), lau. 6. des. 2008
Dýravinur
Takk fyrir bloggvináttu og fallega pistla. Langar að vita hvernig Íslenski Husky blandan kemur út! Hef ekki vitað um neina Husky blendinga hingað til. Áttu mynd af hundinum þínum? Kær kveðja, Sólveig Klara
Sólveig Klara Káradóttir, mán. 29. sept. 2008
vináttan
var rétt í þessu að lesa um vináttuna... takk fyrir mín kæra vinkona
Ragnhildur Vigfúsdóttir (Óskráður, IP-tala skráð), mið. 6. ágú. 2008
Í tilefni dagsins ...
... gleðilegan 19. júní bloggvinkona :)
Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir, fim. 19. júní 2008
Innilega til hamingju með afmælið
Eigðu góðan dag og njóttu vel.
Marta B Helgadóttir, þri. 20. maí 2008
Til hamingju með daginn!
Til hamingju með afmælið, með ósk um góðan dag í dag jafnt sem aðra daga. Kv. Hermann
Kaleb Joshua, þri. 20. maí 2008
takk
takk fyrir yndislegan pistil! kær kveðja Dússa
Ragnhildur Vigfúsdóttir (Óskráður, IP-tala skráð), fim. 6. mars 2008
Knús
Ég bið fyrir góðar kveðjur til Jons frá mér og þú mátt gefa honum stórt knús.
Heidi Strand, sun. 24. feb. 2008
kæra bloggvinkona
kæra heidi ! john lysner, þekki hann vel, hann er sætur !ég er mjög ánægð að búa hérna, hef búið hérna í 1 ár.kram til þín steina
Steinunn Helga Sigurðardóttir, mán. 18. feb. 2008
Kveðja frá Heidi
Sæl Steinunn og ég þakka þér fyrir að vilja vera bloggvinkonan min. Við bjuggum einu sinni smá tíma í Hvalsø og svo tvö ár í Hróarskeldu.Ég á mjög góðan vin sem er gullsmíður og á heima í Munkedammen í Lejre.
Heidi Strand, mán. 18. feb. 2008
jól 2007
gleðileg jól og farsælt komandi ár kær kveðja Ómar
o (Óskráður, IP-tala skráð), þri. 25. des. 2007
til ómars
Kæri ómar, yndislegt að fá kveðju frá þér ! Kærleiks kveðjur til þín og fjölskyldu þínnar. steina
Steinunn Helga Sigurðardóttir, sun. 23. des. 2007
Takk fyrir að heimsækja mig og Gleðileg jól og kveðjur til þín líka!
Að óttast Drottinn er ekki hræðsluáróður, heldur lotningin og virðing fyrir mikilleik hans, hann er heilagur og almáttugur, ekkert fær staðist fyrir hans augliti. Engu síður er hann "Kærleikurinn" og uppspretta alls góðs. Maðurinn er skapaður til samfélags við Guð sinn, en maðurinn er ekki Guð. Maðurinn þarf á Guði að halda til að vera uppfylltur og hamingjusamur, til að eiga frið í sál sinni. Guðlaus maður er veglaus maður, tíndur og án tilgangs. Allt verður eftirsókn eftir vindi. Maðurinn er dýrleg sköpun Guðs, en ef maðurinn þekkir ekki Skapara sinn, þá leitar hann þrotlaust af hamingjunni. Jesús sagðist koma til að leysa, lækna og frelsa, hann sagðist koma til að gefa okkur sinn frið, frið sem er ólíkur öllu öðru sem að við þekkjum. Friður Guðs hefur allt Guðs Ríkið innifalið í sér.
G.Helga Ingadóttir, lau. 22. des. 2007
Gleðileg jól
Kær kveðja til Danmerkur; míns uppáhaldslands. Sonur minn nemur í Viborg. Sásamlegur bær. Sendi þér líka alheimsljós til baka yfir hafið. Gleðileg jól. Ragnheiður Davíðsdóttir
Ragnheiður Ólafía Davíðsdóttir, mán. 17. des. 2007
Halló Steinunn
Gaman að finna þig hérna kveðja Ómar Ívarsson
Ómar Ívarsson (Óskráður, IP-tala skráð), sun. 2. des. 2007
kvedja til frænda
kæri frændi, gaman ad fá kvedju frá thér. ég ætladi ad kíkja á bloggid thitt, en thad var læst ? vonadi hefur thú thad sem best, biå ad heilsa øllum. er í vinnuni og thad eru ekki íslenskir stafir :o) steina frænka sem heitir thad sama og allar hinar
Steinunn Helga Sigurðardóttir, þri. 9. okt. 2007
Sæl Frænka
Ég var að skoða bloggið hjá Gildru-Kalla og kannaðist eitthvað við eitt nafnið í kommenti hjá honum, smellti á það og viti menn. Það var ein Steinuninn af mörgum sem heita eftir henni ömmu minni í Vík. Lifið heil.
Valdi Kaldi, mán. 8. okt. 2007
Sig nik
þegar ég set inn signik.blog.is kem ég hér inn?
sigurður nikulasson (Óskráður, IP-tala skráð), mið. 26. sept. 2007
Gaman að hafa fundið þig
Steinunn mín.....ég man svo eftir þér. Þú sast við borð rétt við dyrnar, hægramegin í stofunni. Í hvítri kaðlapeysu. Ég man nú ekki hvort þú varst í akstrinum eða á vistinni. Við vorum nokkrar mikið saman, ég Anna María, Elsa, Guðbjörg Steinunn og fleiri. Oooo ég man svo eftir þessum tíma þegar ég fer að hugsa til hans. Þú varst alltaf svo brosandi sæt og alltaf svo kát. Verðum vonandi í sambandi. kv Birna Mjöll
Birna Mjöll Atladóttir, mið. 5. sept. 2007
skógar
kæra birna, eitthvað kannast ég við nafnið :o)
Steinunn Helga Sigurðardóttir, mið. 5. sept. 2007
Hvar varstu veturinn 76 - 77
Sæl Steinunn Helga Ég datt fyrir tilviljun hér inn á bloggið þitt. Um leið og ég sá nafnið þitt þá kviknaði á gamalli peru. Áður en ég held lengra þá langar mig að spyrja þig hvort þú hafir verið á Skógaskóla veturinn 76 - 77 Kveðja Birna Mjöll
Birna Mjöll Atladóttir, mið. 5. sept. 2007
Elsku Steina
Elsku Steina....ég er byrjaður að safna fyrir húsinu!! ertu búin að athuga fyrir mig hvað það kostar? ;)
Guðni Már Henningsson, þri. 4. sept. 2007
svar til jóhönnu þórarinsdóttur
kæra Jóhanna ég veit að FOF er stundum með stutt sumarnámskeið í málun, veit það vegna þess að þau fá lanað husnæðið hjá okkur í skólanum. þegar tímainn nálgast getur þú haft samband við mig og ég læt þig vita. ef þú vilt byrja að hugleiða þá endilega fylgstu með hérna á heimasíðunni því ég vil fljótlega setja inn hugleiðslu sem ég leyði á bandi bæði fyrir börn og byrjendur !1 þú setur því miður ekki mailheimilisfang svo ég vona bara að þú komir hingað aftur. gangi þér vel með allt Ljós til þín steina
Steinunn Helga Sigurðardóttir, þri. 10. júlí 2007
Myndlist ,hugleiðsla
Sæl Steinunn. Ég er53 ára og hætt að vinna (vann í banka) og er að byrja að fikta við að mála.Kann svo til ekkert.Dóttir mín býr í Kaupmannahöfn og mig langar að vera þar í smá tíma t.d. næsta sumar og fara á námskeið í málun og jafnvel í hugleiðslu.Hef áhuga á byrjendanámskeiði einhverskonar.Mér fannst mjög áhugavert að lesa um mataræðið þitt. Ég kannast við þetta og er byrjuð að gera ýmislegt er reyndar hætt í mjólkurfæði fyrir ca.3 árum.Getur þú bent mér á skemmtilegt stutt námskeið í málun? Hugleiðsla væri líka svo sannarlega nauðsynleg fyrir mig.Ég er einhvernvegin alltaf bara á yfirborðinu og vantar að komast undir það. Með bestu kveðju. Jóhanna Þórarinsdóttir. ps. fór á netið og setti:hrásykur í leit.is og þá fann ég þig m.a.!
Jóhanna Þórarinsdóttir (Óskráður, IP-tala skráð), mán. 9. júlí 2007
Kveðja
Komdu sæl, Steina. Þakka þér fyrir að vera orðin bloggvinur minn:-) Síðan þín er mjög falleg og myndirnar eru áhrifmiklar. Takk fyrir síðuna!
Toshiki Toma, mán. 25. júní 2007
Til hamingju með afmælið
sæl mín kæra, vona að afmælisdagurinn hafi verið bjartur og fagur. Ég hélt upp á hann með því að fara með alla fjölskylduna á San Franscisco ballettinn, þvílík fegurð.
Ragnhildur Vigfúsdóttir (Óskráður, IP-tala skráð), mán. 21. maí 2007
heyja denmark!
Takk fyrir messagid, gaman ad skoda siduna thina og lifid virdist ganga a bleikum skyjum hja ykkur. Hjer er gott i californiunni og thad er sko engin sky, bleik eda hvit,haha! Mikid er heimsvefurinn yndislegur og tengir folk enn betur enn nokkurntimann adur, Heir, heir Heimsvefur. Bid obboslega vel ad heilsa. Alda litla fraenka
Alda (Óskráður, IP-tala skráð), fös. 27. apr. 2007
Kveðja frá Sigrúnu frænku
Hæ hæ elsku frænka, mér er ekki að takast að senda þér skilaboð en hér er ein tillraunin enn. Síðan þín er mjög skemmtileg. Ég bið að heilsa fjölskyldunni, og sendi þér slóðina af Öldu og Mána. http://www.icefornia.blogspot.com/ástarkveðjur Sigrún frænka
Sigrún Sæmundsdóttir (Óskráður, IP-tala skráð), mán. 23. apr. 2007
Munkur lætur í sér heyra
Kæra Steinunn Helga! Bróðir Davíð, elskulegur kapúsínamunkur, hefur eitthvað misskilið athugasemd þína við færsluna "Eina kollaleiru, takk" á blogginu mínu. Ég held ég hafi leiðrétt misskilninginn en vildi láta þig vita. Hjartans þakkir fyrir allar þínar góðu kveðjur. Pax et bonum! (Friður og allt gott) Svavar Alfreð
Svavar Alfreð Jónsson, mán. 26. mars 2007
http://www3.telus.net/theguardians/
Langaði að senda þér þennan link, ef þú ert ekki nú þegar kominn með hann. Great love to you,vilb.
Vilborg Eggertsdóttir, sun. 25. mars 2007